REIÐHÖLLIN VERÐUR LOKUÐ Í DAG KL.17.00 - 18.00
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Föstudagur, janúar 16 2015 13:10
- Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Ágætu félagar!!
Nú eru reiðnámskeið vetrarins að byrja og er þá helmingur hallarinnar mikið í notkun. Ákveðið hefur verið að hafa alla höllina opna á þriðjudögum milli 18 og 19 í allann vetur og ekki verður hægt að leigja höllina til annarar kennslu á þeim tíma.
Ágætu félagar!!
Næskomandi laugardag 17.janúar verður haldið hið árlega þorrablót félagsins.
Miðaverð á blótið er 4.000 kr og hægt er að panta miða í síma 893-4671 og leggja þarf inná reikning: 549-26-4259 og kennitala er: 650169-4259
Húsið mun opna kl 18:00
Harðarfélagar, höfum gaman saman á laugardaginn.
Kveðja stjórn hestamannafélagsins Harðar.
Reynir Örn sannaði það á árinu að hann er einn fremsti knapi Íslands og á það við um margar keppnisgreinar, en hann var tilnefndur í tveimur flokkum á uppskeruhátíð hestamanna sem haldin var 10.janúar sl. Árangur hans var mjög góður og var hann valinn íþróttaknapi ársins 2014. Við Harðarfélagar erum stoltir af því að hafa Reyni Örn innan okkar raða. Reynir Örn er jafnframt tilnefndur til Íþróttamanns Mosfellsbæjar 2014.

Hér eru það Lárus Hannesson formaður LH og Gunnar Sturlurson forseti FEIF sem afhenda honum verðlaunin
Námskeið 2015
Skráningar á námskeið nú í byrjun vetrar fara ágætlega á stað.
Þau námskeið sem enn eru eftir nokkur pláss á, eru eftirfarandi:
Ágætu félagar.
En er opið fyrir skráningar á knapamerkjanámskeið hjá æsku og fræðslunefnd.
Hér að neðan má sjá þá daga sem þau eru kennd og verð á námskeiðum.
Skráning fer fram inná sportfeng.com
Ágætu félagsmenn!!
Á stjórnarfundi hestamannafélagsins Harðar 6.janúar var tekin sú ákvörðun að áður auglýst verð og tími í reiðhöll Harðar til félagsmanna verði óbreyttur, sem er:
Reynir Örn Pálmason
Fæddur 17. apríl 1971
Hestaíþróttamaður Harðar 2014

Miðasölu á uppskeruhátíð hestamanna lýkur á morgun kl. 18:00
Undirbúningur fyrir hátíð hestamanna sem haldin verður í Gullhömrum 10. janúar næstkomandi stendur nú sem hæst. Hátíðin er samstarfsverkefnið Landssambands hestamannafélaga og Félags hrossabænda og hefur verið haldin á haustmánuðum en var frestað. Dagskráin verður fjölbreytt og létt en eins og vant er verða veittar viðurkenningar fyrir árangur í keppni og ræktun o.fl. Margt verður til skemmtunar og meðal annars mun nýstofnaður hestamannakvartett skemmta. Veislustjóri verður hinn geðþekki Gísli Einarsson.
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
Fædd 7. júlí 1989
