Bókanir reiðhallar
- Nánar
- Skrifað þann Sunnudagur, desember 12 2021 20:55
- Skrifað af Super User
Leigu um helgar: fyrir klukkan 12 og eftir klukkan 18.
Virka daga: fyrir klukkan 14.
Hafa skal í huga að allir viðburðir á vegum félagsins og námskeiðahald hefur algeran forgang og leiga til einstaklinga og kennara er gerð með þeim formerkjum að viðkomandi gætu þurft að víkja komi upp sú staða fyrirvaralítið.
Sjá hér gjaldskrá og uppfærða tíma fyrir leigu https://hordur.is/index.php/felagid/gjaldskra
Reglur um leigu á reiðhöll:
Félagsmaður sem vill leigja reiðhöllina undir kennslu, þarf að panta á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. helst með 24 tíma fyrirvara. Kennari sem fagaðili, ber að ganga úr skugga um að félagsmaður sé búinn að panta reiðhöllina. Kennara er ekki heimilt að kenna í höllinni nema að annaðhvort kennarinn eða nemandinn hafi pantað reiðhöllina og gengið frá greiðslu.
Allir viðburðir á vegum félagsins og námskeiðahald hefur algeran forgang í reiðhöllinni og leiga til einstaklinga og kennara er gerð með þeim formerkjum að viðkomandi gætu þurft að víkja komi upp sú staða fyrirvaralítið.
Ef félagsmaður eða reiðkennari verða uppvís að kennslu án þess að hafa gengið frá pöntun og/eða greitt fyrir leigu, áskilur félagið sér rétt til að loka reiðhallarlyklum og senda greiðsluseðil með 50% sektarálagi.
Reiðhöllin er sameign okkar Harðarmanna og til þess að geta viðhaldið henni, þurfum við leigutekjur. Að greidd sé sanngjörn leiga, er hagur okkar allra. Þeir sem panta leigu á reiðhöllinni hafa kynnt sér þessar reglur og undirgangast þær.
Við bendum enn fremur á Blíðubakkahöllina fyrir einkakennslu.

