Umferðarreglur og umgengni í reiðhöll Harðar

Af gefnu tilefni skal það áréttað að það gilda ákveðnar umgengnis og umferðarreglur í reiðhöll Harðar. Fólk er hvatt til að kynna sér þær og fara eindregið eftir þeim.

Í reiðhöll og reiðgerði Harðar

1.    Látið vita áður en teymt er inn á völlinn. Farið á bak og af baki inn á miðjum velli en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.

2.    Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð. Þeir sem ríða hægari gangtegund skulu ávallt víkja fyrir þeim er hraðar fara.

3.    Tvær hestlengdir skulu ávallt milli hesta. Ekki má ríða hlið við hlið eða hafa tvo hesta til reiðar.

4.    Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt ef riðinn er sami hraði. Undantekning frá því er ef annar knapi ríður hraðar skal honum eftirlátin ytri sporaslóð.

5.    Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð

6.    Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf er best að gera slíkt inni á miðjum velli nema um annað sé samkomulag þeirra í milli er stunda æfingar á vellinum hverju sinni.

7.    Hringtaumsvinna fer enganveginn saman við þjálfun í reið og skal víkja nema um annað sé sérstaklega samið.

8.    Forðast skal að ríða þvert í veg fyrir aðra knapa.

9.    Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum.

10.  Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda hesta þar.

11.  Knapar skulu sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.

12.  Öll þjálfun á völlum sem félagið leggur félagsmönnum til er á eigin ábyrgð

13. Það er bannað að lána lykillinn sinn áfram - lykill verður lokaður ef það er gert.

Félagsmaður sem vill leigja reiðhöllina undir kennslu, þarf að panta á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. helst með 24 tíma fyrirvara.  Kennari sem fagaðili, ber að ganga úr skugga um að félagsmaður sé búinn að panta reiðhöllina.  Kennara er ekki heimilt að kenna í höllinni nema að annaðhvort kennarinn eða nemandinn hafi pantað reiðhöllina og gengið frá greiðslu.

Nokkrar kvartanir hafa borist félaginu vegna hringteymingar í reiðhöllinni.  Hringteymingar eru ekki leyfðar nema sérstaklega sé samið við aðra notendur reiðhallarinnar.  Á svæðinu eru 3 hringgerði sem hægt er að nota undir slíka þjálfun.