Tilkynning frá stjórn Harðar

Ágætu félagsmenn!!

Á stjórnarfundi hestamannafélagsins Harðar 6.janúar var tekin sú ákvörðun að áður auglýst verð og tími í reiðhöll Harðar til félagsmanna verði óbreyttur, sem er:

 

Heill dagur kostar 32.500kr., árgjaldið, þá er lykillinn opinn frá kl. 8.00 - 23.30.

Hálfur dagur kostar 8.000kr., árgjaldið, þá  er lykillinn opinn frá kl. 16.00 - 23.30.

Um helgar eru báðir lyklarnir opnir frá kl.8.00 - 23.30.

Einnig var samþykkt að bjóða uppá mánaðarlykil sem er opinn frá 8:00 - 23:30 fyrir alla félagsmenn og mun hann kosta 3.000kr.

Harðarfélagar 70 ára og eldri fá frían lykil að höllinni sem er opinn frá 8:00 - 23:30

Búið er að senda greiðsluseðla fyrir lyklum út á flesta félagsmenn og ef þíð viljið breyta ykkar áskrift endilega sendi tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., einnig ef þið eruð búin að greiða lykil og viljið breyta. Þeir sem vinna vaktarvinnu ættu að láta vita af því áður en þeir virkja lykilinn sinn til þess að gera viðeigandi ráðstafanir.

Kær kveðja

Stjórn Harðar