Reiðhöllinn lokuð

Reiðhöllin verður lokuð frá kl 16 föstudaginn 28. ágúst.  Sett verður upp ný lýsing og ætti verki að vera lokið á sunndagskvöldinu.  Ef það verður fyrr, verður það auglýst sérstaklega.

 

Stjórnin

Reglur Landssambands hestamannafélaga um sóttvarnir á æfingum og mótum vegna COVID-19

Eftirfarandi reglur hafa verið unnar af Landssambandi
hestamannafélaga í samræmi við 6. gr. auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, útgefin 12. ágúst 2020 og minnisblað sóttvarnarlæknis.
Neðangreindar reglur gilda þar til annað er kynnt af LH.
Í samræmi við neðangreindar reglur óskar LH eftir því að öll hestamannafélög tilkynni hver sé þeirra sóttvarnarfulltrúi (með tengiliðaupplýsingum) til skrifstofu LH og að því loknu geta þau fengið leyfi til mótahalds. Listi sóttvarnarfulltrúa hestamannafélaga verður birtur á heimasíðu LH.
Reglurnar taka til fullorðinna fædda 2004 og fyrr þ.e. þeirra sem komnir eru af grunnskólaaldri. Börn og ungmenni fædd 2005 og síðar falla ekki undir þessar reglur en fullorðnir þurfa að virða nálægðarmörk gagnvart börnum og ungmennum.
Markmið þessara reglna er að tryggja að umgjörð æfinga og keppni í hestaíþróttum verði með þeim hætti að hægt sé að halda áfram að stunda æfingar og keppni í hestaíþróttum á Íslandi þrátt fyrir að COVID-19 sé enn við lýði í íslensku samfélagi og útlit fyrir að svo kunni að verða áfram næstu misseri.
Mikilvægasta vopn samfélagsins gegn COVID-19 eru þær almennu sóttvarnaraðgerðir sem embætti landlæknis og almannavarnir hafa kynnt ítarlega síðustu mánuðina. Þessar almennu aðgerðir eru hér
með gerðar að skilyrði fyrir því að hægt sé að halda áfram iðkun hestaíþrótta næstu misserin án þess að hætta sé á að aftur komi til lokana á mannvirkjum og tilmæla um að halda ekki mót.
Markmiðið er að lágmarka áhættuna á að þátttakendur í
hestaíþróttum (knapar, starfsmenn félaga og sjálboðaliðar) smitist af COVID-19. Markmiðið er jafnframt og ekki síður að stöðva smit til annarra, ef einstaklingur sýkist þrátt fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir. Mikilvægt er að öllum þátttakendum í hestaíþróttum sé gert það ljóst að ekki er hægt að útrýma sýkingarhættu að öllu leyti.
Þessar reglur sem hér eru settar ná til mótssvæða og sameiginlegrar æfingaaðstöðu eins og reiðhalla.
Reglur þessar fela í sér aðskilnað hópa eins og frekast er unnt og leiðbeiningar um sótthreinsun sameiginlegra snertiflata. Jafnframt er hér fjallað um ráðstafanir sem nauðsynlegar eru varðandi
fjarlægðarmörk innan einstakra hópa, t.d. knapa, dómara og annars starfsfólks.
Knapi sem sýkst hefur þarf eins og aðrir að halda sig í einangrun þar til liðnir eru a.m.k. 14 dagar frá
greiningu/jákvæðu sýni (greiningarprófi) og að hann/hún hafi verið einkennalaus í a.m.k. 7 daga. Ekki skal mæta á heilbrigðisstofnun heldur hringja á undan í heilsugæslu en á Læknavakt utan dagvinnutíma (1700), láta vita og gera ráðstafanir fyrir sýnatöku. Áður en að knapi getur hafið keppni á ný þarf mat læknis til staðfestingar á að hann/hún sé keppnisfær samkvæmt fyrirliggjandi leiðbeiningum.
_____________________________________________________________________________________
Sóttvarnarfulltrúi
Hverju hestamannafélagi verður gert að skipa sérstakan sóttvarnarfulltrúa sem ber ábyrgð á því að farið
sé eftir þeim reglum sem nefndar eru í þessu skjali. Það er jafnframt á ábyrgð sóttvarnarfulltrúa að tryggja að allir aðilar viðkomandi félags séu meðvitaðir um þessar reglur. Sóttvarnarfulltrúi skal tryggja að knapar og allir starfsmenn móta þekki til almennra sóttvarnaraðgerða og að þeim sé fylgt. Knapa eða starfsmanni, sem finnur fyrir einkennum, er óheimilt að umgangast aðra knapa eða starfsmenn.
Sóttvarnarfulltrúa ber að tryggja að þessu sé fylgt án nokkurra undantekninga.
Sóttvarnarfulltrúi ber ábyrgð á því að sótthreinsun sameiginlegra snertiflata á æfinga- og keppnissvæði fari fram með reglubundnum hætti. Salernisaðstöðu skal sótthreinsa daglega og þar skal einnig tryggja góða aðstöðu til handhreinsunar. Sé eftir því kallað (t.d. af fulltrúa heilbrigðisyfirvalda) skal sóttvarnarfulltrúi leggja fram áætlun um framkvæmd sótthreinsunar og staðfestingu á að hún hafi farið fram.
Sóttvarnarfulltrúi ber ábyrgð á að allar hurðir séu opnar eins og kostur er til að lágmarka þörf á snertingu við hurðarhúna.
Sóttvarnarfulltrúi hefur heimild til að víkja einstaklingi sem ekki fer eftir þessum reglum, út úr mannvirki og af keppnissvæði og útiloka viðkomandi frá keppni eða störfum við mótahald.
Æfingar í reiðhöllum
Æfingar í reiðhöllum geta farið fram, sé eftirfarandi reglum fylgt auk allra almennra sóttvarnarreglna hverju sinni. Markmið þessara reglna er að minnka nánd þátttakenda inni í reiðhöllum. Mikilvægasta vörnin gegn COVID-19 í tengslum við íþróttir er að farið sé eftir tilmælum heilbrigðisyfirvalda. Þó að undanþága sé veitt frá því að tveggja metra reglunni sé fylgt í keppni er það sérstaklega mikilvægt að henni sé framfylgt á æfingum.
Notendum félagsreiðhalla er óheimilt að nota aðra félagsaðstöðu, s.s. eldhús og aðra sameiginlega aðstöðu.
Sóttvarnarfulltrúi félags skal tryggja að sótthreinsivökvi sé aðgengilegur í reiðhöllum við hurðir og aðra sameiginlega snertifleti. Hurðir á reiðhöllum skulu hafðar opnar eins oft og kostur er. Öll aðstaða fyrir félagsstarf skal vera þannig útbúin að tveggja metra fjarlægð sé á milli einstaklinga.
Starfsmenn reiðhalla skulu halda tveggja metra fjarlægð frá iðkendum í reiðhöll.
_____________________________________________________________________________________
Framkvæmd mótahalds utanhúss
Hestaíþróttir eru íþróttir án snertingar og hver knapi notar sinn búnað. Í þeim keppnisgreinum þar sem einn knapi er í brautinni í einu er fjöldi keppenda u.þ.b. 12 á hverri klst. Í þeim keppnisgreinum þar sem knapar eru þrír í braut í einu er fjöldi keppenda á hverri klst. u.þ.b. 30. Heildarfjöldi knapa og starfsmanna sem er samstundis á keppnissvæði fer því ekki yfir 100 manns.
Dagskrá móta skal setja upp með það að leiðarljósi að ekki muni safnast saman fleiri en 100 manns á keppnissvæðinu í einu. Lengri pásur verða á milli greina og gera þarf ráð fyrir að hver keppnisgrein taki lengri tíma en vant er til að hægt sé að tryggja fjöldatakmarkanir á keppnissvæði og nándarreglu.
1. Aðstaða knapa á keppnissvæði.
Tryggja þarf tveggja metra bil á milli allra knapa. Þar sem ekki er hægt að tryggja að hver knapi hafi aðgang að sér hesthúsi verða knapar að hafa hesta sína og allan búnað á sinni hestakerru og í sínum bíl.
2. Salernisaðstaða
Tryggja þarf sér salernisaðstöðu fyrir knapa annars vegar og dómara og starfsfólk hins vegar. Mótshaldara ber að tryggja að sótthreinsivökvi sé á öllum salernum og þau séu sótthreinsuð daglega.
3. Upphitunarsvæði og upphitunarvöllur
Knapar skulu gæta að tveggja metra reglunni í upphitun fyrir keppni og tryggja þarf að upphitunarsvæði bjóði upp á fjarlægð milli knapa. Í keppnisgreinum þar sem fleiri en einn er inni á velli í einu er vikið frá þeirri reglu að knapar mæti í upphitunarhring.
Aðeins í greinum þar sem einn knapi er í braut í senn verður skylt að mæta í upphitunarhring.
4. Keppnisvöllur - forkeppni
Knapar virði tveggja metra regluna. Ef inn- og útgangur af keppnisvelli er sá sami þarf að gæta þess að knapar mætist ekki á leið inn og út af keppnisvelli. Næsti knapi/næsta holl ríður inn á völlin þegar knapinn/hollið á undan er farið út af vellinum. Þegar fleiri en einn knapi er inn á keppnisvellinum í einu skulu knapar reyna eftir fremsta megni að virða tveggja metra regluna.
5. Keppnisvöllur – úrslit
Hámarksfjöldi knapa í úrslitum er 6. Á þetta við bæði um íþróttakeppni og gæðingakeppni. Knapar reyni eftir fremsta megni að virða tveggja metra regluna.
6. Kappreiðar
a. Einungis er heimilt að ræsa tvo knapa í einu í skeiðkappreiðum.
b. Starfsmenn við rásbása skulu bera andlitsgrímu og einnota hanska.
7. Dómarar og ritarar
a. Þrír til fimm dómarar dæma hverja grein. Þeir sitja hver í sínum bíl.
_____________________________________________________________________________________
b. Kjósi dómari að hafa ritara við dómsstörf ber að virða tveggja metra regluna séu dómari
og ritari ekki í daglegum samskiptum.
8. Fóta- og áverkaskoðun
a. Starfsmaður í fótaskoðun ber andlitsgrímu og einnota hanska. Við vigtun fótabúnaðar
leggur knapi hófhlífar sjálfur á vigtina. Knapi og starfsmaður fótaskoðunar virði tveggja metra regluna.
b. Í úrslitum framkvæma dómarar þessa skoðun og ber þeim að bera andlitsgrímu og einnota hanska og virða tveggja metra regluna.
9. Dómpallur
a. Tveir starfsmenn mega vera samtímis í dómpalli og virða tveggja metra regluna.
10. Verðlaunaafhending
Við verðlaunafhendingu skal gæta að tveggja metra bili á milli knapa. Starfsmaður móts sem afhendir verðlaun skal bera andlitsgrímu og einnota hanska. Ekki skal setja verðlaun um háls á knöpum.
Áhorfendur
Áhorfendabann er á öllum mótum í hestaíþróttum.
Veitingar
Engin veitingasala er heimil á æfinga-eða keppnissvæði.
Fjölmiðlar
Starfsmenn fjölmiðla bera sjálfir ábyrgð á því að fylgja þeim almennu sóttvarnaraðgerðum sem hér að ofan eru nefndar. Sóttvarnarfulltrúi mótshaldara hefur heimild til að vísa frá starfsmanni fjölmiðils sem ekki fylgir þeim reglum sem hér eru settar.
Daglegt líf
Knapar ættu að kynna sér reglur um heimkomusmitgát og sóttkví í heimahúsi og fylgja þeim eins og hægt er til að vernda fjölskyldur sínar, vinnufélaga og aðra knapa.
Minnum á einstaklingsbundnar smitvarnir, frekari upplýsingar á Covid.is.
Einkenni COVID-19
______________________________________________________________________________
• Hiti
• Hósti
• Andþyngsli
• Hálssærindi
• Slappleiki
• Bein- og vöðvaverkir
• Skyndileg breyting eða tap á bragð- og lyktarskyni
Ef knapi eða annar einstaklingur innan félags, eða fjölskyldur þeirra, fær einkenni sem geta bent til COVID-19:
• Viðkomandi skal halda sig heima og alls ekki mæta á æfingasvæði eða keppnissvæði
• Hafa skal samband við heilsugæslu símleiðis eða í gegnum netspjall á heilsuvera.is eða við Læknavaktina í síma 1700 svo unnt sé að framkvæma próf fyrir COVID-19 án tafar.
• Það er mjög mikilvægt að fara ekki í eigin persónu á heilsugæslu eða Læknavaktina án þess að hringja fyrst.
• Heilbrigðisstarfsfólk veitir ráðleggingar um næstu skref.
Veggspjöld:
Veggspjöld/upplýsingaskilti og annað kynningarefni má finna á heimasíðunni www.covid.is
Veggspjöld má nálgast með því að smella á þennan tengil undefined
Landssamband hestamannafélaga
17. ágúst 2020.
Sóttvarnarfulltrúi Harðar er Rúnar framkvæmdastjóri

Hertar aðgerðir til að sporna gegn útbreiðslu COVID-19

Hertar aðgerðir til að sporna gegn útbreiðslu COVID-19

Víðir Reynisson, hjá Almannavörnum, biðlaði á fundinum til íþróttahreyfingarinnar að öllum íþrótta­mót­um og keppn­um full­orðinna verði frestað í tíu daga eða þar til 10. ág­úst. 

Aðgerðirnar eru m.a.

  • Fjöldatakmörkun miðast við 100 einstaklinga í stað 500 áður. Börn fædd 2005 eða síðar eru undanskilin.
  • Breyting á fjöldatakmörkunum nú og fleiri aðgerðir munu gilda í tvær vikur.
  • Tveggja metra nándarregla viðhöfð í allri starfsemi. Hún er ekki lengur valkvæð heldur skyldubundin.
  • Sóttvarnalæknir leggur til að starfsemi sem í eðli sínu felur í sér að gestir noti sameiginlegan búnað, s.s. íþróttastarf, líkamsræktarstöðvar, spilakassar og spilasalir geri hlé á starfsemi eða sótthreinsi slíkan búnað milli notenda.

Reykjavikurmeistaramót 2020

Þá er Reykjavikurmeistaramóti 2020 lokið og voru Harðafélagar þar í toppsætum í nokkrum flokkum.
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir átti flottustu sýningu sem sést hefur á honum Óskari frá Breiðsstöðum í T2 með einkunnina 8.833 og sigrðuðu örugglega. Þau Aðalheiður og Óskar enduðu í 4.sæti í V1 með 7.733 og urðu samanlagðir sigurvegarar í fjórgangsgreinum í meistaraflokki. Aðalheiður og Kveikur frá Stangarlæk komu fram í fyrsta skipti í T1 enduðu í 6.sæti með 7,888. Frábær frammistaða hjá Aðalheiði Önnu👏👏🏆
 
Halldór Snær Stefánsson og Sproti frá Ragnheiðarstöðum kepptu til úrslita í T7 í öðrum flokkui og enduðu þeir í 2-3 sæti með einkunnina 5,917.
 
Birgitta Ýr Bjarkadóttir og Gustur frá Yztafelli urðu í 5.sæti í T3 í ungmennaflokki með einkunnina 5,667.
Oddur Carl Arason og Órnir frá Gamla Hrauni kepptu til úrslita í fjórgangi í barnaflokki og enduðu í fjórða sæti með 6,433.
 
Benedikt Ólafsson keppti í öllum A úrslitum í unglingaflokki. Hann og Bikar frá Ólafshaga urðu í fjórða sæti í slaka taumnum með 6,83, þá komu úrslit í fimmgangi með Leiru-Björk frá Naustum en þau lentu í 3.sæti með 6,52 og sigruðu þau einnig gæðingaskæðið með 7,58. Benedikt og Biskup frá Ólafshaga hófu úrslitadaginn á því að sigra fjórganginn með 6,97 og svo skelltu þeir félagar sér aftur í brautina seinna um daginn og áttu glæsilega sýningu í tölti sem tryggði þeim fyrsta sætið með 7,57. 
Benedikt Ólafsson og Leira-Björk sigruðu gæðingaskeiðið í unglingaflokki með glæsi einkunn uppá 7,58!
Benedikt var stigahæsti knapi mótsins í unglingaflokki. Glæsilegur árangur hjá Bensa okkar sem hefur átt frábært lokaár í unglingaflokki.
 
Erum við Harðarfélagar stoltir af okkar fólki og óskum við þeim og öllum þeim knöpum sem létu til sín taka á keppnisbrautinni í Víðidalnum til hamingju með árangurinn. Áfram Hörður🏆
 
Bjarney Anna tók þessa glæsilegu mynd af Aðalheiði og Óskari.
Mynd af Bennsa og Leira er tekin af Arnari Bjarka.aðalheiður.jpg
Bennsi.jpg

Handsömun lausahrossa

Handsömun lausahrossa

Af gefnu tilefni er því beint til leigjendur beitarhólfa að gæta vel að girðingar séu samkvæmt reglum félagsins:

Girðingar skulu vera að lágmarki tveggja strengja með tré eða járnstaurum. Æskilegt er að amk annar þeirra sé vírstrengur. Á hornum skulu vera veglegir burðarstaurar með stögum eða stífum á hornum. Girðingarnar skulu vera rafmagnaðar meðan hross eru í þeim og viðvörunarskilti á þeim þar sem vænta má umferðar í kringum þær.  

Gæta skal vel að hlið sé traust og í góðu lagi. Samkvæmt gjaldskrá Mosfellsbæjar er heimilt að innheimta 28 þúsund kr handtökugjald fyrir hvert hross.  Fyrir nokkru, um miðja nótt, sluppu 7 hross út úr einu hólfinu og tók það rúma 3 tíma að handsama hrossin.  Samkvæmt gjaldskrá hefði það kostað viðkomandi 196 þús krónur.

Verum því vel á verði, við berum ábyrgð á okkar hrossum.  Öll hross í beitarhólfum á vegum Harðar,n eiga að vera ábyrgðartryggð ef þau valda 3ja aðila tjóni.   Eigandinn ábyrgð á hugsanlegu tjóni sem hrossið getur valdið og ef hann er ekki með ábyrgðartryggingu, getur hann þurft að borga tjónið úr eigin vasa.

 

 

Kerrustæðin merkt

Nú er loksins búið að merkja kerrustæðin.  Leigjendur fá fljótlega rukkun fyrir ársleigu og með rukkuninni við hvaða númer stæðið þeirra er.

 

Leiðbeiningar:  Númerið sé vinstra megin við kerruna, bílstjórinn sjái númerið í vinstri hliðarspegli þegar kerrunni er bakkað í stæðið. NEMA þau stæði sem eru við vegg reiðhallarinnar, þar er númerið fyrir miðju kerrunnar, en litlir hælar sitthvoru megin við afmarkað kerrustæðið.  Sama lága leigan eða 6 þús krónur fyrir árið.

Gæðingamót Harðar 2020

Mótanefnd Harðar vill þakka öllum keppendum, áhorfendum og öllum þeim sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg. Mótið gekk vel og veðrið lék við okkur.

 

Mót: IS2020HOR141 Gæðingamót Harðar  
           
A flokkur          
Gæðingaflokkur 1        
Forkeppni        
Sæti Hross Knapi Litur Aðildarfélag eiganda Einkunn
1 Grámann frá Hofi á Höfðaströnd Flosi Ólafsson Grár/rauðurtvístjörnótt Skagfirðingur 8,44
2 Minning frá Mosfellsbæ Brynja Kristinsdóttir Brúnn/dökk/sv.einlitt Hörður 8,40
3 Hrímnir frá Hvítárholti Ragnheiður Þorvaldsdóttir Grár/brúnneinlitt Hörður 8,35
4 Silfurperla frá Lækjarbakka Kristinn Már Sveinsson Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Hörður 8,25
5 Eldþór frá Hveravík Sigurður Kristinsson Rauður/milli-stjörnóttglófext Hörður 8,22
6 Kraftur frá Breiðholti í Flóa Hafdís Arna Sigurðardóttir Brúnn/milli-einlitt Sörli 8,20
7 Ronja frá Yztafelli  Fredrica Fagerlund Jarpur/milli-einlitt Hörður 7,93
8 Kolskör frá Hárlaugsstöðum 2 Lýdía Þorgeirsdóttir Brúnn/milli-stjörnótt Hörður 7,92
9 Ópal frá Lækjarbakka Halldóra Sif Guðlaugsdóttir Brúnn/milli-einlitt Hörður 7,68
A úrslit          
Sæti Hross Knapi Litur Aðildarfélag eiganda Einkunn
1 Hrímnir frá Hvítárholti Ragnheiður Þorvaldsdóttir Grár/brúnneinlitt Hörður 8,65
2 Eldþór frá Hveravík Sigurður Kristinsson Rauður/milli-stjörnóttglófext Hörður 8,51
3 Ronja frá Yztafelli  Fredrica Fagerlund Jarpur/milli-einlitt Hörður 8,34
4 Minning frá Mosfellsbæ Brynja Kristinsdóttir Brúnn/dökk/sv.einlitt Hörður 8,33
5 Kraftur frá Breiðholti í Flóa Hafdís Arna Sigurðardóttir Brúnn/milli-einlitt Sörli 8,31
6 Kolskör frá Hárlaugsstöðum 2 Lýdía Þorgeirsdóttir Brúnn/milli-stjörnótt Hörður 8,21
7 Silfurperla frá Lækjarbakka Kristinn Már Sveinsson Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Hörður 8,01
8 Ópal frá Lækjarbakka Halldóra Sif Guðlaugsdóttir Brúnn/milli-einlitt Hörður 7,86

 

B flokkur          
Gæðingaflokkur 1        
Forkeppni        
Sæti Hross Knapi Litur Aðildarfélag eiganda Einkunn
1 Salvar frá Fornusöndum Hulda Katrín Eiríksdóttir Jarpur/milli-einlitt Hörður 8,49
2 Stormur frá Yztafelli  Fredrica Fagerlund Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,45
3 Nóta frá Syðri-Úlfsstöðum Súsanna Sand Ólafsdóttir Rauður/milli-einlitt Hörður 8,44
4 Blómalund frá Borgarlandi Súsanna Sand Ólafsdóttir Rauður/milli-stjörnótt Hörður 8,27
5 Eva frá Mosfellsbæ Súsanna Sand Ólafsdóttir Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Hörður 8,18
6 Víóla frá Niðarósi Kjartan Ólafsson Rauður/milli-stjörnótt Hörður 8,08
A úrslit          
Sæti Hross Knapi Litur Aðildarfélag eiganda Einkunn
1 Salvar frá Fornusöndum Hulda Katrín Eiríksdóttir Jarpur/milli-einlitt Hörður 8,68
2 Stormur frá Yztafelli  Fredrica Fagerlund Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,65
3 Nóta frá Syðri-Úlfsstöðum Súsanna Sand Ólafsdóttir Rauður/milli-einlitt Hörður 8,52
4 Víóla frá Niðarósi Kjartan Ólafsson Rauður/milli-stjörnótt Hörður 8,30
5 Blómalund frá Borgarlandi Súsanna Sand Ólafsdóttir Rauður/milli-stjörnótt Hörður 8,27
6 Eva frá Mosfellsbæ Súsanna Sand Ólafsdóttir Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Hörður 8,18
           
           
Gæðingaflokkur 2        
Forkeppni        
Sæti Hross Knapi Litur Aðildarfélag eiganda Einkunn
1 Tinni frá Laugabóli Erna Jökulsdóttir Brúnn/milli-stjarna,nös eða tvístj. auk leista eða sokka Hörður 8,37
2 Ósvör frá Reykjum Íris Hrund Grettisdóttir Bleikur/fífil/kolótturstjörnótt Hörður 8,27
3 Hrefna frá Skagaströnd Hrafnhildur Jónsdóttir Brúnn/dökk/sv.einlitt Fákur 8,25
4 Júní frá Búðardal Magnús Þór Guðmundsson Brúnn/milli-leistar(eingöngu) Hörður 8,08
5 Gustur frá Yztafelli  Viktoría Von Ragnarsdóttir Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,06
6 Gestur frá Útnyrðingsstöðum Stefanía Vilhjálmsd. Reykdal Grár/óþekktureinlitt Hörður 7,67
A úrslit          
Sæti Hross Knapi Litur Aðildarfélag eiganda Einkunn
1 Tinni frá Laugabóli Erna Jökulsdóttir Brúnn/milli-stjarna,nös eða tvístj. auk leista eða sokka Hörður 8,71
2 Ósvör frá Reykjum Íris Hrund Grettisdóttir Bleikur/fífil/kolótturstjörnótt Hörður 8,40
3 Hrefna frá Skagaströnd Hrafnhildur Jónsdóttir Brúnn/dökk/sv.einlitt Fákur 8,35
4 Gustur frá Yztafelli  Viktoría Von Ragnarsdóttir Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,23
5 Júní frá Búðardal Magnús Þór Guðmundsson Brúnn/milli-leistar(eingöngu) Hörður 8,17
6 Gestur frá Útnyrðingsstöðum Stefanía Vilhjálmsd. Reykdal Grár/óþekktureinlitt Hörður 7,90

 

Barnaflokkur        
Gæðingaflokkur 1        
Forkeppni        
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Steinþór Nói Árnason Drífandi frá Álfhólum Brúnn/milli-einlitt Fákur 8,35
2 Oddur Carl Arason Órnir frá Gamla-Hrauni Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,31
3 Sölvi Þór Oddrúnarson Leikur frá Mosfellsbæ Bleikur/álóttureinlitt Hörður 8,19
4 Stefán Atli Stefánsson Völsungur frá Skarði Brúnn/milli-stjarna,nös eða tvístj. auk leista eða sokka Hörður 8,14
5 Anika Hrund Ómarsdóttir Tindur frá Álfhólum Rauður/milli-stjörnótt Fákur 8,12
6 Kristín María Eysteinsdóttir Hómer frá Dallandi Rauður/milli-einlitt Hörður 8,03
A úrslit          
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Oddur Carl Arason Órnir frá Gamla-Hrauni Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,49
2 Steinþór Nói Árnason Drífandi frá Álfhólum Brúnn/milli-einlitt Fákur 8,47
3 Sölvi Þór Oddrúnarson Leikur frá Mosfellsbæ Bleikur/álóttureinlitt Hörður 8,34
4 Anika Hrund Ómarsdóttir Tindur frá Álfhólum Rauður/milli-stjörnótt Fákur 8,28
5 Stefán Atli Stefánsson Völsungur frá Skarði Brúnn/milli-stjarna,nös eða tvístj. auk leista eða sokka Hörður 8,20
6 Kristín María Eysteinsdóttir Hómer frá Dallandi Rauður/milli-einlitt Hörður 8,18

 

Unglingaflokkur        
Gæðingaflokkur 1        
Forkeppni        
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Benedikt Ólafsson Rökkvi frá Ólafshaga Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,39
2 Helga Stefánsdóttir Kolbeinn frá Hæli Jarpur/dökk-einlitt Hörður 8,23
3 Hildur Ösp Vignisdóttir Leiknir frá Yzta-Bæli Rauður/milli-einlitt Hörður 8,21
4 Viktoría Von Ragnarsdóttir Ymur frá Reynisvatni Jarpur/milli-einlitt Hörður 8,20
5 Aníta Eik Kjartansdóttir Hörður frá Syðra-Skörðugili Rauður/milli-tvístjörnótt Hörður 8,11
A úrslit          
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Viktoría Von Ragnarsdóttir Ymur frá Reynisvatni Jarpur/milli-einlitt Hörður 8,51
2 Benedikt Ólafsson Rökkvi frá Ólafshaga Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,43
3 Helga Stefánsdóttir Kolbeinn frá Hæli Jarpur/dökk-einlitt Hörður 8,30
4 Hildur Ösp Vignisdóttir Leiknir frá Yzta-Bæli Rauður/milli-einlitt Hörður 8,27
5 Aníta Eik Kjartansdóttir Hörður frá Syðra-Skörðugili Rauður/milli-tvístjörnótt Hörður 8,18

 

A flokkur ungmenna      
Gæðingaflokkur 1        
Forkeppni        
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Birgitta Ýr Bjarkadóttir Snær frá Keldudal Grár/brúnneinlitt Hörður 8,31
2 Benedikt Ólafsson Þota frá Ólafshaga Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,13
3 Viktoría Von Ragnarsdóttir Marhildur frá Reynisvatni Jarpur/milli-einlitt Hörður 7,73
4 Stefanía Vilhjálmsd. Reykdal Embla frá Lækjarhvammi Jarpur/milli-skjótt Hörður 7,46
A úrslit          
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Birgitta Ýr Bjarkadóttir Snær frá Keldudal Grár/brúnneinlitt Hörður 8,21
2 Benedikt Ólafsson Þota frá Ólafshaga Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,10
3 Viktoría Von Ragnarsdóttir Marhildur frá Reynisvatni Jarpur/milli-einlitt Hörður 7,89
4 Stefanía Vilhjálmsd. Reykdal Embla frá Lækjarhvammi Jarpur/milli-skjótt Hörður 1,67

 

B flokkur ungmenna      
Gæðingaflokkur 1        
Forkeppni        
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Erna Jökulsdóttir Villing frá Lækjarbakka Rauður/milli-einlitt Hörður 8,36
2 Magnús Þór Guðmundsson Kvistur frá Skálmholti Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,26
3 Bergey Gunnarsdóttir Flikka frá Brú Brúnn/gló-einlitt Máni 8,22
4 Stefanía Vilhjálmsd. Reykdal Sindri frá Oddakoti Jarpur/milli-stjörnótt Hörður 7,82
5 Daníel Gíslason Þröstur frá Reykjavík Jarpur/milli-einlitt Hörður 7,52
A úrslit          
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Bergey Gunnarsdóttir Flikka frá Brú Brúnn/gló-einlitt Máni 8,61
2 Erna Jökulsdóttir Villing frá Lækjarbakka Rauður/milli-einlitt Hörður 8,46
3 Magnús Þór Guðmundsson Kvistur frá Skálmholti Brúnn/milli-einlitt Hörður 8,29
4 Daníel Gíslason Þröstur frá Reykjavík Jarpur/milli-einlitt Hörður 7,84
5 Stefanía Vilhjálmsd. Reykdal Sindri frá Oddakoti Jarpur/milli-stjörnótt Hörður 7,67

 

Tölt T3          
Opinn flokkur - 1. flokkur      
Forkeppni        
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Saga Steinþórsdóttir Mói frá Álfhólum Brúnn/dökk/sv.einlitt Fákur 6,93
2 Hulda Katrín Eiríksdóttir Salvar frá Fornusöndum Jarpur/milli-einlitt Sprettur 6,73
3 Erlendur Ari Óskarsson Byr frá Grafarkoti Brúnn/milli-stjörnótt Dreyri 6,70
4 Ástey Gyða Gunnarsdóttir Bjarmi frá Ketilhúshaga Bleikur/fífil-tvístjörnótt Sleipnir 6,43
5 Hrafnhildur Jónsdóttir Hrímnir frá Syðri-Brennihóli Grár/jarpureinlitt Fákur 6,23
6 Ástey Gyða Gunnarsdóttir Stjarna frá Ketilhúshaga Rauður/ljós-stjörnótt Sleipnir 6,03
7 Hrafnhildur Jónsdóttir Flotti frá Akrakoti Rauður/milli-blesótthringeygt eða glaseygt Fákur 6,00
8 Súsanna Sand Ólafsdóttir Eva frá Mosfellsbæ Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Hörður 5,87
9 Kjartan Ólafsson Víóla frá Niðarósi Rauður/milli-stjörnótt Hörður 5,83
10 Sigurður Kristinsson Vígþór frá Hveravík Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Fákur 5,80
11 Margrét Halla Hansdóttir Löf Paradís frá Austvaðsholti 1 Jarpur/ljóseinlitt Fákur 5,57
12-13 Guðjón Sigurðsson Ólga frá Miðhjáleigu Jarpur/milli-einlitt Sleipnir 0,00
12-13 Vilfríður Sæþórsdóttir List frá Múla Rauður/milli-einlitt Fákur 0,00
A úrslit          
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Erlendur Ari Óskarsson Byr frá Grafarkoti Brúnn/milli-stjörnótt Dreyri 7,17
2 Saga Steinþórsdóttir Mói frá Álfhólum Brúnn/dökk/sv.einlitt Fákur 7,06
3 Hulda Katrín Eiríksdóttir Salvar frá Fornusöndum Jarpur/milli-einlitt Sprettur 6,94
4 Ástey Gyða Gunnarsdóttir Bjarmi frá Ketilhúshaga Bleikur/fífil-tvístjörnótt Sleipnir 6,22
5 Kjartan Ólafsson Víóla frá Niðarósi Rauður/milli-stjörnótt Hörður 6,06
6 Hrafnhildur Jónsdóttir Hrímnir frá Syðri-Brennihóli Grár/jarpureinlitt Fákur 6,00
           
           
Opinn flokkur - 2. flokkur      
Forkeppni        
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Aníta Eik Kjartansdóttir Hörður frá Syðra-Skörðugili Rauður/milli-tvístjörnótt Hörður 6,13
2 Natalía Rán Leonsdóttir Stjörnunótt frá Litlu-Gröf Brúnn/mó-stjarna,nös eða tvístj. auk leista eða sokka Hörður 5,80
3 Viktoría Von Ragnarsdóttir Stjarna frá Ölversholti Rauður/milli-stjörnótt Hörður 5,60
4 Sara Bjarnadóttir Grettir frá Króki Brúnn/dökk/sv.einlitt Hörður 5,57
5 Stefanía Vilhjálmsd. Reykdal Gestur frá Útnyrðingsstöðum Grár/óþekktureinlitt Hörður 5,07
6 Þóranna Brynja Ágústudóttir Leiftur frá Garði Brúnn/milli-einlitt Fákur 5,00
7 Andrea Rún Magnúsdóttir Kristey frá Reykjavík Rauður/milli-blesótt Fákur 4,67
A úrslit          
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Natalía Rán Leonsdóttir Stjörnunótt frá Litlu-Gröf Brúnn/mó-stjarna,nös eða tvístj. auk leista eða sokka Hörður 5,94
2 Aníta Eik Kjartansdóttir Hörður frá Syðra-Skörðugili Rauður/milli-tvístjörnótt Hörður 5,89
3 Viktoría Von Ragnarsdóttir Stjarna frá Ölversholti Rauður/milli-stjörnótt Hörður 5,83
4 Sara Bjarnadóttir Grettir frá Króki Brúnn/dökk/sv.einlitt Hörður 5,72
5 Þóranna Brynja Ágústudóttir Leiftur frá Garði Brúnn/milli-einlitt Fákur 5,56
6 Stefanía Vilhjálmsd. Reykdal Gestur frá Útnyrðingsstöðum Grár/óþekktureinlitt Hörður 5,06

 

UNGHROSSAKEPPNI

1. Þokki frá Mosfellsbæ Valdimar Kristinsson
2. Salómon frá Efra-Núpi Fredrica Fagerlund


POLLAR

Líney Anna Fagerlund Sigurðardóttir Kátalingur grár
Embla Ýr Leósdóttir Noack Kóngur rauðblesóttur glófextur
Helga Hrönn Þorleifsdóttir Leikur frá Ekru Bleikálóttur


Myndir: Jón Bjarnason

A FLOKKUR

103448899_3051565231587712_5420663744125203204_o.jpg

 

B FLOKKUR

 

104222418_10222058637165579_3480427511897827419_o.jpg