- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 04 2011 14:10
-
Skrifað af Super User
Guðmar Þór Pétursson reiðkennari verður með sýnikennslu í reiðhöll Harðar föstudaginn 7.janúar 2011 klukkan 20.00.
Guðmar Þór hefur eins og margir þekkja rekið tamningarstöð í Bandaríkjunum til margra ára. Þar hefur hann fengist mikið við kennslu, þjálfun og tamningar á íslenskum hestum, auk þess að kynna sér margskonar reiðmennsku- og þjálfunaraðferðir. Hann á að baki farsælan feril í keppni og þjálfun hérlendis.
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Miðvikudagur, desember 08 2010 11:50
-
Skrifað af Super User
Súsanna Ólafsdóttir tamningakona í Mosfellsbænum er að undirbúa Opinn fræðsludag fyrir reiðkennara, tamningafólk og reyndar alla hestaáhugamenn...
Um er að ræða dagskrá sem inniheldur bæði fyrirlestra og kennslusýningar og fer hún fram í félagsheimili og reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ nk laugardag og hefst kl. 9.30. Eiðfaxi hefur fylgst með framvindu verkefnisins og má fylgjast með því á www.eidfaxi.is.
Um hvað snýst þetta ?„Eftir að ég útskrifaðist frá Hólum sem reiðkennari hafa verið að mótast í huga mér hugmyndir dregnar af upplifun minni þar og reynslu minni sem tamningakona. Mér fannst eftir á að hyggja að heilmikið vantaði í kennsluna varðandi mannleg samskipti.
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Fimmtudagur, nóvember 04 2010 16:58
-
Skrifað af Super User
Það hefur lengi verið draumur Harðarmanna að leggja okkar af mörkum til að fatlaðir einstaklingar geti stundað reiðmennsku og var það eitt af markmiðum þegar ráðist var í hönnun reiðhallarinnar sem var vígð i nóvember 2009. Draumur okkar var að þjálfun fatlaðra ætti hér góða aðstöðu og er allt fyrirkomulag reiðhallarinnar miðað við að svo geti orðið. Það voru settar stórar innkeyrsludyr á húsið og ríflegt svæði við þær framan við reiðvöllinn sem gefa færi á að keyra inn bíla með fatlaða einstaklinga en hægt er að aka að sérstakri lyftu til að auðvelda praktísku hlutina. Þessi lyfta var gjöf frá Jón Levy sem lét smíða hana þegar hann átti orðið erfitt með að komast á bak vegna MS sjúdóms.
Fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði var stofnuð 14. október 2010. Nefndina skipa: Auður G. Sigurðardóttir, Frosti Richardsson og Leifur Leifsson.
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Þriðjudagur, apríl 13 2010 23:09
-
Skrifað af Super User
Nýtt námskeið þar sem tekist er á við ákveðin vandamál hjá hestum sem knapar ná ekki í gegnum hjálparlaust. Reynir Örn Pálmason reiðkennari mun leiða þátttakendur í að leysa vandamálin. Kennt á fimmtudögum klukkan 19. Aðeins eru fá pláss í boði og fyrstir koma fyrstir fá.
Verð er 8000 fyrir 6 tíma.
Skráning hjá Margréti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. . Fram skal koma nafn, sími og stutt lýsing á vandamáli hestsins. Skráningu lýkur sunnudaginn 18. apríl.
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Þriðjudagur, mars 30 2010 23:14
-
Skrifað af Super User
Kvennatölt Harðar fer fram á Skírdag (fimmtudaginn) og hefst klukkan 14.00 á byrjendaflokki, þá keppa minna vanar, meira vanar og loks er keppt í opnum flokki. Að því loknu verður gert 10 mínútna hlé og svo riðin A-úrslit í öllum flokkum í sömu röð og í forkeppni. Hægt verður að komast inn í höllina á milli 12.00 og 13.30 í létta æfingu.
Veitingar verða seldar í Gummabúð.
Ráslistar í lesa meira:
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Þriðjudagur, febrúar 09 2010 15:34
-
Skrifað af Super User
Hinn stórsnjalli tamningameistari Sigurbjörn Bárðarson verður með sýnikennslu í reiðhöllinni okkar laugardaginn 13. febrúar klukkan 16.00.
Sigurbjörn byrjar á sýnikennslu á sínum hesti og svo munu nokkrir eigendur sýna hesta sína í reið og lýsa helstu vandamálum sem þeir kljást við.
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Fimmtudagur, mars 25 2010 22:08
-
Skrifað af Super User
Kvennatölt Harðar.
1. apríl næstkomandi (Skírdag) verður opið töltmót fyrir konur í Reiðhöllinni hjá Herði. Mótið hefst klukkan 14.00 og keppt verður í 4 flokkum, byrjendaflokki, minna vanar, meira vanar og opnum flokki. Byrjendaflokkur ríður hægt tölt og fegurðartölt, aðrir flokkar ríða hægt tölt, hraðabreytingar og yfirferðartölt. Skráningargjald er 2000 krónur og skráning fer fram mánudaginn 29.mars klukkan 19-21 í Harðarbóli og í síma 5668282. Ganga verður frá greiðslu við skráningu.
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Miðvikudagur, febrúar 03 2010 21:15
-
Skrifað af Super User
Það eru örfá pláss laus á námskeið ætlað byrjendum og/eða þeim sem vantar meiri kjark í sína reiðmennsku, kennari er Oddrún Ýr Sigurðardóttir. Þetta er námskeið sem tekur mið af þörfum nemendanna og þróast eins og þarfir þeirra. Tilvalið fyrir þá sem hafa ekki farið á námskeið áður eða eru nýlega byrjaðir í hestamennsku og líka þá sem ná ekki alveg tökum á reiðmennskunni vegna óöryggis.
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Miðvikudagur, mars 17 2010 10:30
-
Skrifað af Super User
Fimmtudaginn 18. mars verður Petra Mazetti með kynningu á hugmyndafræði lausagöngu hesthúsa með sjálfvirku fóðurkerfi (Active Stable).
Kynningin verður í Harðarbóli og hefst klukkan 20.00. Aðgangur er ókeypis.
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Sunnudagur, janúar 24 2010 16:41
-
Skrifað af Super User
Enn eru örfá pláss laus á námskeið fyrir fullorðna:
Almennt reiðnámskeið hjá Ragnheiði Þorvaldsdóttur sem hefst 5. febrúar, kennt á föstudögum klukkan 18 eða 19.
Almennt keppnisnámskeið hjá Halldóri Guðjónssyni sem hefst 16. mars, kennt á þriðjudögum klukkan 21.
Keppnisnámskeið fyrir konur hjá Súsönnu Ólafsdóttur sem hefst 14. febrúar, kennt á sunnudögum klukkan 14.
Nánar...