Laust í einkatíma !
- Nánar
- Flokkur: Fræðslunefnd
- Skrifað þann Laugardagur, janúar 13 2018 17:34
- Skrifað af Sonja
Leó er atvinnujárningarmaður og ætlar hann að fræða okkur um hófhirðu og járningar
Fimmtudagskvöldið 25.janúar Kl19:00
í anddyri Reiðhallarinar. Fræðsluerindi er FRÍTT!
Mjög gott tækifæri fyrir alla hesteigendur að fræðast meira um hófhirðu og járningar og hvað þarf að hafa í huga þegar hesturinn er tekinn á hús, hvernig heilbrigðir hófar eiga að líta út, hvernig við viljum hafa járningu og hvenær þarf að járna hestinn upp.
Allir velkomnir. Hlökkum til að sjá sem flesta.
Kaffi í boði. Frítt inn.

Miðvikudaginn 22. maí kl. 20.00 býður Hestamannafélagið Hörður ásamt Súsönnu Ólafsdóttur, Söru Sigurbjörnsdóttur, Trausta Þór, Ragnheiði Þorvaldsdóttur o. fl. upp á stórskemmtilega hestasýningu fyrir alla sem áhuga hafa á íslenska hestinum.
Hestar og knapar sýna listir sínar í leik og gleði þar sem vinátta og virðing er í hávegum höfð.
Þessi sýning er tileinkuð Einari Öder, Svönu og fjölskyldu og við hvetjum alla hestamenn að standa saman, senda þeim hlýja strauma og jákvæða orku í batabaráttunni.
Hestaáhugafólk látið þessa sýningu ekki framhjá ykkur fara.
Súsanna Ólafsdóttir og Fræðslunefnd Harðar
Miðvikudaginn 15. maí kl: 19-21 verður kennsla í hvíta gerðinu.
Fræðslunefndin.
,,HROSSARÆKT OG FRAMTÍÐARSÝN Í HESTAMENNSKUNNI"
Gunnar Arnarsson Auðsholtshjáleigu mætir í Harðarból laugardaginn 16. febrúar með fyrirlestur og spjall um ,,Hrossarækt og framtíðarsýn í hestamennskunni".
Fyrirlesturinn hefst kl. 11.00 og kostar 1000.-
Kaffi og bakkelsi innifalið.
Fræðslunefnd Harðar.
Kæru Harðarfélagar
Skráning er hafin á námskeið fyrir fullorðna í vetur. Í hverjum hópi verða minnst 4 nemendur, en mest 5. Ef færri en 4 skrá sig fellur námskeiðið niður. Hver kennslustund er 50 mínútur. Fræðslunefnd áskilur sér rétt til breytinga og niðurfellinga á einstökum námskeiðum eftir atvikum. Leitast er við að hafa námskeiðin virka daga en eitthvað þarf líkast til að vera um helgar. Það hefur gefist vel.
Upplýsingar gefur Helena, 699-2797 eftir kl: 14 á daginn, eða Lilja, 899-8816 Skráning fer fram í gegnum tölvupóst og fyrirspurnum er einnig svarað hjá umsjónaraðila hvers námskeiðs. Greiðsluseðlar verða sendir út fyrir námskeiðsgjöldum.
ATH. ,, Forfallist skráður nemandi á námskeiðið þarf tilkynning að berast 2 daga fyrir fyrsta reiðtímann að öðrum kosti telst nemandi skráður og skuldbundinn til að greiða fyrir námskeiðið"
Léttleiki frá upphafi til enda
Reiðnámskeið með Michel Becker Léttleiki, jafnvægi og sveigjanleiki er leiðin að hreinum og góðum gangtegundum.
>10. feb. 2012 föstud.kvöld. Harðarból fyrirlestur og sýnikennsla frá 18:00 til 22:00
> 11. feb. 2012 laugardagur. Kennsla í reiðhöll frá 09:00 - 18:00
> 12. feb. 2012 sunnudagur. Kennsla í reiðhöll frá 09:00 - 18:00
Verð: 18.000 kr.
Nánari upplýsingar í lesa meira
Fóðrun og meðferð hrossa.
Mánudaginn 9. janúar mun
Ingimar Sveinsson vera með fyrirlestur um fóðrun og meðferð hrossa í Harðarbóli kl
19:30.
Fyrirlesturinn hentar ungum sem öldnum
og hvetjum við alla Harðarfélaga að mæta.
Frítt er inn og er fyrirlesturinn í boði fræðslu og æskulýðsnefndar Harðar.
Kær kveðja
Fræðslu og æskulýðsnefnd Harðar