Landslið
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Miðvikudagur, nóvember 04 2020 10:49
- Skrifað af Sonja
Landssamband hestamannafélaga kynnti á dögunum nýtt A-landslið fullorðinna og U21.
Eigum við Harðarfélagar knapa í báðum hópum.
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir var valin í A-landsliðið og Benedikt Ólafsson í U21.
Óskum við þeim báðum til hamingju með árangurinn, glæsilegir fánaberar og stolt okkar Harðarmanna.