Aðalfundur
- Nánar
- Flokkur: Stjórnin
- Skrifað þann Mánudagur, nóvember 05 2007 15:52
- Skrifað af Super User
Tafir hafa orðið á byggingu reiðhallarinnar þar sem verkfræðingar verktakans hafa ekki skilað teikningum á tilskildum tíma. Þetta hefur leitt af sér að ekki hefur verið hægt að byrja á að smíða undirstöður og hefur ekkert verið hægt að vinna við verkið í á annan mánuð. Smíði reiðhallarinnar er þó í fullum gangu erlendis og eru fyrstu burðarbitarnir væntanlegir til landsins í fyrstu viku desember. Þessar tafir eru afar leiðinlegar fyrir okkur, en við sömdum þannig við verktakann að hann átti að skila húsinu með teikningum og skil þeirra því alfarið á hans könnu. Að öðru leiti hafa samskipti við verktakann verið mjög góð og ekki annað að sjá en þeir hafi fullan hug á að standa sig og leggja metnað í að við verðum ánægð með reiðhöllina okkar, enda mikilvægt fyrir þá að vel til takist.
Áætluð verklok eru 1.febrúar 2008.
Nú er komið að því að framkvæmdir hefjist við reiðhöllina, ein grafa er þegar komin á svæðið og fleiri koma eftir helgi. Reiknað er með að byrjað verði að grafa fyrir höllinni og flytja vegstæðið strax eftir helgi. Þeir sem eiga kerrur á kerrustæðinu eru beðnir að færa þær fyrir mánudaginn 3. sept. Það fylgir töluvert rask framkvæmd sem þessari, en við höfum reynt að stytta verktímann eins og hægt er og á höllin að vera risin og grófjafnað fyrir framan hana fyrir áramót.
Farið varlega nærri framkvæmdasvæðinu.
Endurnýjun styrktarsamnings Glitnis og Hestamannafélagsins Harðar
Glitnir Mosfellsbæ og Hestamannafélagið Hörður hafa endurnýjað styrktarsamning sín á milli fyrir árið 2007. Hjá félaginu er rekið öflugt æskulýðs- og unglingastarf og er styrkurinn hugsaður til að styrkja starfið enn frekar. Í fyrra var gerður samskonar samningur á milli Glitnis og Hestamannafélagsins og eru báðir aðilar afskaplega ánægðir yfir því hversu vel samstarfið hefur gengið. „Glitni er sönn ánægja að styrkja það kraftmikla starf sem rekið er hjá Hestamannafélaginu Herði og það er ánægjulegt að sjá hversu mikinn áhuga unga fólkið hefur á hestamennskunni,“ sagði Arnheiður Edda Rafnsdóttir viðskiptastjóri Glitnis í Mosfellsbæ. Síðustu ár hefur æskulýðsstarf á vegum Harðar verið eflt stórlega og er nú rekið með myndarlegum hætti. Hið sama má segja um fræðslustarf sem alla tíð hefur verið fastur liður í starfseminni. Þungamiðja félagsstarfsins er í hesthúsahverfinu á Varmárbökkum og er þar að finna hina ágætustu aðstöðu til hestamennsku. Nánari upplýsingar veitir:Arnheiður Edda Rafnsdóttir, Viðskiptastjóri í Glitni Mosfellsbæ, í síma 440-4000. styrkur_til_harar Myndatexti:Á myndinni má sjá Sigurð Hinrik Teitsson stjórnarmann taka við styrknum fyrir hönd Hestamannafélagsins Harðar úr höndum Arnheiðar Eddu Rafnsdóttur Viðskiptastjóra hjá Glitni Mosfellsbæ. Einnig eru á myndinni Þóra María Sigurjónsdóttir á Kröflu, Hrafnhildur Jóhannesdóttir á Sikli og Játvarður Ingvarsson á Helming.
FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN AÐ REIÐHÖLLINNI OKKAR VERÐUR TEKIN KL. 18.00 Á MORGUN LAUGARDAGINN 9.JÚNÍ - Á EFTIR VERÐUR GLEÐISTUND Í HARÐARBÓLI, GRILL O.FL.