MINNUM Á UPPSKERUHÁTÍÐNA Á FIMMTUDAGINN

Uppskeruhátíðin okkar verður í Harðarbóli fimmtudaginn 2. okt.  og vonumst við til að sjá sem flesta Harðarkrakka með foreldrum sínum.  

Hátíðin byrjar kl.18.20 og verður glæsilegur matur í boði ásamt skemmtiatriðum og viðurkenningar verða veittar.

P.S ef einhverjir eiga skemmtilegar myndir sem við getum notað í myndasjó af  síðasta vetri má senda það á bryndisar@gmail.com

Hlökkum til að sjá ykkur.

Æskulýðsnefndin

NOKKUR PLÁSS LAUS Á JÁRNINGARNÁMSKEIÐ

Dagana 18-19. október verður haldið járningarnámskeið með Sigurði Oddi á félagssvæði Harðar í Mosfellsbæ í samvinnu við fræðslunefnd Harðar

Námskeiðið kostar 28.000 og innifalið í því eru öll helstu gögn, kaffi /matur á námskeiðstíma.

Skáning fer fram á Sportfeng http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add  fyrir 5 október næstkomandi.

Fræðslunefnd áskilur sig þann rétt að fella niður námskeiðið ef ekki næst lágmarks skráning.

Kveðja fræðslunefnd Harðar

Frumtamninganámskeið með Robba

Hestamannafélagið Hörður og Róbert Petersen reiðkennari verða með frumtamninganámskeið sem hefst mánudaginn 6. október nk. Hver þátttakandi kemur með sitt tryppi og farið verður í gegnum helstu þætti frumtamningar s.s. atferli hestsins, leiðtogahlutverk, fortamningu á tryppi, undirbúning fyrir frumtamningu og frumtamningu.

Nánar...

Stable quis 2014

Eftir mikla eftirspurn og þrýsting munum við halda "Stable quis" (spurningakeppni hestamannafélaganna) í haust, keppnin sló alveg í gegn í hittifyrra en ekki náðist að setja hana upp sl haust vegna anna. 

Laus störf hjá Herði

ATH umsóknarfestur rennur út á morgun 20.september

MINNUM Á LAUS STÖRF HJÁ HESTAMANNAFÉLAGINU HERÐI. UMSÓKNAFRESTUR RENNUR ÚT 20.SEPTEMBER.
Laus störf til umsóknar hjá Hestamannafélaginu Herði
Yfirreiðkennari - reiðkennarar
Hestamannafélagið Hörður auglýsir eftir reiðkennurum til starfa veturinn 2014-2015. Jafnframt auglýsir félagið eftir yfirreiðkennara sem myndi skipuleggja reiðnámskeið í samvinnu við reiðkennara félagsins, æskulýðsnefnd og fræðslunefnd Harðar. Hann myndi jafnframt búa til stundatöflur og sjá um nokkra viðburði yfir veturinn. Yfirreiðkennari myndi einnig kenna, ekki er um fullt starf að ræða, en viðvera verður ákveðin í samráði við viðkomandi aðila og stjórn félagsins.
Í umsóknunum skal gerð grein fyrir menntun og reynslu og gott væri að fá tillögur að reiðnámskeiðum.
Umsjónamaður reiðhallar félagsins
Leitað er að einstakling til að sjá um viðhald og umsjón reiðhallar félagsins. Viðkomandi þarf að sjá um tímabókanir í reiðhöllinni, þrif og létt viðhald. Ekki er um fullt starf að ræða en viðvera verður ákveðin í samráði við starfsmann og stjórn félagsins.
Þeir sem hafa áhuga senda umsókn á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 20.september 2014.

ÁRANGUR ÁRSINS OG UPPSKERUHÁTIÐ ÆSKULÝSÐNEFNDARINNAR

Jæja þá er komið að því að senda inn árangur ársins.


Það er mikilvægt að þið gerið það ef þið viljið vera með í keppninni um besta og efnilegasta knapa ársins í hverjum flokki .

Vinsamlegast sendið inn árangur ykkar á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 25. sept 2014. ,,Það verður ekki tekið við gögnum eftir það,,.

Uppskeruhátíðin okkar verður svo í Harðarbóli fimmtudaginn 2. okt  auglýst síðar og vonumst við til að sjá sem flesta Harðarkrakka með foreldrum sínum eiga skemmtilegt kvöld.

P.S ef einhverjir eiga skemmtilegar myndir sem við getum notað í myndasjó af  síðasta vetri má senda það einnig kveðja Æskulýðsnefnd

Járningarnámskeið

Dagana 18-19. október verður haldið járningarnámskeið með Sigurði Oddi á félagssvæði Harðar í Mosfellsbæ í samvinnu við fræðslunefnd Harðar

Námskeiðið kostar 28.000 og innifalið í því eru öll helstu gögn, kaffi /matur á námskeiðstíma.

Skáning fer fram á Sportfeng http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add  fyrir 5 október næstkomandi.

Fræðslunefnd áskilur sig þann rétt að fella niður námskeiðið ef ekki næst lágmarks skráning.

Kveðja fræðslunefnd Harðar

REIÐHÖLLIN

Enn eru framkvæmdir í og við reiðhöllina, en hægt er að nota reiðsalinn og þeir sem fara inn í reiðhöllina verða að nota reiðhallarlykilinn sinn.  Hvíta rennihurðin virkar.