Einkatímar og hindrunarstökksnámskeið

Ágætu félagsmenn

Enn er opið fyrir skráningar í einkatíma hjá nokkrum kennurum. 

Einkatímar
Námskeið sérsniðin að þörfum hvers og eins og hentar hestum og knöpum á öllum stigum reiðmennskunnar. Í boði eru einkatímar í 30 mínútur eða tveir nemendur saman í 60 mínútur. 
Kennt í 5 skipti og verður skipt milli daga og kennarar eftir skráningu.
Kennarar:

Nánar...

Lífstölt 2015

Kæru félagskonur.
Kvennatöltmótið okkar, LÍFStöltið, verður nú haldið fimmta árið í röð þann 22. mars nk. Öflugur hópur kvenna úr okkar röðum hefur komið að mótinu á einn eða annan hátt og skipað LÍFStöltsnefnd.

Nánar...

RÉTT ER AÐ MINNA Á UMGENGNISREGLUR SEM GILDA FYRIR HESTHÚSAHVERFIÐ Í MOSFELLSBÆ

Formaður Harðar og formaður Hesthúseigendafélagsins áttu fund með Heiðbrigðisfulltrúa Kjósarsvæðis og umhvefisfulltrúa Mosfellsbæjar þann 26.janúar sl.  Þar var farið yfir þær umhvefisreglur sem gilda í hesthúsahverfinu ásamt mörgu öðru.  Þessar reglur eru aðgengilegar á heimasíðu Harðar, en vert er að minna á þá reglu er snýr að heyböggum og öðru er geymt er við hesthús.  Bent er á að hægt að að notast við rúllubaggasvæðið austast í hverfinu.  Heybaggar hafa valið slysum á síðastliðnum vikum og biðjum við því fólk að huga að böggum við sitt hús, svo ekki þurfi að grípa til frekari aðgerða.

Einnig biðjum við fólk að leggja ekki bílum nema á þar til gerðum bílastæðum.  Það er algjörlega ófært að bílum sé lagt í þröngum götum sem liggja að hesthúsunum og þessir bílar skapa mikla slysahættu.

 

Nánar...

HEYRÚLLUR OG RÚLLUPALST VIÐ HESTHÚS

Kæru félagsmenn!

Minni à það að rúllur og rúlluplast eiga ekki heima fyrir utan hesthúsin frekar en annað dót.  Rúlluplastið fýkur út um allt og fælir hrossin. Vinsamlegast gangið frà plastendum til að forðast slys, gott er að setja net yfir rúllurnar! Einnig bendum við á þar til gert rúllustæði.

Í samþykkt um hverfið segir : Þeir, sem nota hesthús í hverfinu, skulu ganga vel um umhverfi sitt. Bannað er að skilja eftir hvers konar rusl eða annað óviðkomandi utanhúss, s.s. sagpoka, heyrúllur og rúllubaggaplast, timbur og verkfæri.

Nú höldum við áfram með Harðarból

Bygginganefnd vegna stækkunar á Harðabóli leitar eftir viljugum sjálfboðaliðum  til að taka að sér einstaka verkþætti sem vinna þarf á næstu 4 vikum. Helstu verkþættir sem eftir eru:

1.       Einagrun og rakasperra útveggja og þétting glugga og hurða að innan

2.       Einangrun og rakasperra þaks

3.       Lagna- og afréttingagrind innveggja og lofts

4.       Gifsklæðning útveggja og áfellur að gluggum og hurðum

5.       Panelklæðning lofts 

6.       Parketlögn 

7.       Smíði og uppsetning á léttum fellivegg til að loka á milli sala

8.       Þakkantur og flasningar

9.       Útveggjaklæðning

10.   Rennur og niðurföll ásamt tengingu við drenlögn

Nú er bara að taka á því og gefa sig í að ljúka verkefninu sem fyrst, þannig að við getum tekið stækkunina í notkun fyrir árshátíð Harðar í lok mars.

Hafa má samband við Gunnar í síma 822-4402 eða senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Reiðhöll veturinn 2015

Ágætu félagar!!

Nú eru reiðnámskeið vetrarins að byrja og er þá helmingur hallarinnar mikið í notkun. Ákveðið hefur verið að hafa alla höllina opna á þriðjudögum milli 18 og 19 í allann vetur og ekki verður hægt að leigja höllina til annarar kennslu á þeim tíma.

Nánar...