ENDURSKOÐAÐ DEILISKIPULAG
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Miðvikudagur, nóvember 18 2015 09:52
- Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Vakin er athygli á því að frestur til að gera athugasemdir við tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi hesthúsa- og hestaíþróttasvæðis á Varmárbökkum rennur út þriðjudaginn 24. nóvember n.k. Tillagan er til sýnis á bæjarskrifstofunni í Kjarna og liggur frammi á heimasíðu bæjarins (tengill – mosfellsbaer.is/skipulagsauglysingar).
Upplýsingar um skipulagið eru veittar hjá skipulagsfulltrúa í viðtalstímum alla virka daga kl. 11-12, en einnig verða skipulagsfulltrúi og formaður skipulagsnefndar til viðtals vegna skipulagsins fimmtudaginn 19. nóvember kl. 17-18 á bæjarskrifstofunni á 2. hæð í Kjarna.