LANDSMÓTSFARAR

ÞEIR SEM FARA Á LANDSMÓT FYRIR HÖRÐ

Hörður sér um að skrá hesta á Landsmót og borgar skráningargjaldið.

Þeir sem unnu sér stæti á Landsmótinu verða að senda staðfestingu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. um hvort þeir ætli sér að nýta sætið eða ekki.

Föstudaginn 10.júní verður skráningin send.

Grill í Harðarbóli!!

Grillað verður í Harðarbóli á morgunn laugardag, og að sjálfsögðu höfum við fengið grillmeistara félagsins til að gangast í lið með okkur hann Gumma Makker. Grillið verður kl 18:00 og kostar aðeins 2.000kr á mann. ,,Gjöf en ekki gjald".

Vonumst til að sjá sem flesta á morgunn.

Kveðja

Mótanefndin

Áburðarraunir

Svo virðist sem sú þjónusta Hestamannafélagsins Harðar að veita áburð til þeirra sem leigja beitarhólf af félaginu sé í uppnámi.

Í tvígang hefur verið farið án leyfis í áburðarbirgðir félagsins og einstakir félagsmenn eða aðrir skammtað sér áburð á eigin spýtur. Í fyrra tilvikinu voru tveir óuppteknir sekkir fyrir utan reiðhöllina en annar þeirra nánast tæmdur að morgni mánudagsins 21. Maí. Það mál er uppýst.

Eftir þetta var því brugðið á það ráð að flytja hinn sekkinn sem eftir var inn í reiðhöllina. Ekki dugði það til því nokkrum dögum seinna var búið að opna hann og taka úr honum og hann að endingu nánast tæmdur. Það mál er upplýst að hluta en ekki er þó vitað hver reið á vaðið og opnaði pokann né hve margir aðrir

hafa tekið úr honum. Er hér með óskað eftir því að þeir sem áttu hlut að máli. Á það skal bent að í höllinni eru myndavélar sem væntanlega hafa tekið upp myndskeið þegar pokinn sem um ræðir var opnaður. Verða þær myndir skoðaðar á næstu dögum!

Annað í þessum áburðarmálum er að beitarþegar virðast líta á það sem sjálfsagðan hlut að þeir beitarnefndar menn sem sjá um að afhenda áburðinn stökkvi bara til þegar þeim hentar, þ.e. beitarþegunum, og afgreiði þeim áburðinn sem þeim ber. Auglýst var afhending á áburði tvo daga og þann þriðja, sunnudaginn 20. maí var undirritaður á staðnum ef einhverjum skyldi nú þóknast að sækja áburðinn. Örfáir komu og síðan er búið að stökkva til í nokkur skipti og afhenda nokkur korn. Ennþá eiga þó nokkrir eftir að sækja áburðinn og má gera ráð fyrir að klárað verði að afhenda þann áburð sem eftir er en síðan verði þeir sem eftir sitja að sjá um að afla sér áburðar á eigin spýtur og eigin kostnað.

Síðan á eftir að taka ákvörðun um það hvort þessari þjónustu verði ekki bara hætt og menn látnir alfarið sjá um þetta sjálfir. Er þetta sem hér að ofan er rakið gott dæmi um það þegar lítill hluti fjöldans, slóðarnir, verða þess valdandi að góðri þjónustu er hætt.

Valdimar Kristinsson

Okkur vantar veitingar á morgun sunnudag

Kæru Harðarfélagar. 

Á morgun er kirkjukaffi í reiðhöllinni og því biðum við til ykkar um veitingar. Okkur vantar flatkökur, pönnukökur, hjónabandssælu og fleira sem auðvelt er að borða af pappadisk. 

Tekið er á móti veitingum kl.12.00-12.30 á morgun sunnudag. 

Hringdu gæðingamót Harðar

Hringdu Gæðingamót og úrtaka fyrir Landsmót fer fram á Varmárbökkum 4. – 5. júní nk.

 

Fyrri úrtaka er á fimmtudeginum 2. júní og verða knapar að skrá sig sér á það mót EF þeir ætla fara báðar umferðir.  Í fyrri úrtöku er bara riðin forkeppni. 

 

Nánar...

NÁTTÚRUREIÐ HARÐAR 2016

NÁTTÚRUREIÐ HARÐAR - NÚ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ !!!!

Laugardaginn 28.mai verður Náttúrureið Harðar 2016.

Lagt af stað úr Naflanum kl 14:00.

Riðið verður upp að Hrafnhólum þar sem tekið verður á móti okkur með grillsteik og kranabjór.

Verð fyrir mat 3000 kr
Bjór á krana 1000 kr
Í fyrra fóru rúmlega 80 manns eigum við ekki að toppa það í ár!

Vinsamlega sendi nafn og fjölda vegna grillsins í síma 897 6764.
Hlökkum til að sjá ykkur,

Ferðanefnd Harðar.

KÆRU HARÐARFÉLAGAR - VEITINGAR Í KIRKJUKAFFIÐ

Kæru Harðarfélagar.

Nú vantar okkur veitingar fyrir kirkjukaffið sem verður sunnudaginn 29.maí n.k.

Kirkjukaffið verður haldið í reiðhöllinni.

Okkur langar því að biðja ykkur um pönnukökur, hjónabandssælu, flatkökur, skúffuköku og bara eitthvað sem auðvelt er að borða af pappadiski.

Tekið verður á móti veitingum kl.12.00 og svo í krikjukaffinu sjálfu sem er um kl.16.00.

ÆFINGAMÓT - GÆÐINGAKEPPNI

ÆFINGAMÓT - GÆÐINGAKEPPNI

Þá er að fara koma að æfingarmótinu okkar! Það er næstkomandi fimmtudag. Mótið hefst kl.17.00. Bara riðin forkeppni. Keppendur frá umsagnir um sitt prógramm. Skráning kr. 1.000 kr.

Skráning er hafin http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add ... Gæðingar-æfingarmótið er ætlað harðarfélögum!

KIRKJUREIÐ - KIRKJUKAFFI OG SÝNING TÖLTGRÚPPU HARÐARKVENNA

KIRKJUREIÐ - KIRKJUKAFFI - TÖLTGRÚPPU SÝNING - SUNNUDAGINN 29.MAÍ N.K.

Guðsþjónusta verður í Mosfellskirkju sunnudaginn 29. maí kl. 14:00.

Dagurinn er kirkjudagur og er guðsþjónustan unnin í samvinnu við Hestamannafélagið Hörð í Mosfellsbæ.

Ræðukona er Jóna Dís Bragadóttir formaður Harðar. Karlakórinn Stefnir syngur og organisti er Ragnar Jónsson. Sr. Arndís Linn þjónar fyrir altari.

Hópreið hestamanna verður bæði til og frá kirkju og að athöfninni lokinni bíður Hestamannafélagið í kirkjukaffi í Reiðhöllinni.

Lagt verður af stað úr Naflanum kl.13.00 og riðið upp að Mosfellskirkju

Í kirkjukaffinu ætlar Töltgrúppa Harðarkvenna að sýna glæsilegar töltslaufur sem þær hafa verið að æfa sl. mánuð.

Hlökkum til að sjá ykkur í kirkjureiðinni og kirkjukaffinu.

Guðsþjónustan er hluti af viðburðum í Hreyfiviku UMFÍ.

Nefndin

Uppfærð dagskrá fyrir sunnudag

Uppfærð dagskrá fyrir sunnudag

Sunnudagur
A-úrslit
10:00 Fjórgangur meistaraflokkur
10:30 Fjórgangur 1. flokkur
11:00 Fjórgangur ungmennaflokkur
11:30 Fjórgangur Unglingaflokkur
12:00 Fjórgangur barnaflokkur
12:30 Matarhlé
13:00 Fimmgangur meistaraflokkur
13:40 Fimmgangur 1. flokkur
14:20 Fimmgangur ungmennaflokkur
15:00 Fimmgangur unglingaflokkur
15:40 Tölt T1 meistaraflokkur
16:10 Tölt T3 1.flokkur
16:30 Tölt T3 2. Flokkur
16:50 Tölt T3 unglingaflokkur
17:10 Kaffi
17:40 100m skeið
18:20 Tölt T3 barnaflokkur
18:40 Tölt T2 meistaraflokkur
19:00 Tölt T2 1. Flokkur/unglingaflokkur
19:20 Tölt T7 2. Flokkur/unglingaflokkur
19:40 Tölt T7 barnaflokkur