PLASTGÁMUR Í DAG MIÐVIKUDAG KL. 16.00 - 19.00
- Nánar
- Flokkur: Fréttir
- Skrifað þann Miðvikudagur, maí 11 2016 09:50
- Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Í dag verður plastgámur við reiðhöllina kl.16.00 - 19.00. Eins og áður má bara plast fara í gáminn.
Í dag verður plastgámur við reiðhöllina kl.16.00 - 19.00. Eins og áður má bara plast fara í gáminn.
Fræðslufundur um reiðvegi og kortasjá hjá Hestamannfélaginu Herði þriðjudaginn 10 maí kl. 20.00 – 21.30.
Halldór H. Halldórsson og Sæmundur Eiríksson frá Samgöngunefnd LH ræða um reiðvegi og kynna
notkunarmöguleika í kortasjá reiðleiða fyrir undirbúning hestaferða.
Kveðja fræðslunefnd Harðar
Úrslit frá Hrímnismótinu FÉLAGSJAKKAR HARÐAR - GRÆNN OG SVARTUR
Á félagsfundi sem haldinn var í Herði 13.apríl sl. var samþykkt að félgsjakkar Harðar geti bæði verið svartir og grænir, hvít skyrta, rautt bindi, hvítar buxur og svört stígvél. Svarti jakkinn er ekki félagsjakki nema að Harðarmerkið sé saumað í brjóstið á jakkanum.
FORMANNSFRÚARKARLAREIÐ HARÐAR - ALLIR KALLAR VELKOMNIR
Nú er komið að hinni frábæru "Formannsfrúarkarlareið" Harðar sem farin verður í fjórða skiptið. Hún verður laugardaginn 14.maí n.k. Byrjað verður kl.8.00 á morgunverði í Harðarbóli þar sem borin verður fram "english brkfast" að hætti hússins. Síðan verður farið á Þingvelli og riðið í Hörð. Sameinast verður í kerrur og áætlað að leggja af stað frá Skógarhólum um kl.11.00. Búið er að fara leiðina á fjórhjóli og er hún í lagi. Boðið verður upp á veitingar á leiðinni og einnig verður boðið uppá að skipta um hesta, fyrir þá sem ekki vilja teyma. Að lokum verður hátíð í Harðarbóli, þar sem boðið verður upp á mjög glæsilegan kvöldverð, sem ekki hefur sést áður, alla vega ekki á þessum slóðum. Verð er 9.000kr. Hægt er að leggja inn á reikning: 549-26-4259 kt. 650169-4259 og senda staðfestingu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. HRÍMNISMÓTIÐ FÓR FRAM Í GÆR - ÚRSLIT.
Hrímnismótið okkar fór fram í gær í töluverðu roki á Varmárbökkum. Við þökkum keppendum og forráðamönnum þeirra kærlega fyrir komuna. Einnig viljum við þakka Hrímni fyrir frábær verðlaun sem gefin voru og janframt þökkum við þeim sem aðstoðuðu okkur á allan hátt á mótinu fyrir þeirra vinnu. Hlökkum til að sjá ykkur á Íþróttamóti Harðar eftir tvær vikur. Hér fyrir neðan eru úrslit mótsins: Nokkrir miðar eftir - verða seldir á morgun í reiðhöllinni
Hægt verður að kaupa þá fáu miða sem eftir eru á kótilettukvöldið á morgun í reiðhöllinni. Verðum það kl.11.00-12.00 og ef einhverjir verða eftir 14.00-17.00 í kaffihlaðborðinu. Það er nokkrir sem komast ekki á morgun en vilja endilega styrkja þetta góða málefni þ.e "stólasjóðinn". Því bjóðum við þeim að leggja inn á reikning félagsins 3.500kr.
549-26-4259 Kt. 650169-4259 FRÁBÆRT HRÍMNISMÓT VAR HALDIÐ Í GÆR Í HERÐI
Litla Hrímnisútimótið okkar breyttist í 15 klst. törn, þar sem um 140 skráningar voru á mótinu. Mótið tókst mjög vel þrátt fyrir mikið rok. Þegar líða tók á daginn var síðan komið hið "rómaða" logn á Harðarsvæðinu. Mótanefndin þakkar Hrímni fyrir stuðninginn við mótið og þau frábæru verðlaun sem þau gáfu. Einnig viljum við þakka knöpum og aðstandendum þeirra fyrir komuna og jafnframt öllum þeim sem aðstoðuðu á mótinu á einn eða annan hátt. Hlökkum til að sjá ykkur á íþróttamótinu hjá okkur eftir tvær vikur.
DAGSKRÁIN Í HERÐI UM HELGINA
Dagskráin um helgina í Herði. Laugardagur 7.maí. "Hlégarðsreið" ... kl.13.15 - Lagt af stað úr Naflanum og riðið á móti Fáksmönnum. Kaffihlaðborð í reiðhöllinni. Tekið á móti veitingum í reiðhöllinni kl. 11 - 12 Kótilettukvöld í Harðarbóli, royalbúðingur í eftirrétt Fjöldasöngur og myndasýningar Enn nokkrir miðar til sölu. Sendið tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða hringið í síma 8616691. Hægt er að leggja inn 3.500kr og senda staðfestingu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Reikningsnr. 549-264259 kt. 650169-4259 Formannsfrúarreið
NÚ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ! SKRÁNING Í FORMANNSFRÚARREIÐINA 2016 ER BYRJUÐ
Fleiri greinar...Undirflokkar |