Áminning : Fyrirlestur með Hinrik Sigurðsson næsta fimmtudag!

Vill minna á Fyrirlestur með Hinrik á Fimmtudagskvöld næstkomandi, kl 18. Frítt fyrir alla sem eru búin að skrá sig á keppnisnámskeið og æskilegt að allir sem ætla að vera með á keppnisnámskeið mætta. Opið öllum. Aðgangseyri er 500kr fyrir alla sem eru ekki skráð á Keppnisnámskeið.

Vertu uppá þitt albesta þegar á reynir!
Fyrirlestur með Hinrik Þór Sigurðsson, reiðkennari og þjálfari

• Hef ég getu og hæfileika til þess að ná árangri en á erfitt með að ná fram mínu albesta þegar á reynir? 
• Hvað stjórnar því að ég geri svona en ekki hinsegin? Sérstaklega í aðstæðum sem krefjast mikils af mér? 
• Get ég breytt því hvaða ákvarðanir ég tek og aðgerðum mínum í stressandi aðstæðum? 
• Gengur mér vel ef mér líður vel?

Svar JÁ

Hinrik Sigurðsson heldur fyrirlestra um mikilvægi hugarfarsþjálfunar og gefur góð ráð og verkfæri til þess að bæta árangur með réttu hugarfari. Hann talar um jákvæð samskipti, líkamstjáningu, stjórnun á stemningu, viðhorf og mikilvægi þess að búa til réttar forsendur til þess að ná árangri. Allt til þess að hver einstaklingur geti fundið sér markmið við hæfi, hvernig hann getur unnið markvisst að því að ná þeim og hvað þarf til.
Hinni hefur starfað sem reiðkennari í 15 ár víða um heim og hefur sérstakan áhuga á markmiðasetningu og hugarþjálfun íþróttafólks og heldur námskeið og fyrirlestra um efnið.

Fyrirlestur í Hardarboli.

Dagsetning: 4. Janúar 2018

Tíma: Kl 18.00 til sirka 19.00

Kostar: 500kr enn innifalið fyrir Þáttakendur á keppnisnámskeiðinu 2018

LYKLAR Í REIÐHÖLLINA!

Flestir búin að hafa samband til að endurnýja reiðhallarlykill enn þau sem eiga það eftir bið ég um að senda skilaboð eða email á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. 

Ef lyklar þurfa að vera opnast sem fyrst, hafið líka samband sem fyrst (fer að græja lyklar á miðvikudagskvöld)
Láta mig líka vita hvernig lykill óskað er eftir (8-23 / 8-16 / 16-23) og kennitala greiðanda.
Einnig hvort það á að opna lykillinn eða hvor þið þurfið nýjan (1000kr).
Fyrir þá sem vilja nýjan lykill: ég verð i reiðhöllina á miðvikudagskvöld kl 18 og opna lyklar þá.


Gjaldskrá:
Lykill 1 - Heill dagur kostar 15.000 kr á mánuði / 60.000 kr árið.
Lykillinn er opinn frá kl. 8.00-23.00

Lykill 2 - Hálfur dagur kostar 3.500 kr á mánuði / 12.000 kr árið.
Lykillinn er opinn frá kl.16.00-23.00 eða 08.00-16.00

13 ára og yngri fá frítt í höllina, en þurfa jafnframt að vera í fylgd forráðamanns.

70 ára og eldri borga hálft gjald eða 6000 kr..

Kv
Sonja

Jóla og áramotarkveðja frá Hestamannafélaginu Herði

Nú eru margir byrjaðir að taka hesta á hús og tilhlökkun mikil að fá gæðinga sina inn.

Viljum við minna á að taka tillit til hvors annars og hafa gaman af þessu yndislega sporti. Stöndum saman og höfum gaman !

Hestamannafélagið Hörður óskar öllum félagsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, takk fyrir góðar stundir á árinu sem er að líða.

Gamlársreið

Að venju verður riðið í Varmadal þar sem boðið verður upp á léttar veitingar á milli kl 12 og 14.

Sómahjónin Nonni Bobkat og Haddý taka á móti okkur og kunnum við þeim hinar bestu þakkir.  

Námskeið: Hóptímar fyrir kátar hestakonur

Námskeið fyrir kátar hestakonur verður á miðvikudagskvöldum í vetur:

Markmið að fræðast, læra fallega, uppbyggilega reiðmennsku og hafa gaman saman.

Á námskeiðiðinu verður lagt uppúr samspili knapa og hests, þjálni og einfaldar liðkandi æfingar. Hver hópur semur svo sitt prógram/munsturreið og hóparnir sýna svo hvor öðrum og gestum í lokin.

Hestamennska, hugmyndaríki, skemmtanagildi og góð músík.

Einnig verður fræðsla, sýnikennsla og gaman, saman.

Kennari: Súsanna Sand Ólafsdóttir

Fyrirlestur 4.janúar kl 20 eftir fyrirlestrinum hjá Hinna (Hvetja ykkur um að mæta þangað)

Synikennsla Mið 10.Janúar (Tímasetning auglýst síðar)

Verklegt kennsla byrjar 17.Janúar.

Harðarsýning verður Miðvikudag 4.Apríl 2018

Max. Þáttekendur eru 24 konur.

Skráningafrestur: 6 Januar 2018

Verð: 30 000 ISK

Skráning á :
skraning.sportfengur.com

Þá sem voru þegar búin að skrá sig á TG og vilja færa sig, hafið samband í skilaboð.