- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 05 2010 20:34
-
Skrifað af Super User
Kæru félagar.
Skráning er hafin á námskeið fyrir fullorðna í vetur. Í hverjum hóp verða 6 nemendur, ef færri en 5 skrá sig fellur námskeiðið niður. Fræðslunefnd áskilur sér rétt til breytinga og niðurfellinga á einstökum námskeiðum eftir atvikum. Það er því miður ekki hægt að festa daga og tíma fyrr en skráningu á einstök námskeið er lokið, en við hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst og láta þá fylgja athugasemdir eftir því sem við á. Leitast er við að hafa námskeiðin virka daga en eitthvað þarf líkast til að vera um helgar. Það gafst vel í fyrra.
Upplýsingar í síma gefur Margrét, 824 7059 eftir 17 á daginn, en skráning fer fram í gegnum tölvupóst og fyrirspurnum er einnig svarað þannig hjá umsjónaraðila hvers námskeiðs. Hafi greiðsla ekki borist fyrir tilskilinn tíma fellur skráning úr gildi.
Upplýsingar um Knapamerkin má finna á www.holar.is og skyldi fólk kynna sér þær.
Námskeiðin eru aðeins ætluð félagsmönnum í Herði, nýjum félögum tekið fagnandi.
Sjá námskeiðin í "lesa meira"
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 05 2010 18:20
-
Skrifað af Super User
Bóklegt knapamerkjapróf verður haldið í félagsheimili Gusts þann 9. janúar nk. kl. 12 og er prófið öllum opið. Búið er að opna fyrir skráningu á heimasíðu Gustara www.gustarar.is undir liðnum Skráning. Prófgjaldið er 1.500 kr. og skráning er ekki gild nema að greiðsla hafi borist. Skráningfrestur er til miðnættis 6. janúar nk.
Einnig stendur til að vera með verklegt stöðupróf í knapamerkjunum í Gusti þann 14. janúar nk. og er búið að opna fyrir skráningu í það líka, verð kr. 3.000.- Nánari tímasetning auglýst þegar skráning liggur fyrir.
Til að skrá sig í annað hvort prófanna þarf að smella á liðinn Skráning á www.gustarar.is og velja viðeigandi próf. Ganga þarf frá greiðslu samhliða til að skráning sé staðfest.
ATH! Bæði prófin eru öllum opin, þ.e. félagar í öðrum hestamannafélögum geta líka skráð sig til þátttöku.
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Fimmtudagur, apríl 09 2009 08:10
-
Skrifað af Super User
Nú eru reiðnámskeið fyrir fullorðna að fara af stað aftur.
Almennt reiðnámskeið.
Kennt á sunnudögum og hefst 19. apríl, lýkur 7. júní. Kennari er Súsanna Ólafsdóttir. Námskeið sem miðar að því að gera hestinn betri, að bæta ásetu og stjórnun, grunn fimiæfingar. Verð er 12.000 krónur 8 skipti fyrir skuldlausa Harðarfélaga, 18.000 fyrir aðra. Skráning hjá Helenu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og í síma 699 2797 til og með 16. apríl. Þeir sem eru á biðlista nú þegar eru beðnir um að staðfesta þátttöku.
Skeiðnámskeið.
Kennt á virkum dögum og byrjar í maí, kennt úti á velli. Kennari er Reynir Örn Pálmason. Skiptist í einn bóklegan tíma og fjóra verklega. Ætlað þeim sem hafa áhuga á að ríða skeið og byggja hestinn sinn rétt upp til þess. Verð 7000 fyrir skuldlausa Harðarfélaga, 10.000 fyrir aðra. Skráning hjá Margréti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og í síma 824 7059. Haft verður samband við þá sem þegar voru skráðir.
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Fimmtudagur, mars 26 2009 13:57
-
Skrifað af Super User
"Íslensk reiðhefð, hvert stefnum við?"
Anton Páll Níelsson þjálfari, reiðkennari og fyrrum kennari við háskólann á Hólum verður með fyrirlestur í Harðarbóli fimmtudaginn 26.mars. Fyrirlesturinn hefst stundvíslega klukkan 20.00. Aðgangseyrir er 500 krónur, börn og unglingar (að 16 ára) fá frítt. Kaffi og létt meðlæti í boði. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir, innan félags sem utan. Fræðslunefnd Harðar.
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Þriðjudagur, mars 17 2009 21:39
-
Skrifað af Super User
"Íslensk reiðhefð, hvert stefnum við?"
Anton Páll Níelsson þjálfari, reiðkennari og fyrrum kennari við háskólann á Hólum verður með fyrirlestur í Harðarbóli fimmtudaginn 26.mars. Fyrirlesturinn hefst stundvíslega klukkan 20.00. Aðgangseyrir er 500 krónur, börn og unglingar (að 16 ára) fá frítt. Kaffi og létt meðlæti í boði. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir, innan félags sem utan. Fræðslunefnd Harðar.
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Miðvikudagur, mars 05 2008 12:37
-
Skrifað af Super User
Fimmtudaginn 6. mars næstkomandi mun hinn geðþekki hestamaður Einar Öder halda fyrirlestur um gangtegundir og reiðmennsku. Fyrirlesturinn verður í Harðarbóli, er öllum opinn og hefst kl.20.00. Aðgangur er ókeypis og léttar veitingar í boði.
Fræðslunefnd.
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Mánudagur, febrúar 02 2009 12:19
-
Skrifað af Super User
Enn eru laus pláss á námskeið fyrir fullorðna. Annars vegar á námskeiðið Kjarkur og hins vegar á almennt reiðnámskeið. Þessi námskeið eru kennd um helgar. Nánari upplýsingar veitir Margrét, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. s. 824 7059. Námskeiðin byrja um næstu helgi svo hafa verður hraðar hendur, ekki er um mörg pláss að ræða.
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Fimmtudagur, febrúar 28 2008 12:03
-
Skrifað af Super User
Fimmtudaginn 6. mars næstkomandi mun hinn geðþekki hestamaður Einar Öder halda fyrirlestur um gangtegundir og reiðmennsku. Fyrirlesturinn verður í Harðarbóli, er öllum opinn og hefst kl.20.00. Aðgangur er ókeypis og léttar veitingar í boði.
Fræðslunefnd.
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Þriðjudagur, mars 25 2008 21:35
-
Skrifað af Super User
Eins og til stóð verður boðið upp á námskeið 2 í knapamerkjakerfinu fyrir fullorðna. Námskeiðið hefst í næstu viku og er skilyrði fyrir skráningu á það að hafa lokið knapamerki 1 og hafa hest sem hentar til námsins. Allar upplýsingar um knapamerkjakerfið má finna á heimasíðu Hólaskóla, www.holar.is.
Þeir sem hyggjast nýta þetta námskeið hafi samband við Mariönnu í síma 895 9448 eða á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. í síðasta lagi föstudaginn 28. mars.
Fræðslunefnd Harðar
- Nánar
-
Flokkur: Fræðslunefnd
-
Skrifað þann Laugardagur, janúar 19 2008 23:13
-
Skrifað af Super User
Hinn þekkti hestamaður Erling Sigurðsson heldur keppnisnámskeið eingöngu ætlað konum. Námskeiðið er 8 skipti og kostar 15.000 fyrir skuldlausa Harðarfélaga, 20.000 fyrir aðrar. Í lok námskeiðs taka konurnar þátt í hinu árlega kvennatölti Gusts.
Samhliða verður almennt reiðnámskeið fyrir fullorðna. Námskeiðið er 8 skipti og kostar 15.000 fyrir skuldlausa Harðarfélaga, 20.000 fyrir aðra. Kennt verður eftir hádegi á sunnudögum og hefjast námskeiðin 3. febrúar.
Takmarkaður fjöldi kemst að, fyrstir koma fyrstir fá.
Skráning og upplýsingar hjá Helenu Jensdóttur 699 2797 This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. til og með mánudagsins 28. janúar.