Hestheimaferð frestað vegna veðurs

Um helgina er gert ráð fyrir mjög slæmu veðri og þá sérstaklega á föstudag og laugardag. Því hefur æskulýðsnefndin tekið þá ákvörðun að fresta æfingarferð keppnisnámskeiðs til Hestheima sem fara átti í dag og verða til sunnudags. Verið er að vinna að því að finna lausn til að bæta upp þessa kennslutíma. Ekkert hefur verið ákveðið en það verður birt hér á vefinum um leið og niðurstaða er ljós.

Þessi mynd er tekin af vedur.is og sýnir hvernig lægðin verður um miðnætti í kvöld föstudag 08.febrúar 2008.