Þakkir til þeirra sem mættu á nefndarkvöldið

Á laugardagskvöldið var nefndarkvöld hjá Hestamannafélaginu Herði.  Þangað er boðið þeim nefndum sem starfa fyrir félagið á næsta starfsári ásamt þeim sjálfboðaliðum sem ekki eru í nefndum en hafa starfað sl. ár. Stjórn Harðar vill þakka þeim Harðarfélögum sem mættu á nefndarkvöldið og þáðu glæsilegar veitingar sem Hólmfríður Halldórsdóttir - Fríða okkar - töfraði fram ásamt fríðum flokki kvenna, þeim: Gunný, Maríu Elfars. Huldu Kolbeinsdóttur og Valgerði Jónu. 

Stjórn Hestamannafélagsins Harðar.

Frumtamninganámskeið

Minni á að það er frumtamninganámskeið í höllinni (innri helming) í kvöld 25.nóv frá kl 17:30- 20:30. Morgun 26.nóv sami tími og á fimmtudaginn sami tími.

 

Fræðslunefnd.

Keila – Frítt fyrir börn, unglinga og ungmenni í Herði

Nú hitum við upp fyrir veturinn og skemmtum okkur saman í Keiluhöllinni í Egilshöll, þriðjudaginn 26. Nóvember. Frítt fyrir börn, unglinga og ungmenni í Herði. Athugið aldursskiptingu hér neðst.
Kynntar uppákomur fram að áramótum og leitað eftir krökkum í barna-, unglinga- og ungmennaráðin sem aðstoða/ráðleggja æskulýðsnefnd í skipulagningu viðburða í vetur fyrir þeirra aldurshóp.
Þeir sem ætla að mæta verða að skrá sig á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir hádegi á mánudaginn 25. nóv
Hlökkum til að sjá ykkur J

Aldursskipting: 
Polla og barnaflokkur (fædd 2001 eða síðar) kl. 18:00 – 19:00
Unglingaflokkur (fædd 1997 – 2000) kl. 19:00 – 20:00
Ungmennaflokkur (fædd 1993 – 1996) kl. 20:00 – 21:00

Aðalfundur Hestamannafélagins Harðar verður haldinn í Harðarbóli 7.nóv. nk.

Nú ættu allir félagsmenn Hestamannafélagsins Harðar að vera búnir að fá fundarboð vegna aðalfundarins sem haldinn verður 7.nóvember nk. í Harðarbóli.

Fundurinn hefst kl.20.00

1. Venjuleg aðalfundarstörf.

2. Önnur mál.

Stjórn Hestamannafélagsins Harðar.

Takk fyrir komuna á aðalfund Harðar.

Stjórn Hestamannafélagins Harðar þakkar öllum þeim sem komu á aðalfund félagsins sl. fimmtudag fyrir komuna á fundinn.  Stjórnin vill þakka fráfarandi stjórnarkonum þeim Gyðu Á. Helgadóttur og Auði Sigurðardóttur fyrir vel unnin störf fyrir félagið. Jafnframt vill stjórnin þakka Marteini Magnússyni fyrir frábæra fundarstjórn og öllum þeim sem komu að undirbúningi fyrir aðalfundinn. Nýjir stjórnameðlimir eru boðnir velkomnir en það eru þau Oddrún Ýr Sigurðardóttir og Haukur Níelsson.

Stjórn Hestamannafélagsins Harðar.

Stjórnarfundur 15.10 2013

Stjórnarfundur í Herði 15. október 2013.

Mættir: Jóna Dís, Ragnhildur, Gyða, Ólafur, Alli, Gylfi og Gunnar

1. Fundargerð síðasta fundar lesin upp og samþykkt.

2. Ragnhildur lagði fram drög að ársreikningi fyrir 2012 en eftiri var að setja hann upp sem og samanburð við 2011. Níu mánaða uppgjörið fyrir 2013 verður tilbúið og lagt fram fyrir aðalfund. Skoðunarmenn verða boðaðir 29. okt.

3. Reiðhöllin og umhverfi

-          Gunnar gerði grein fyrir fundi með Þorsteini frá Bænum og Jóa Odds varðandi framkvæmdir austan við reiðhöll. Fram kom að bærinn hefur fjármagn á næsta ári í framkvæmdina. Jói mun fara í verkið fljótlega. Áætlað er að framkvæma fyrir 2,5milljónir fyrir áramót. Hægt verður að greiða þann hluta út félagssjóðum til að brúa bilið þar til greiðslur koma frá bænum.

-          Gunnar lagði fram tillögu um að semja við Halla í GK-gluggum um smíði þularstúku. Tilboð hans hljóðar upp á að smíða og setja upp glugga, gler, þak og hurð í svipuðum dúr og annað timburverk auka þess að vinna efni (sem félagið leggur til) í vegglokun sem áætlaður er til að loka milli hesta og áhorfenda milli skábrautar og austurgafls. Fyrir verkið verður greitt með skúrnum sem er inni í reiðhöll núna. Áætlaður kostnaður við verkið er 400 til 450 þúsund. Tillagan var samþykkt og verður verkið unnið fyrir 9. des. Gyða vék af fundi á meðan þessi tillaga var rædd og afgreidd.

-          Gunnar hafði samband við Hýsi vegna leka með þakgluggum sem hefur borið mikið á í sumar og haust. Guðbjartur Halldórsson er sá starsmaður hjá Hýsi sem sér um byggingamál. Hann sagði að hann myndi kalla til mennina sem sáu um uppsetningu hússins og greina vandamálið.

4. Almenns félagsfundar var haldin í Harðarbóli 10. okt. sl. Um 25 mjög áhugasamir félagsmenn mættu á fundinn þar sem ræddar voru ýmsar hugmyndir að innra starfi félagsins. Minnispunktar frá fundinum verða sendir nefndum síðar.

5. Önnur mál

  1. Ákveðið að boða stjórn 8-viltra á fund til að ræða áhuga þeirra á því að stækka Harðarból. Fundurinn verður 21. okt nk.

Næsti stjórnarfundur verður 29.okt. 2013

Fundaritari Gunnar Örn

Hugmyndir sem fram komu á hugarflugsfundinum sem haldinn var í Harðarbóli 10.okt. sl.

Hér fyrir neðan eru þær umræður sem spunnust á fundinum og verður reynt að vinna sem mest úr þeim í nefndum félagsins. Það er margt á döfinni í félaginu og nefndir eru að undirbúa starfið fyrir komandi vetur og nokkuð af þeim tillögum sem hér eru nefdar, eru þegar komnar á dagskrá.

Nánar...