Uppskeruhátíð 2009

Hæ öll.

 

Nú hefur verið ákveðið að uppskeruhátíðin okkar verði hluti af hátíðardagskrá vegna vígslu reiðhallarinnar. Þið eruð því öll hvött til að mæta og njóta dagsinns. Það verður margt til skemmtunar auk veitinga og veittar verða viðurkenningar fyrir bestan árangur í öllum flokkum í keppni á árinu auk viðurkenninga fyrir knapamerkin. Dagskráin hefst kl 16 á laugardaginn.

 

 Kv Æskulýðsnefndin

Íslandsmót - skráningu lýkur í kvöld

Minnum á að lokafrestur hestamannafélaga til að skila inn skráningum á íslandsmóti yngri flokka rennur út á miðnætti í kvöld 15. júní 2009.

Hvert hestmannafélag fyrir sig sér um skráningu og óskum við eftir því að hvert félag skrái sína þátttakendur í Sportfeng mótanúmerið er IS2009HORO57.

Skráningargjöld eru 3.500 kr.- á grein. 

Skráningargjöld á að leggja inn á reikning 549-26-2320. KT 650169-4259 í einni greiðslu.

Vantar sjálfboðaliða fyrir Íslandsmót

Okkur vantar sjálfboðaliða til að sinna hinum ýmsu verkefnum á Íslandsmóti yngri flokka sem haldið verður dagana 25.-28. júní nk. Á fimmtudeginum og föstudeginum verður líklega byrjað um hádegi og allan daginn laugardag og sunnudag. Reynt er að setja fólk á vaktir og dreifa þannig álagi á margar hendur. Hvetjum við alla konur, kalla, börn og ungmenni að gera þennan viðburð skemmtilegan, eftirminnilegan og félaginu okkar til sóma. Sendið póst á Bryndísi á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Skráning gengur vel fyrir Íslandsmót yngri flokka

María GyðaHestamannafélögin eru í fullum gangi með skráningu á Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna sem fram fer dagana 25.-28.júní nk.
 
Þátttaka er mjög góð og stefnir í metþátttöku, ef fer sem horfir. Harðarmenn eiga því von á miklum fjölda fólks í Mosfellsbæinn mótsdagana. 

Nánar...

Keppnisnámskeið - FRÍ

Þá er fyrsta stórmótinu okkar lokið í frábæru veðri og með góðri þáttöku ykkar. Kennararnir hafa ákveðið að gefa ykkur frí eftir þessa törn og fella niður tímana í kvöld, mánudag og á morgun, þriðjudag en byrja svo af krafti í næstu viku við undirbúning fyrir gæðingamótið.


Kveðja. Æskulýðsnefndin.

Fjölskyldureið

Á sunnudaginn var farið í hina árlegu fjölskyldureið og var ferðinni heitið að Hraðastöðum til Badda og Nínu.  Þar var grillað og snætt ásamt því að hin ýmsu húsdýr voru skoðuð og vöktu mikla lukku hjá þeim yngri. Veðrið var með ágætum og þáttakan var góð, um 30 manns.  Takk fyrir samveruna og daginn.

 

Æskulýðsnefnd