- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Miðvikudagur, maí 07 2003 12:00
-
Skrifað af Stjórn og ferðanefnd
Kæru félagar!
Fáksmenn eru væntanlegir í heimsókn laugardaginn 10. maí. Að venju leitum við til ykkar með kökur og brauð á veisluborðið. Takið nú fram skálar og sleifar og töfrið fram kræsingar á hlaðborðið svo það megi verða jafn veglegt og hefð er fyrir.
Bakkelsinu má koma í Harðaból milli 12 og 14 á laugardaginn.