- Nánar
-
Flokkur: Aðsent
-
Skrifað þann Þriðjudagur, ágúst 11 2009 16:22
-
Skrifað af Aðsent
Loksins er búið að opna sér Íslenskan myndbanda, samskiptavef
sem er sérhannaður fyrir hestaheiminn. Vefurinn ber nafnið www.hofapressan.is og
er að öllu leiti frír. Í stað þess að upploda myndböndum (video) inn á Youtube
eða sambærilega vefi þar sem hestamyndböndin (videoin) hreinlega tínast í allri
myndbandaflórunni þá er Hófapressan lausnin. Allir netþjónar/serverar
Hófapressunnar eru hýstir hér á landi sem gerir vefinn mjög hraðvirkan bæði í
áhorfi og svo ekki sé talað um (upload) á myndböndum.
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Aðsent
-
Skrifað þann Föstudagur, maí 29 2009 20:40
-
Skrifað af Aðsent
Lífland og LH hafa tekið höndum
saman og hrundið af stað fjáröflun fyrir landsliðið okkar sem keppir í Sviss í
ágúst. Bolir hafa verið hannaðir og prentuð á þá númer sem dregið verður úr
þegar landsliðið verður formlega kynnt í júlí.
Vinningarnir eru hinir
glæsilegustu m.a flugferð til Evrópu með Iceland Air, einkatímar hjá
reiðkennurum, fataúttektir í Líflandi að verðmæti 20.000, fóður, hestabækur,
bíómiðar, reiðtygi og ótal margt fleira. Sala á bolunum hefst á
Reykjavíkurmeistaramóti Fáks sem fram fer nú um helgina. Bolirnir verða meðal
annars seldir í verslunum Líflands í Reykjavík og á Akureyri, í versluninni
Baldvin og Þorvaldur á Selfossi og Knapanum í Borgarnesi.
Kveðja, starfsfólk
Líflands