Tjaldstæði á Landsmóti fyrir keppendur

Þeir keppendur Harðar sem hafa áhuga á að fá pláss fyrir hestinn sinn með aðliggjandi tjaldstæði þurfa að hringja í síma 5144030. Hér gildir reglan "því fyrr því betra". Hugsunin er svo að reyna að haga því þannig að allir keppendur verði á sama svæðinu með hestana sína. En til þess að það megi vera þarf hver keppandi að hringja inn og panta fyrir sinn hest.

Harðar gallar - Landsmót

Sæl Þeir sem hafa áhuga á að kaupa sér Harðar íþróttagalla þurfa að máta og panta hjá Jako heildsölunni í Kjarnanum. Pöntun þarf að staðfesta í síðasta lagi föstudaginn 11. júní nk.

Fleiri stóðhestar

Það bætast væntanlega fleiri stóðhestar á húsnotkunarlistann næstu daga . Hafið samband við undiritaðan eða Friðþjóf ef þið viljið vera með .

Stóðhestar falir til notkunar á húsi á félagsvæði Harðar vor

Stóðhestar falir til notkunar á húsi á félagsvæði Harðar vorið 2004 Bjarmi frá Mosfellsbæ IS 2001125140 Rauður F: Markús frá Langholtsparti M: Blesa frá Hellu Eig. Runólfur Smári Steinþórsson Flugubakki 10 s: 897-1914 Fontur frá Feti IS 1997186925 F: Roði frá Múla M: Vigdís frá Feti Dómur: B: 7.85 , H: 8.42 , Ae: 8,19 Eig: Þórhallur Dagur Pétursson Blíðubakki 3 s: 692-1030 Óttar frá Hvítárholti IS 1997188247 Móbrúnn F: Gustur frá Grund M: Ótta frá Hvítárholti Dómur : B: 7.85 H: 8.50 A: 8.24 Eig. Súsanna og Guðmundur Funabakki 2 s: 898-3808 og 892-6702 Snjall frá Síðu IS 1997155266 Brúnskjóttur F: Galdur frá Sauðárkróki M: Perla frá Sauðárkróki Eig: Þorbjörn í Hindisvík s: 891-2388 Stígandi frá Leysingjastöðum IS 1996156333 Brúnn F: Andvari frá Ey M: Dekkja frá Leysingjastöðum Dómur : B: 8 H: 8.45 A: 8.27 Eig: Elías Þórhallsson s: 898-1028 Vestri frá Hörgshóli IS 1997155310 Brúnn F: Kappi frá Hörgshóli M: Fagra-Brúnka frá Hörgshóli Dómur : B: 7.96 H: 7.53 A: 7.7 Eig: Þorkell Traustason s: 896-6743 Ymur frá Reynisvatni IS 2002125165 Jarpur F: Orri frá Þúfu M: Ilmur frá Reynisvatni Eig: Valdimar Kristinsson Skuggabakki 6 s: 896-6753

Harðarfélagar athugið

Eru ekki einhverjir gamlir sem ungir Harðarfélagar tilbúnir í að hjálpa honum Úlfari (Úa)Guðmundssyni í sjoppunni í Harðarbóli þegar mót eru í gangi. Áhugasamir hafið endilega samband sem fyrst við Úlfar í síma 891-7414.

KVENNAMÓT - KVENNAKVÖLD

Hallgerður Langbrók auglýsir: LANGBRÓKARMÓT á Harðarvöllum 15. maí 2004 kl. 15:00 Keppt verður í 5 flokkum; · lulli á hringvelli · brokki á beinni braut · boðreið á beinni braut · kappreiðum · bjór-tölt-kappreið Kvennakvöld Langbrókar hefst strax að loknu móti í Harðarbóli ALLUR ÁGÓÐI AF MÓTINU OG KVENNAKVÖLDINU RENNUR ÓSKIPTUR TIL REIÐHALLARBYGGINGAR Á HARÐARSVÆÐINU Hver verður “Langbrók” ársins? Diskótekið Dísa sér um fjörið Grillvagninn mætir, a la lamb og svín Eurovision á skjávarpa - pakkauppboð - hver miði gildir sem happdrættismiði - húsið opnar eftir kl 23:30 Verð; 2900 kr Miðapöntun í síma; 8227730 / 566-8258 Eða á; This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Undirbúningur fyrir íþróttakeppni og alm. reiðnámskeið

Reiðnámskeið verður haldið á félagssvæði Harðar nú í maí. Kennari verður Eysteinn Leifsson. Aðeins 4 nemendur í hóp, en skipt verður í hópa eftir þörfum hvers og eins, og því hvort nemendur hafi áhuga á aðstoð við undirbúning undir keppni eða almennt reiðnámskeið. Gert er ráð fyrir að kennt verði á föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Alls verður kennt í 8 skipti og er verð til félagsmanna kr 10.000, en 12.000 til utanfélagsmanna. Þeir sem hafa áhuga skrái sig á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. (eða í síma 566-8778), og komi í félagsheimilið Harðarból á fimmtudaginn 6. mars kl 19:00, þar sem skipt verður í hópa og gengið verður frá greiðslum Fræðslunefndin