Opið fyrir umsóknir í Reiðmanninn!
- Nánar
- Flokkur: Aðsent
- Skrifað þann Þriðjudagur, júní 14 2011 10:43
- Skrifað af Super User
Fjölmargar umsóknir hafa borist í Reiðmanninn sem hefst næstkomandi haust, þó þeim sé misskipt á milli staða sem auglýstir hafa verið, þ.e. Hvammstanga, Hellu og í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Þar sem fólk hefur verði nokkuð upptekið á úrtökumótum og í hrossastússi, höfum við ákveðið að framlengja umsóknarfrestinn út júní í Reiðmanninn. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar eru á vefnum www.lbhi.is/namskeid undir Reiðmaðurinn í vinstri stiku. Endilega vísið áhugafólki og félögum á þetta, og komið á framfæri þessari seinkunn á umsóknarfresti.
Þeir sem nú þegar hafa sótt um í Reiðmanninn, mega gera ráð fyrir því að fá svör um inngöngu fyrir miðjan júlí ef allt gengur eftir.
Af heimasíðu:
Reiðmaðurinn
Námskeiðsröð fyrir áhugafólk um reiðmennsku
Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, í samvinnu við Landssamband
hestamannafélaga og Félag hrossabænda, opna nú fyrir nýja námshópa í
áfangaskipt tveggja ára nám í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi.
Námið sem kallast Reiðmaðurinn má taka með vinnu og er hugsað
fyrir áhugafólk eldra en 16 ára sem hefur áhuga á að bæta sína reiðmennsku og
þekkingu á hrossarækt. Verkleg kennsla fer fram ca. eina helgi í mánuði frá
september og fram í apríl. Bóklegt nám er tekið samhlið í gegnum námsvef
skólans.
Námið er byggt upp sem röð af helgarnámskeiðum þar sem
nemendur koma einu sinni í mánuði með sinn hest og taka fyrir ákveðinn hluta af
reiðmennskunni. Einnig er farið yfir bóklegt efni í fyrirlestrum og með
fjarnámi. Hér er því um sambland af staðarnámi og fjarnámi að ræða þar sem
ætlast er til að nemendur undirbúi sig bæði í verklegum og bóklegum atriðum
heima.
Námið er metið til samtals 33 ECVET-eininga á
framhaldsskólastigi og lýkur námskeiðsröðinni með sérstakri viðurkenningu frá
Landbúnaðarháskóla Íslands. Námið er unnið í samvinnu við Landssamband
hestamannafélaga og Félag hrossabænda.
Verkefnisstjóri námsins fyrir hönd Endurmenntunar LbhÍ
er Ásdís Helga Bjarnadóttir, að faglegri uppbyggingu námsins
koma Reynir Aðalsteinsson og Þorvaldur Kristjánsson.
Nánari lýsing á náminu