- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Mánudagur, nóvember 23 2009 11:30
-
Skrifað af Super User
Kæru félagsmenn og aðrir hátíðargestir sem fögnuðu með okkur á vígsluhátíð reiðhallarinnar. Þetta var mikil gleði stund sem mun sitja lengi í hugum okkar allra. Ég við þakka öllum þeim fjölmörgu gestum sem mættu til veislu og þeim sem komu að vinnu við hátíðina, undirbúning, skipulag, matseld og öðru, allt auðvita sjálfboðaliðar.
Einnig vil ég þakka þann hlýhug sem fylgdi blómum og gjöfum ýmiskonar frá hestamannafélögunum hér í kringum okkur og öðrum velunnurm félagsins.
Blómvendirnir prýddu hér reiðhöllina á meðan á hátíðinni stóð og voru síðan fluttir upp á elliheimili þar sem þeir gleðja eldri borgara samfélagsins áfram. Einnig fórum við með þann veislumat sem afgangs var upp á elliheimili.
Töluvert safnaðist í baukinn fyrir Barnaspítala hringsins og þökkum við þeim sem þar stungu að aur.
Nú eigum við reiðhöll, en það er ekki til neins nema hún sé notuð og vona ég að bæði nefndir félagsins og sem flestir félagsmenn nýti sér þá möguleika sem hún bíður upp á.
Mér skils að nýja hljóðkerfið í reiðhöllinni hafi ekki verið rétt stillt og að erfitt hafi verið að heyra það sem sagt var úr ræðupúltinu. Ég setti því ræðuna inn hér að neðan fyrir þá sem vilja lesa hana.
Kveðja, Guðjón formaður
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Mánudagur, nóvember 23 2009 11:06
-
Skrifað af Super User
Kæru
félagsmenn, alþingismenn, bæjarstjóri, bæjarráð, Íþrótta- og tómstundaráð,
skipulags og byggingarnefnd, Guðni Ágústsson og aðrir hátíðargestir,
Ég vil
bjóða ykkur öll velkomin á þessa hátíðarstund hjá okkur í Hestamannafélaginu
Herði sem markar þau tímamót að nú eigum við glæsilegustu reiðhöll
landsins. Þetta er stórt mannvirki,
stærsta reiðhöllin sem er eingöngu reiðhöll, 80 x 30 metrar, eða 2400 m2 og með
stærsta reiðsvæðinu.
Ég tel
mig hafa grafið upp hvenær fyrst var stungið upp á því að hér yrði byggð
reiðhöll, en það virðist hafa verið gert á stjórnarfundi hér í Herði árið
1995. Þá kom þáverandi varaformaður
félagsins með þá hugmynd að byggja reiðhöll og var að eigin sögn kallaður
hálfvit og vitleysingur að ætla að ríða út inni í húsi. Þrátt fyrir þessa niðurlægingu tók hann þetta
upp á næsta LH þingi, svona sem hugmynd,
það lá við að honum yrð hent út af þinginu.
Einn þingmanna sneri sér þá að honum og sagði honum til huggunar að
allar nýjar góðar hugmyndir tækju tíu ár.
Og það er ekki fjarri lagi.
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Sunnudagur, nóvember 15 2009 22:24
-
Skrifað af Super User
Loksins, loksins er reiðhöllin að verða tilbúin.
Á síðastliðnum 6-7 vikum hefur harðduglegum Harðarmönnum og -konum tekist að innrétta reiðhöllina okkar á smekklegan og snyrtilegan hátt. Þetta mikla verk hefur að langmestu leiti verið unnið í sjálfboðavinnu og til að fagna þessum merka áfanga ætlum við að slá til veglegrar veislu sem verður haldin í reiðhöllinni. Það er von okkar að sem flestir Harðarmenn sjái sér fært að mæta.
Vígsluhátíðin verður haldin laugardaginn 21. nóvember nk kl. 16.00. Boðið verður upp á léttar veitingar og skemmtilegar uppákomur.
Boðskort mun í næstu viku berast til allra félagsmanna sem og til sérstakra boðsgesta.
Þá er ekkert eftir nema taka daginn frá
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Miðvikudagur, júlí 01 2009 11:53
-
Skrifað af Super User
Kæru félagar,
Formaður og aðalstjórn félagsins vill þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd nýafstaðins Íslandsmóts fyrir frábæra frammistöðu. Mótið var til fyrirmyndar og félagi okkar til mikils sóma.
Með kveðju,
Stjórnin
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Miðvikudagur, mars 18 2009 11:09
-
Skrifað af Super User
Þá er runninn upp sá langþráði viðburður að fyrstu gámarnir með reiðhöllinni eru komnir á staðinn. Um er að ræða stálgrind hússins sem verður reyst nú á næstu vikum.
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Fimmtudagur, janúar 29 2009 10:45
-
Skrifað af Super User
Frá
og með miðvikudeginum 28.jan 2009 verður unnið við sprengingar vegna vinnu við
mislæg gatnamót við Leirvogstungu og Tungumela. Ætla má að sprengivinnan
taki 3 – 4 mánuði. Þegar sprengt er, verður það milli kl 10 og 16.
Fyrir sprengingar verða gefin hljóðmerki og aftur að sprengingu
lokinni. Hljóðmerkjum verður þannig háttað að 30 sek fyrir sprengingu
verður gefið slitrótt hljóðmerki. Að lokinni sprengingu verður gefið
samfellt hljóðmerki í 30 sek. Fyrir sprengingar verður umferð í
námunda við vinnusvæðið lokað. Það verður gert með því að loka umferð á
Hringveginum, á tengivegi úr Leirvogstungu að núverandi hringtorgi og á
Fossavegi.
Titrings kann að verða vart vegna sprenginganna í næsta nágrenni. Ef þú
hefur einhverjar ábendingar vinsamlegast hafðu samband við öryggisstjóra
verksins, Trausta Bjarnason, sem jafnfram er verkstjóri jarðvinnu í síma 840
7581.
Nokkuð var sprengt í Leirvogstungu í fyrra og að því best er vitað olli það
ekki truflun meðal hestamanna, þessar sprengingar eru talsvert fjær, austan
Vesturlandsvegar. Þó er rétt að tilkynna það hér með. Ónæði gæti einna helst
verið á reiðveginum frá brúnni yfir Leirvogsá, upp að gömlu brú og því er gott
að hafa hljóðmerki sem hér er að framan nefnt í huga, þegar riði er þá leið.
Með fyrir fram þökkum og von um gott
samstarf. Bjarni Guðmundsson
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Miðvikudagur, mars 11 2009 11:07
-
Skrifað af Super User
Lokakeppni í Bikarkeppni hestamannafélagana á höfuðborgarsvæðinu verður í reiðhöllinni í Víðidal föstudaginn 13.mars. Harðarfélögum hefur gengið vel í keppninni og hvetum við alla félagsmenn til að mæta og hvetja okkar fólk. Til að allir félagsmenn hafi aðgang að því að mæta höfum við ákveðið að standa fyrir rútuferð fram og til baka frá Harðarbóli. Lagt verður af stað kl. 19.30 og komið til baka um 22.30.
Stjórnin
PS. mætum með potta og sleifar og látum heyra í okkur til stuðnings okkar fólki.
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Mánudagur, janúar 26 2009 11:23
-
Skrifað af Super User
Árshátíð Harðar verður haldin þann 28. febrúar. Fyrsta vetrarmótið sem auglýst var í mótaskrá þann 21. febrúar færist því aftur um eina viku og verður þann 28. febrúar, enda árshátíðarmót.
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Miðvikudagur, febrúar 11 2009 15:03
-
Skrifað af Super User
Reiðmenn eru beðnir að hafa varann á þegar riðið er nærri Köldukvísl þegar fer að þiðna á morgun og um helgina. Það er mikill ís í ánni og viðbúið að hún flæði yfir bakkana við hesthúsahverfið þegar þiðnar. Þá er hætt við rofi í reiðveginn sem getur verið varasamt þegar fer að skyggja. Áhaldahúsið sér síðan um viðgerðir á reiðveginum þegar um hægist í rennslinu.
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 20 2009 15:12
-
Skrifað af Super User
Brotist hefur verið inn í nokkur hesthús undanfarna daga. Hestamenn eru beðnir að vera vel vakandi, læsa húsum sínum og láta lögreglu vita ef þeir verða varir við óeðlilegar mannaferðir.