- Nánar
-
Flokkur: Æskulýðsnefnd
-
Skrifað þann Föstudagur, janúar 13 2012 22:45
-
Skrifað af Super User
Námskeið á vegum Æskulýðsnefndar Harðar sem eru nú að byrja í viku 3 og 4 í janúar.
Keppninsnámskeið/ásetuæfingar
Mánudagurinn 16. janúar (sjá tímasetningar á Facebook síðu keppniskrakka).
Keppnisnámskeið /reiðtímar
Miðvikudagur 18. janúar (sjá tímasetningar á Facebook síðu keppniskrakka).
Knapamerki 1 og 2
Fimmtudagur 19. janúar kl 18:00
Knapamerki 4
Mánudagur 23. janúar kl 19:00
- Nánar
-
Flokkur: Æskulýðsnefnd
-
Skrifað þann Sunnudagur, janúar 29 2012 21:58
-
Skrifað af Super User
Ungmennafélag
Íslands hefur verið í góðu samstarfi við nokkra lýðháskóla í Danmörku í áraraðir.
UMFÍ hefur m.a. styrkt fjölmörg íslensk ungmenni til dvalar í þessum skólum og
gerir enn. Einn af þeim skólum sem UMFÍ er í samstarfi við er lýðháskólinn í
Viborg. Skólinn hefur nú ákveðið að bjóða nokkrum ungmennum skólastyrk á vorönn
sem er frá 19. febrúar - 26. júní 2012 eða í samtals 18 vikur. Heildarkostnaður
vegna námsins ásamt fullu fæði og gistingu er 36.910.- dkr. eða um kr.
800.000,- íslenskar krónur. Styrkurinn nemur hinsvegar kr. 20.910.- dkr. sem er
um 460.000.- íslenskar krónur. Hlutur nemenda í þessar 18 vikur er því 16.000.-
dkr. eða einungis um 350.000.- íslenskar krónur.
Upplýsingar um
skólann má finna á heimasíðu hans www.giv.dk og síðan gefur Ómar Bragi Stefánsson
hjá Ungmennafélagi Íslands frekari upplýsingar til áhugasamra. Netfang Ómars er
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
- Nánar
-
Flokkur: Æskulýðsnefnd
-
Skrifað þann Mánudagur, janúar 09 2012 02:16
-
Skrifað af Super User
Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ hefur um langt árabil haldið uppi
öflugu æskulýðsstarfi svo eftir hefur verið tekið og fékk félagið m.a.
Æskulýðsbikarinn sem veittur var af Landssambandi hestamannafélaga til
Harðar haustið 2011. Þessi vetur mun ekki verða undantekning þar á og
hefur nú verið sett upp úrval af námskeiðum fyrir yngri kynslóðina. Er
það allt frá námskeiðum fyrir yngstu byrjendurna upp í
Knapamerkjanámskeiðin sem veita djúpa og yfirgripsmikla þekkingu á
hestum og starfi í kringum þá. Æskulýðsnefnd hestamannafélagsins Harðar í
Mosfellsbæ er nú með eftirtalin námskeið:
Nánar...