Yfirkennari æskulýðsstarfs

Æskulýðsnefnd hefur nú ráðið  Oddrúnu Ýr Sigurðardóttur sem yfirkennara yfir öllum þeim námskeiðum sem eru á vegum nefndarinnar í vetur. Hún mun meðal annars sjá um ráðningu kennara, umsjón með allri kennslu á vegum nefndarinnar, fyrirlestra ásamt ráðgjöf við börn, foreldra og kennara nefndarinnar.

Með þessari ráðningu vonumst við til að ná fram enn frekari fagmennsku í starfið á vegum æskulýðsnefndarinnar.

Við hlökkum til að hefja starfið og vonum að sem flestir eigi eftir að finna sér námskeið við hæfi og hafa það gaman með okkur í vetur. Einnig viljum við minna ykkur á að það er hægt að greiða fyrir námskeið á okkar vegum með frístundaávísuninni frá Mosfellsbæ.


Æskulýðsnefnd