Fréttir af framkvæmdum.

 

Harðarból:

Ný lýsing var sett í eldri hluta hússins.  Gamli þakhlutinn var málaður og búið er að mála allan salinn og gluggana í eldri hlutanum.  Einnig var anddyrið og salernin máluð. Steypt var stétt við húsið austanvert og byggð skjólgirðing fyrir ruslatunnur og grillið. 

 

Reiðhöllin:

Reiðhöllin var háþrýstiþrifin í sumar og nýtt hitakerfi sett undir áhorfendabekkina.  Verið er að byggja yfir sjoppuna og hún gerð vatns- og músaheld.  Búið er að fá tilboð í vökvakerfi og verður það sett upp á næstu vikum.  Í framhaldinu verða settir speglar á battana, svo að knapar geti séð sjálfa sig og ganglag hestsins.

 

Reiðleiðir:

Blikastaðaneshringurinn var lagfærður, sem og Tungubakkahringurinn.  Leiðin frá brúnni að Fitjum að Varmadalsbrúnni var lagfærður og nýr vegur gerður í brekkuna fyrir ofan Varmadalsbrúna að Ístaki.  Stærsta framkvæmdin var lagfæring undir brúna við Köldukvísl.  Árfarvegurinn dýpkaður og lagfærðir árbakkarnir, ræsið stækkað og lagfært.  Er það von okkar að með þessu verði komið í veg fyrir skemmdir eða amk að skemmdir verði í lágmarki þegar árin ryður sig næsta vor.  Einnig var reiðleiðin á vesturbakka árinnar að vaðinu, lagfærð.  Reiðleiðin undir Varmárbrúna var einnig lagfærð, árbakkar byggðir upp og reiðleiðin frá Varmárbrúnni að vaðinu við Köldukvísl var lagfærð, sem og vaðið við trébrúna yfir Köldukvísl.

 

Skeiðvöllurinn:

10 cm lag af vikri var keyrt í völlinn og grófjafnaður.  Á næstunni verður völlurinn heflaður og saltborinn, en með því á að binda efnið betur.  Okkur var ráðlagt að gera þetta að hausti og leyfa yfirborðinu að setjast vel yfir veturinn.

 

Að þessu sinni var framkvæmdum stjórnað af hestamannafélaginu og greitt af úthlutuðu reiðvegafé frá Mosfellsbæ og er það mat stjórnar að framkvæmdin hafi verið til mikilla bóta og á Rúnar framkvæmdastjóri félagsins miklar þakkir skildar, en hann hefur stjórnað framkvæmdum félagsins af mikilli útsjónarsemi og röggsemi.

 

Mosfellsbær lagði fræs frá enda reiðhallarinnar við Harðarból og að gámnum og eins var lagt fræs á veginn milli efra og neðra hverfisins.

 

Nýtt deiliskipulag fyrir svæðið var samþykkt á fundi skiplagsnefndar Mosfellsbæjar, en skipulagið hafði verið kynnt á félagsfundi Harðar í byrjun október.

Í 1. áfanga, verður úthlutað lóðum undir 3 hesthúsalengjur austast í hverfinu, nýtt svæði undir rúllubagga og Trek braut þar sem rúllubaggastæðið er núna.

 

Stjórnin

Aðalfundur 14.11.2019

 

Boðað er til aðalfundar hestamannafélagsins Harðar fimmtudaginn 14. nóvember nk. kl 20 í Harðarbóli.

 

Á dagskrá eru venjulega aðalfundarstörf samkvæmt 5. gr. laga félagsins.

 

Stjórnin

Reiðleið um Esjuhlíðar opnuð

Reiðleið um Esjuhlíðar opnuð

Þau gleði tíðindi urðu fimmtudaginn 29. ágúst, höfuðdag, að reiðleiðin / þjóðleiðin með Esjuhlíðum var opnuð á ný eftir lokun í hartnær 50 ár. Reiðleiðin liggur úr Kollafirði með Esjuhlíðum og kemur inn á reiðleiðina um Eyrafjallsveg neðan Tindstaða um 20 km leið.
Það var um 1970 sem landeigendur lokuðu þessari leið fyrir hestaumferð, leiðin hefur þó verið sýnd sem reiðleið á aðalskipulagi Reykjavíkur frá sameiningu Kjalarness við Reykjavík. Það hefur verið mikill vilji til þess meðal hestamanna að fá þessa gömlu leið opnaða aftur fyrir hestaumferð. Það hefur verið reynt af og til frá sl. aldamótum án árangurs fyrr en nú. Hitann og þungann af því að semja við landeigendur (sem eru fleiri en tuttugu) báru þeir Óðinn Elísson formaður hmf. Adams, Sigurbjörn Magnússon lögmaður og Grétar Þórisson Kirkjulandi og tókst þeim að koma því saman á undanförnum þremur árum
og hafi þeir þökk fyrir.
Reiðleiðin er höfð sem náttúrulegust, rétt helstu hindrunum rutt úr vegi og girðingar settar upp þar sem þurfti. Styrkur frá reiðvegasjóði LH 2.5 m. kr. ásamt styrk frá Vegagerðinni dugði til þess að klára verkið og einnig lögðu hestamenn í Kjósinni til vinnu og tæki í verkið. Rétt er að ámálga það að rekstur lausra hrossa er bannaður á reiðleiðinni.

Auglýsum eftir reiðkennurum fyrir veturinn 2019 / 2020

 

Hestamannafélagið Hörður auglýsir eftir reiðkennurum til starfa veturinn 2019/20. Í umsóknunum skal gerð grein fyrir menntun og reynslu og gott væri að fá tillögur að reiðnámskeiðum. Einnig má koma fram hvaða daga hentar best eða alls ekki.

Umsóknir má senda á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 18. óktober næskomandi.

 
 

Bókleg kennsla í knapamerkjum haustið 2019

Hestamannafélagið Hörður býður uppá bóklega knapamerkjakennslu í haust 2019.

Lágmarks þátttaka eru fjórir á hverju stigi. Kennari er: Ragnheiður Þorvaldsdóttir

Stefnt er að verklegri kennsla hefjist í janúar 2020 ef næg þátttaka fæst. Athugið það verður ekki boðið upp á bóklegt nám í knapamerkjum 3, 4 og 5 fyrr en næsta haust (2020)
Knapamerki 1 og 2 verða í boði eftir áramót bóklegt og verklegt saman.
 
 
Upplýsingar um námið http://knapamerki.is/
 
 
• Knapamerki 3. Kennt á miðvikudögum og manudögum kl. 16:30 – 18:00
• Kennsla hefst 16. október, 4 skipti plus próf (1klst)
• Knapamerki 4. Kennt á miðvikudögum og manudögum kl. 18:00 – 19:30
• Kennsla hefst . 16. október, 4 skipti plus próf (1klst)
• Knapamerki 5. Kennt á miðvikudögum og manudögum kl. 19:30 – 21:00
• Kennsla hefst . 16. október, 4 skipti plus próf (2 klst)
• Verð bóklegt Knapamerki 3 og 4 - Börn og Unglingar kr. 14.000
• bóklegt Knapamerki 3 og 4 Fullorðnir kr 16 000
 
• Verð bóklegt Knapamerki 5 - Börn og Unglingar kr. 15.000
• Verð bóklegt Knapamerki 5 - Fullorðnir kr. 17.000
 
 
Dagsetningar: Miðvikudaga 16. / 30. Október og Mánudaga 21. / 28. 10!
Próf: 6. Nóvember
Nemendur þurfa að útvega sér kennslubækur fyrir fyrsta tímann og fást þær í m.a. í Líflandi og Ástund.
Skráning er á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og senda þarf staðfestingur á greiðslu á sama netfang. Leggja skal inná þennan reikning:
549-26-2320 og kennitalan er: 650169-4259
 
Kveðja
Sonja Noack
Yfirreiðkennari Harðar
 
 
baekur-allar-kropp-1500.jpg

Árshátíðarnefndin óskar eftir hressum aðilum

Árshátíðarnefndin óskar eftir hressum aðilum til þess að hjálpa til við að undirbúa flottustu árshátíðina sem verður haldin í vetur. Ef þú hefur áhuga á að vera með vinsamlegast hafðu samband við Huldu í síma 7734249 eða Magnús í síma 8993917.

Hjálpumst að við að gera þessa árshátið sem eftirminnanlegasta 😁

Aðgang að Reiðhöllina 2020

Sælar félagar
Það verður hægt frá árinu 2020 að bóka sig í fasta áskrift fyrir reiðhallarlykillinn (opnar þá alltaf nýr lykill um áramót og kemur greiðsluseðill í heimabanka). Þau sem eru með áskrift þurfa þá ekki hugsa um að panta lykillinn alltaf í lok árs og er þá ekki áhætta um að standa fyrir framan lokaða hurð í ársbyrjun.
Endilega sendið mér nú þegar þau sem vilja vera í áskrift og þá líka hvort lykillinn þið vilijð (allan dag, fyrir hádegi eða eftir hádegi).
Það má að sjálfsögðu líka senda mér nú þegar email þegar þú villt panta lykill enn villt ekki áskrift. Þá er þetta bara komið.
Greiðsluseðill fyrir lyklana fyrir árið 2020 fara svo út í janúar 2020. Það verður lokað á ógreidda lykla.
Pantarnir fara í gegnum This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Kveðjur
Sonja