LAUSAGANGA HUNDA

Af gefnu tilefni viljum við koma því skýrt á framfæri að lausaganga hunda er bönnuð á Harðarsvæðinu og reiðgötum Mosfellsbæjar, eins og annars staðar í Mosfellsbæ. Lausir hundar geta verið hvimleiðir í íbúðarhverfum, en í hesthúsahverfum og á reiðgötum eru þeir beinlínis hættulegir, án þess þó að nokkuð sé að hundinum í sjálfu sér.  Það eitt að hann er laus og er á vitlausum stað á vitlausum tíma þannig að hestur fælist er hættulegt.  Það hafa því miður orðið mjög alvarleg slys hér á Harðarsvæðinu af völdum hunda sem fælt hafa hesta, þannig slasaðist kona í fyrra það alvarlega að hún getur ekki farið á hestbak í dag, nærri ári eftir slysið þegar laus hundur stökk skyndilega út á reiðveginn fyrir framan hana. Nú í ár er búið að tilkynna um nærri tug tilfella þar sem hestar hafa fælst vegna lausra hunda og ýmist orðið slys eða legið við slysi, og aðeins mánuður liðinn frá því að tekið var inn.

Nánar...

REIÐHÖLLIN - ÁRÍÐANDI - ÁRÍÐANDI

Kæru félagsmenn,

Nú er félagsstarfið komið í fullan gang og þegar illa viðrar þá nýta margir sér þá frábæru inniaðstöðu sem reiðhöllin er. Við höfum komið því þannig fyrir að félagsmenn geta mætt í reíðhöllina með hestinn sinn á hvaða tíma sem er, fremri hlutinn er alltaf opinn almenningi, jafnvel þó reiðnámskeið sé í innri hlutanum með einni undantekningu, við urðum að setja einn reiðtíma barna í viku í fremri hlutann og verður reiðhöllin því lokuð þennan klukkutíma í viku.

Við viljum biðja ykkur að kynna ykkur reiðreglur í reiðhöllinni því þar gilda ákveðnar umferðarreglur, sem reyndar eru alþjóðlegar, sem koma í veg fyrir árekstra og vandræði.

Skilyrði fyrir því að mega nota reiðhöllina er að vera skuldlaus meðlimur í Herði og vera með rafrænan lykil sem kostar 4.000.- kr. fyrir árið. Lykill er gefinn út á kennitölu einstaklings og má hann einn nota sinn lykil. Það er stranglega bannað að lána eða fá lánaða lykla.  Þetta lága árgjald byggir á því að allir sem nota reiðhöllina greiði fyrir sinn lykil.  Við höfum því miður tekið eftir að fólk er að fá lánaða lykla, kaupa jafnvel einn lykil fyrir hesthúsið sem allir nota, eða kaupa lykil fyrir barnið sitt á unglingaverði og nota svo lykilinn sjálf. Ég trúi því ekki að félagsmenn séu að gera þetta gegn betri vitund, en kenni ókunnugleika um. Nú verður þetta kynnt rækilega þannig að enginn geti borið við fáfræði. Ef síðan einhver sést í reiðhöllinni með annarra manna lykil fær hann og eigandi lykilsins eina áminningu, ef það gerist aftur verður viðkomandi lykli lokað og nýr lykill ekki gefinn út á kennitöluna fyrr en að mánuði liðnum og þá gegn nýrri greiðslu. 

Reiðhöllin er vöktuð innandyra og utan með nettengdum eftirlitsmyndavélum, þegar lykill er notaður byrtist nafn og kennitala eigandans á tölvuskjá reiðhallarinnar. Það er því mjög áberandi og augljóst þegar lykill er misnotaður.

Það er leiðinlegt að þurfa að vera með svona tuð, en rekstrarforsendur reiðhallarinnar okkar byggja á því að allir sem nota reiðhöllina greiði þetta lága árgjald.

Njótið reiðhallarinnar, kveðja Guðjón formaður

 

Þorrablót

Kæru félagar,

Þar sem uppselt er á þorrablótið og húsið fullt að því marki sem eldvarnaryfirvöld leifa verður húsið lokað öðrum en matargestum til kl. 21.30.  Eftir það eru félagsmenn sem ekki mæta í matinn velkomnir, enda einhverjir matargestir þá væntanlega farnir

Uppselt er á Þorrablótið

Kæru félagsmenn.Það er okkur ánægja að tilkynna ykkur að nú er orðið UPPSELT á þorrablótið okkar Harðarmanna. Þökkum frábæra þátttöku og hlökkum til að hittast og eiga ánægjulega þorramáltíð og -skemmtun með frábæru fólki.

Stjórnin

Hin árlega þrettándabrenna

Hin árlega þrettándabrenna Mosfellsbæjar verður í kvöld. Vakin er athygli á því að brennan er óvenju snemma í ár eða kl. 18.00. Gott er að hafa ljós í hesthúsunum og kveikt á einhverri rokkstöðinni í útvarpinu á meðan á flugeldasýningunni stendur.

Áramótareið Harðar

Hin árlega áramótareið Harðar verður á gamlársdag milli klukkan 12.00 og 15.00 í Varmadal. Veitingar eru að venju í boði Harðar til klukkan 15.00. Því mælum við með að fólk verði komið í Varmadal milli 12 og 12.30. 

Í leiðinni viljum við þakka Nonna og Haddý fyrir að sýna okkur alltaf frábærar móttökur á þessum síðasta degi árs. 

Stjórnin

Þorrablót Harðar 2012

Þorrablót Harðar 2012Kæru félagsmenn.

Nú líður hratt að Þorra. Við viljum taka forskot á sæluna og halda félagsþorrablótið þann 14 jan. kl 18:00 í Harðarbóli. Blótið verður með sama sniði og í fyrra, matur frá Múlakaffi og miðinn kostar 3500 kr á manninn.

Guðjón og Hákon munu halda upp stuðinu frameftir kvöldi með sinni alkunnu snilld. Það er ekkert betra en að enda góðan reiðtúr á góðum degi en í góðum félagskap í félagsheimilinu okkar.

Þeir sem ætla að mæta verða að skrá sig hjá Rögnu Rós í síma 866-3961 eða senda email á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. fyrir miðvikudaginn 11 jan.

Val á íþróttamanni Harðar

Nú stendur yfir val á íþróttamanni Harðar 2011. Þeir sem hafa verið að keppa mikið á árinu vinsamlegast sendið upplýsingar um árangur fyrir mánudaginn 12.desember nk. til Reynis Pálma This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..

Íþróttamaður Harðar er útnefndur á árshátíð félagsins en sá sem valinn er íþróttamaður Harðar á möguleika á að vera í vali fyrir íþróttamann Mosfellsbæjar.

Aðalfundur Harðar

 Aðalfundur hestamannafélagsins Harðar verður haldinn í Harðarbóli 24. nóvember 2011 kl. 20:00

Efni fundarins: 

  • Venjuleg aðalfundarstörf
  • Tillaga að lagabreytingu
  • Önnur mál
Lagt er fyrir breyting á 6. grein laga hestamannafélagsins:

Nánar...