Halló Halló krakkar - takið 18. okt. frá :-)

Fyrir Harðarkrakka: Jæja þá er komið að því! 18. okt. verður uppskeruhátíðin okkar. Við byrjum kl 18.30. Veittar verða viðurkenningar fyrir árangur á árinu, knapamerkisviðurkenningar veittar og fl. Við ætlum að hafa góðan kvöldmat (ekki pylsur og hamborgara :-)) með fullt af góðu meðlæti :-) Endilega takið foreldra og systkini með ykkur. Hlökkum til að sjá sem allra allra flesta og hafa það gaman saman, allir Harðarkrakkar velkomnir :-) 
Æskulýðsnefnd Harðar

Fjölskyldureiðtúr :-)

Sunnudaginn 6. maí förum við í okkar árlega fjölskyldureiðtúr. Riðið verður upp að Hraðastöðum í Mosfellsdal/Helgadal þar sem við kíkjum á sveitalífð og grillum okkur pylsur. Lagt verður af stað frá Nafla kl 12.30 þar sem Magga Sveinbj. mun leiða hópinn upp í dal. Hlökkum til að sjá sem flesta :-)

Æskulýðsnefnd

Frá æskulýðsnefnd Harðar/ námskeið

Æskulýðsnefnd Harðar auglýsir eftirfarandi námskeið:

Skráning á öll námskeiðin er hjá Oddrúnu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 11.apríl 2012. 

Námskeiðin byrja í næstu og þarnæstu viku.


Almennt reiðnámskeið /8-10 ára

Verð 7.500 kr / 20% afsláttur fyrir þá sem hafa sótt önnur námskeið í vetur

  • Áseta og stjórnun
  • Skil á gangtegundum
  • Reiðleiðir og umferðarreglur
  • Ásetuæfingar
  • Gaman
  • Kennt í 6 skipti á þriðjudögum eða fimmtudögum / 10 pláss laus

Kennari; Oddrún Ýr Sigurðardóttir

Almennt reiðnámskeið /10-14 ára

Verð 9.000 kr /20% afsláttur fyrir þá sem hafa sótt önnur námskeið í vetur

Markmið:

  • Nemendur læri undirstöðuatriði reiðlistar og öryggi til að sitja hest
  • Stjórnun og áseta
  • Nemandi þekki gangtegundir og læri að ríða þær
  • Nemandi þekki gangtegundir hjá öðrum í reið
  • Umgengni við hestinn (fætur teknar upp, teyming osvfrv)
  • Nemandi kunni að leika sér við hestinn, hvað má og hvað má ekki
  • Kennt er í 6 skipti tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum
  • 10  pláss laus

Kennari: Sigrún Sigurðardóttir

Seven Games/leikir með hestinum þínum

Aldurstakmark: 12.ára
Fjöldi takmarkaður á námskeiðið
Kennt í 4 skipti
Verð: 6.000 /20 % afsláttur fyrir þá sem hafa sótt námskeið í vetur
Kennt á mánudögum eða fimmtudögum
Kennari: Ragnheiður Þorvaldsdóttir

Ferð á vegum Æskulýðsnefndar 28. apríl 2012

Nú er komið að því að við leggjum landi undir fót og skundum austur í sveitir. Við byrjum á heimsókn á Krók til hans Reynis Arnar, Harðarmanns, og sjá þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað hjá honum. Reynir Örn ætlar að bjóða okkur í hádegismat. Eftir gott stopp á Króki ætlum við að fara út í óvissuna en það má ljóst vera að við endum aftur í Herði :-) Lagt verður af stað frá Harðarbóli kl: 10 og stefnum að því að vera komin heim eftir miðjan dag.Nú erum við að kanna áhuga á þessari ferð hjá ungliðum Harðar og fylgifiskum svo við sjáum hvort við getum leigt okkur rútu (2500-3000kr á mann) eða hvort við förum á einkabílum. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á póstfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 23. apríl. En einhverjar spurningar vakna verið endilega í sambandi á sama netfang.

Æskulýðsnefnd Harðar

Páskafitness, 25. mars

Minnum á páskafitness Æskulýðsnefndar á morgun, sunnudaginn 25. mars, í reiðhöllinni kl 11:00. Börn sérstaklega boðin velkomin og er eru hvött að taka foreldra sína með sér. Við munum skipta okkur í lið og  fara saman í gegnum skemmtilegar þrautir, s.s.

  • Hjólbörurallý
  • Kókosbolluát
  • Skeifu- og stígvélakast
  • og margt fleira skemmtilegt
  • Að launum fá öll börn páskaegg.

Í fyrra var mikið glens og gaman og mættu um 40 manns. Hlökkum til að sjá ykkur öll !

Æskulýðsnefndin

Foreldrafundur á vegum Æskulýðsnefndar Harðar

Æskulýðsnefnd Harðar boðar til foreldrafundar í Harðarbóli miðvikudaginn 11. apríl n.k. kl: 20-22.
Foreldrar eru hvattir til að mæta, ekki síst þeir foreldrar sem hafa nýtt sér námskeið eða aðrar uppákomur Æskulýðsnefndar í vetur.
Efni fundarins verður meðal annars: Hvert stefnum við, hvaða leiðir ætlum við að fara, samskipti barnanna okkar og fleira. 
Stjórnandi umræðna á fundinum verður Þórhildur Þórhallsdóttir hjá Hestamennt.
 
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Æskulýðsnefnd 

Lokanir reiðhallarinnar um helgina

Reiðhöllin er lokuð á milli kl. 16 og 17 föstudaginn 23. mars vegna æfinga fyrir Æskan og hesturinn 2012.

Einnig hún lokuð frá kl. 20 sama kvöld vegna undirbúnings Lífstöltsmóts sem haldið verður um helgina.

Enn fremur er höllin lokuð á sunnudaginn á milli kl. 11-14 vegna Páskafitness á æskulýðsnefndar og æfinga fyrir Æskan og hesturinn 2012.