- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Miðvikudagur, maí 25 2005 12:53
-
Skrifað af Stjórnin
Myndirnar frá umhverfisdegi Harðar eru komnar á netið.
Það er hægt að finna þær með því að smella á linkinn til vinstri sem heitir Umhverfisdagur Harðar 2005
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Mánudagur, maí 23 2005 06:45
-
Skrifað af Stjórnin
Framkvæmdir Orkuveitu Reykjavíkur við Hellisheiðarvirkjun við Kolviðahól og uppi á háheiðinni eru nú í fullum gangi. Hengilssvæðið er mikil útivistarperla og þar hefur Orkuveitan lengi sinnt margvíslegum útivistarmálum, lagt 150 km af merktum gönguleiðum og reist tvo gönguskála sem öllum eru opnir. Reiðleiðir um svæðið eru greiðar. Þá hefur Orkuveitan látið gera hestagerði, skammt frá gömlu réttinni við Kolviðarhól.
Vegna framkvæmdanna er Orkuveitan að koma fyrir upplýsingaskiltum fyrir hestamenn þar sem reiðleiðir um framkvæmdasvæðið eru merktar til þess að samvinna hestamanna og framkvæmdaaðila geti orðið sem best. Skiltin verða við Litlu kaffistofuna, við hestagerðið við Kolviðarhól og við reiðleiðina upp Kambana.
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Miðvikudagur, maí 18 2005 12:00
-
Skrifað af Stjórnin
Þolreiðin hefst með kynningu kl. 12.00, eftir það er dýralæknaskoðun og verður fyrsti hestur ræstur út kl. 15.00. Hestarnir verða síðan ræstir út á 2-3 mínútna millibili, einn í senn. Lesið nánar um reglurnar hér að neðan.
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Fimmtudagur, maí 12 2005 12:51
-
Skrifað af Stjórnin
Við bjóðum alla hestamenn velkomna til okkar um Hvítasunnuna. Léttar veitingar verða í félagsheimilinu Harðarbóli á laugardag og sunnudag.
Tilvalið að ríða í Mosó og taka sprett á leirunum.
Íþróttamót verður í gangi fyrir þá sem vilja tylla sér í brekkurnar.
Grill og gleði á sunnudagskvöld.
Gestagerði fyrir hestana.
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Laugardagur, maí 07 2005 06:22
-
Skrifað af Stjórnin
Nú hefur verið opnuð heimasíða með stóðhestinum Þyt frá Neðra Seli. Má segja að þetta sé fyrsti hluti Ófeigshátíðarinnar sem verður nú um helgina í Ölfusshöllinni. Þytur er einn af betri eftirlifandi sonum Ófeigs. Ófeigur var þekktur fyrir mikinn fótaburð, lit og kraft og síðast en ekki síst rými sem erfst hefur mjög vel. http://www.thyturilaufi.is/
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Fimmtudagur, maí 05 2005 05:35
-
Skrifað af Stjórnin
Á þriðjudaginn næstkomandi ætlar keppnisnefnd LH að halda kynningu um FIPO reglurnar fyrir alla hestamenn og eru keppendur og mótshaldarar sérstaklega hvattir til að mæta. Kynningin verður í fundarsal í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst kl. 19:00.
Sjáumst á þriðjudag í Laugardalnum
Keppnisnefnd LH
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Föstudagur, maí 06 2005 12:00
-
Skrifað af Stjórnin
Fákur kom í heimsókn til okkar á uppstigningardag í blíðskapar veðri. Riðið var á móti hóppnum og mættust menn á bæjarmörkum. Í Harðarbóli beið svo veisluborð, hlaðið af brauði og kökum úr eldhúsum Harðarkvenna. Um 200 manns mættu í kaffið og voru tekjur umtalsverðar fyrir félagið.
Dagurinn heppnaðist frábærlega vel í alla staði og er góð byrjun í viðleitni okkar til að efla félagslífið.
Stjórn Harðar vill koma sérstökum þökkum til allra þeirra sem hjálpuðust að þennan dag, en dagurinn sýnir og sannar að við getum þegar við viljum.
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Fimmtudagur, apríl 28 2005 12:00
-
Skrifað af Stjórnin
Laxnes stendur fyrir þolreið frá Víðidal í Laxnes þann 21. maí. Keppt verður í unglingaflokki og meistaraflokki. Dæmt verður eftir hraða og þoli, en dýralæknar munu fylgjast með keppninni, þolprófa og mæla púls.
Þeir sem vilja skrá sig í keppnina senda tölvupóst til Póra á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með upplýsingum um nafn, símanúmer, aldur keppanda, aldur hests og eiganda hests.
Veitt erur vegleg verðlaun, miðar á heimsmeistaramótið í Svíþjóð í sumar.
Stefnt er að því að þetta verði árlegur viðburður og er vissulega kærkomin viðbót í keppnis og félagslífið.
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Föstudagur, maí 06 2005 03:41
-
Skrifað af Stjórnin
Lokaða WR (wild ranking) Langbrókarmótið
Á sumardaginn fyrsta var haldið hér á Harðarvöllum, í blíðskapar sumarveðri 2. Langbrókarmót Kvennadeildar Harðar.
Mótið þótti takast með eindæmum vel, mikil gleði var og góð þátttaka og var auðséð að konur og ungmenni voru búnar að æfa stíft fyrir mótið og gert sína góðu og allra bestu gæðinga klára fyrir daginn og sást að það kom sér vel að fresta þurfti mótinu vegna veðurs því allir voru vel klárir í slaginn.
Nokkrir knapar skáru sig úr hvað varðar stíl og má þar nefna Kristínu Halldórsdóttur sem mætti með höfuðskrautið í lagi, íslenska lopapeysan fór Helenu Jensdóttur afar vel, og skar keppnisnúmerið vel út í sauðalitunum.
Tvær knáar stúlkur, Rut og Saga tvímenntu á gæðingnum Dimmu...
Nánar...
- Nánar
-
Flokkur: Stjórnin
-
Skrifað þann Fimmtudagur, apríl 14 2005 02:58
-
Skrifað af Stjórnin
Youth camp er fjölþjóðleg æskulýðshátið fyrir ungmenni á aldrinum 14-18 ára sem haldnar eru annað hvert ár. Þátttakendur koma frá öllum aðildarlöndum FEIF og geta þrír frá hverju landi tekið þátt, en sex frá Íslandi mega taka þátt í ár.
Hátíðin verður haldin á Íslandi að þessu sinni, að Ármóti í Rangárþingi ytra og stendur í rúma viku, eða frá 15.-22. júlí Gist verður að Heimalandi undir vestur Eyjafjöllum.
Kostnaður er 45.000.- krónur og innifalið í því er...
Nánar...