Þolreið í Laxnes-reglur

Þolreiðin hefst með kynningu kl. 12.00, eftir það er dýralæknaskoðun og verður fyrsti hestur ræstur út kl. 15.00. Hestarnir verða síðan ræstir út á 2-3 mínútna millibili, einn í senn. Lesið nánar um reglurnar hér að neðan. Reglur Þolreið 2005 Laxnesi Þolreið frá Reiðhöllinni í Víðidal í Laxnes Mosfellsdal 21. maí. Tilgangur Þolreiðarinnar er fyrst og fremst að hefja aftur til vegs og virðingar hið forna aðalsmerki íslenska hestsins þ.e. þol og harðfylgi. Þá er tilgangurinn sá, að auka áhuga hestamanna á þoli og þreki eigin hesta. Reglur: 1. Hestarnir skulu vera í sæmilegri þjálfun og ekki yngri en 7 vetra. Þeir skulu vera vel járnaðir og í góðu ásigkomulagi. 2. Knapa er heimilt að ganga með hest sinn yfir erfiða færð eða til að hvíla hestinn, en verður að ríða úr hlaði og í mark. 3. Heltist hestur verulega eða sýnir einhver merki ofþreytu eða sjúkleika ber knapa að stöðva hest sinn og reyna eftir mætti að koma boðum til stjórnanda reiðarinnar um hjálp. 4. Sami knapi verður að ríða hestinum alla leiðina. 5. Knapi má undir engum kringumstæðum hvetja hestinn með óhóflegri notkun písks eða svipu eða nota nokkur önnur ráð sem talist geta varða við dýraverndurnarlög. Knapa ber ávallt að hafa í heiðri dýraverndunarlög og sjáist til hans af stjórnendum reiðarinnar eða öðrum beita aðferðum sem óeðlilegar geta talist verður hann dæmdur ú leik. 6. Knapa ber að fylgja þeirri leið sem merkt er á kortið og fara samviksusamlega fram hjá þeim eftirlitsstöðum sem merktir eru á kortið. Knapa ber að sjá til þess sjáfur að hann sé skráður niður fyrir og hafa farið fram hjá viðkomandi eftirlitsstað. 7. Allir hestar eru skoðaðir nákvmælega af dýralækni fyrir keppnina, þar sem skráður er hjártsláttur, öndunarhraði, meiðsl og annað athugavert, jafnframt því sem athugað er hvort hestruinn er haltur. Þá eru athugaðar járningar. 8. Engin hámarks- eða lágmarkstími er ákveðinn heldur er ákveðinn svokallaður viðmiðunartími þ.e. sá tími sem eðlilega getur talist að sæmlilega þjálfaður hestur fari vegalengdina á. Í þessu tilviki er talið að sá tími sé ca. 2 klukkustundir. 9. Dýralæknaskoðun fer fram nákvæmlega 30 mínútum eftir að hestuinn kemur í mark og á henni ákvarðast þau refsistig sem hesturinn fær og koma til frádráttar þeim tíma, sem hesturinn hefur farið vegnalegdina á. Einnig eru hestar dæmdir úr leik ef sem við á, s.k. reglum. 10. Hvert refsistig þýðir 5 mínútur í frádrátt. a. Hjartsláttur 56 – 59 slög 1 refsistig 60 – 64 slög 2 refsistig 65 – 68 slög 3 refsistig > 68 slög dæmdur út leik b. Almennt ásigkomulag 1 – 4 refsistig. 5 eða meira dæmdur úr leik. Inn í þetta kemur mat á öndunartíðni, sem aðeins er leiðbeinandi. c. Skoðuð sár, smá meiðls, hnakksæri, særindi undan beisli, o.s.fr. 1 til 4 refsistig. 5 eða meira dæmdir úr leik. d. Missi hestur undan skeifu er hann dæmdur úr leik.