Árshátíð barna

Æskulýðsnefnd Harðar Mosfellsbæ auglýsir Árshátíð barna 9-12 ára (fædd 96-92) Í Herði, Fáki, Andvara, Sörla, Sóta, Gusti og Mána Haldið í Félagsheimilinu Harðarbóli Föstudaginn 4. mars kl 18-21 * Skemmtiatriði * Lalli töframaður * Matur * Diskótek Verð 1500,- kr. Skráning og miðasala í Harðarbóli sími 566 8282 mánudag, þriðjudag, miðvikudag kl 18 - 20

Niðurröðun á námskeið

Röðun á námskeið hjá Friðdóru og Oddrúnu verður með þessum hætti. Ef tíminn hentar af einhverjum ástæðum illa getur viðkomandi nemandi rætt það við reiðkennara í fyrsta tímanum. Nemendur geta fengið undirbúning undir knapamerkjapróf. Fyrsti tíminn er miðvikudaginn 2. febrúar og kennt verður í átta vikur.

Nánar...

Uppskeruhátíð og foreldrafundur

Verða haldin miðvikudaginn 19. janúar nk. kl. 20.00 í framhaldi af skráningu á námskeið. Við veitum börnum, unglingum og ungmennum viðurkenningu fyrir góðan árangur á liðnum vetri og einnig veitum við verðlaun fyrir efnilegastan einstakling í ofangreindum flokkum. Kaffi og kökur á boðstólum - félagsmenn eru hvattir til að mæta.

Æskan og hesturinn 2005

Æskan og hesturinn Þeir krakkar (pollar - börn - unglingar og ungmenni) sem hafa áhuga á að taka þátt í Æskan og hesturinn eru beðnir að mæta með hestana sína mánudaginn 31. janúar kl. 19:00 í Hindisvík. Ath. þetta er gert til að reiðkennari geti metið öryggi hestsins. Þeir sem þegar hafa skráð sig hjá Oddrúnu þurfa að mæta líka. Sérstaklega er óskað eftir brúnum hestum og knöpum sextán ára og eldri til að vera með í fánareið. Vonumst til að sem flestir verði með.

Ný stjórn æskulýðsnefndar

Eftirtaldar verða í æskulýðsnefnd nú í vetur Anna B. Jónsdóttir (meðstjórnandi) s: 697 5718 e-mail This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Ása Magnúsdóttir (formaður) s:844 3406 e-mail This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Elín Bergsdóttir (meðstjórnandi) s:864 8104 e-mail This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Guðrún Ólöf Jónsdóttir (meðstjórnandi) s: 898 7730 e-mail This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Helena Jensdóttir (meðstjórnandi) s:699 2797 e-mail This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Vera Roth (gjaldkeri) s:893 6579 e-mail This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Nánar...