Dagskrá æskulýðsnefndar

JANÚAR 19. janúar Uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar 19. janúar kl 19:00 Foreldrafundur og skráning á námskeið FEBRÚAR 2. febrúar Námskeiðin byrja 10. febrúar kl. 18-20 Furðufatapartý Æskulýðsnefndar Harðar í Harðarbóli 19. febrúar kl. 13-15 Flóamarkarður Æskulýðsnefndar Harðar í Harðarbóli 24. febrúar Árshátíð unglinga haldið í Fáksheimilinu MARS....

Nánar...

Uppskeruhátíð, foreldrafundur og skráning á námskeið

Kæru foreldrar, börn og ungmenni. Þann 19 janúar nk kl 19 verður foreldrafundur í Harðabóli, þar sem farið verður yfir dagskrá komandi vetrar. Við munum einnig hafa uppskeruhátið þar sem heiðruð verða knapar í flokknunum efnilegasti og besti árangur sl árs. Skráning hefst á námskeiðin, þ.e. keppnis- og almenn reiðnámskeið ásamt knapamerkjanámi og eigum við von á að reiðkennarar okkar mæti og segi frá sínum markmiðum. Við erum mjög stolt að hafa þá bræðurnar Sölva og Sigga Sigurðasyni ásamt Trausta Þór Guðmundsyni sem munu sjá um keppnisflokkinn og æfa fyrir sýninguna Æskan og Hesturinn. Sigrún Sigurðardóttir verður áfram hjá okkur næsta vetur og sér hún um almenn námskeið ásamt knapamerkjanámi. Kynnt verða breytingar á knapamerkjanáminu sem orðið hefur frá því í fyrra. Hlökkum til að sjá sem flesta. Fyrir hönd Æskulýðsnefndar Lóló formaður

Sameiginlegur reiðtúr æskulýðsnefnda hestamannafélaga á höfu

Sunnudaginn 29. maí verður sameiginlegur reiðtúr barna og unglinga í Andvara, Fáki, Gusti, Herði, Sóta og Sörla. Stefnt er að því að allir verði mættir á Hjallaflatir kl. 15:00. Farið verður í leiki á flötunum, við syngjum saman og kynnumst krökkunum í hinum félögunum. Domino’s og Vífilfell bjóða uppá pizzur og kók, Sjáumst öll! Megavika Domino´s frá 23.maí til 29.maí

Hestheimaferð

Ákveðið hefur verið að sameina Hestheimaferðirnar tvær í eina, og verður farið helgina 29/4 - 1/5. Þeir sem hafa skráð sig í ferðina sem átti að vera næstu helgi, vinsamlegast hafið samband við Lóló í síma 898-7730, eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

LANGBRÓKARMÓT HARÐAR 2005!!!!!!!!!

KVENNAMÓT – Langbrókar- KVÖLD Hallgerður Langbrók auglýsir: LANGBRÓKARMÓT á Harðarvöllum 16. apríl 2005 kl. 15:00 Keppt verður í 5 flokkum; • lulli á hringvelli • brokki á beinni braut • boðreið á beinni braut • kappreiðum • vökva-tölt-kappreið Langbrókar kvöld hefst síðan með borðhaldi kl 19; 30 ( ekki bara konur) Mango karry kjúklingaréttur með hrísgrjónum og salati. ALLUR ÁGÓÐI RENNUR ÓSKIPTUR TIL REIÐHALLARBYGGINGAR Á HARÐARSVÆÐINU Hver verður “Langbrók” ársins? Tilnefningar vel þegnar Verð; 2000 kr Athugið það þarf að skrá sig í matinn , í síma; 8987730 / 566-8258 (Lóló) Eða á; This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir laugardaginn.

Heimsendaferð kvennadeildar!

Frá Kvennadeild Fyrirhugaðri kvennareið að Heimsenda fellur niður þar sem dræm þáttaka hefur verið hingað til í auglýsta reiðtúra Kvennadeildar. Hvet ég því allar þær konur sem vilja hittast ( í Naflanum) og fara saman í reiðtúr að gera það nk laugardaginn kl. 13 og hafa sjálfar hugmynd af því hvert verður farið... Hafið skemmtilegan dag kv Lóló formaður Kvennadeildar

Hestheimaferð í lok apríl

Hestheimaferðin Í lok apríl Skránig stendur yfir. Fyrri helgin þe 22-24 apríl verður fyrir unglinga þe fædd 91 og eldri. Skráning hjá Elínu s: 864 8104 E mail This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Seinni ferðin 29 apríl - 1 maí er fyrir yngri börn, fædd 95 -92. Skráning hjá Lóló s: 8987730 E mail This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. ( sendið mér póst ef þið viljið fá upplýsingablað sent til ykkar) Verð fyrir einstakling og hest með öllu, var í fyrra 12 þús kr. Gerum við ráð fyrir sviðaðri upphæð nú. Munum við gefa börnum og unglingum kost á því að fjármagna að einhverju leiti ferðina með því að taka að sér að selja hið margrómaða Suðurnesjakaffi.( 2 kaffipakkar og súkkulaði á kr 1500 þar sem 500 kr af því fer til barnanna). (Lóló sér um það) En foreldrar þurfa sjálfir að leggja út fyrir kostnaði frá heildölunni. Með kveðju fh Æskulýðsnefndar Guðrún Ólöf (Lóló)

Skráning á námskeið

Sigrún Sig. - Námskeið og Knapamerjanám 1. og 2. stig Friðdóra og Oddrún - Keppnisnámskeið Hulda - Keppnisnámskeið Skráning verður miðvikudaginn 6. apríl á milli klukkan 18:00 - 19:00 í Harðarbóli