Skráning á námskeið hjá Sigrúnu Sig.

Jæja, tíminn líður hratt og fyrri námskeiðunum hjá Sigrúnu Sig. fer senn að ljúka. Skráning á námskeiðin sem byrja eftir páska fer fram þriðjudagskvöldið 23. mars kl. 19:00 til 20:00 Að þessu sini verður kennt tvisvar í viku í fjórar vikur - eða samtals átta skipti. Námskeiðið kostar sem fyrr 4.000 kr. Ath. eingöngu er tekið við skráningu gegn greiðslu og hægt er að borga með visa og euro.

HESTHEIMAFERÐ 26. - 28. MARS NK.

Það þarf að borga ferðina fyrir 10. mars n.k. Hafið samband við Ásu í síma 66 44 506 - eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

FJÁRÖFLUN

Kæru Harðarfélagar. Nú eru krakkarnir á keppnisnámskeiðinu á leið í Hestheima. Til að afla fjár fyrir ferðinni munu þau ganga í hús og selja kex og kökur. Hver pakki kostar 2000 kr. og við biðjum ykkur vinsamlega að taka vel á móti þeim. kveðja, Æskulýðsnefndin

Krakkar á keppnisnámskeiði ath.

Kexið verður til afhendingar í Harðarbóli næsta laugardag á milli 11 og 12. Mikilvægt er að ALLIR komi og sæki sinn skammt því kexið tekur mikið pláss og erfitt er að geyma það. ATH. þið þurfið að borga fyrir kexið þegar það er sótt, en við getum geymt ávísanir.

Hestheimar

Æskulýðsnefndin stefnir á tvær ferðir í Hestaheima nú á vormánuðum. Fyrri ferðin er helgina 26. - 28. mars og er ætluð þeim krökkum sem eru á námskeiði hjá Babsý og Friðdóru. Skráning fyrir 15. febrúar hjá Ásu - e-mail This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Seinni ferðin er helgina 2. - 4. apríl og er fyrir alla krakka sem verða 10 ára á árinu og eldri. Skráning fyrir 15. febrúar hjá Olgu - This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Barnaárshátíð

Árshátíð barna 9-12 ára verður haldin í Harðarbóli föstudaginn 5. mars kl:18-21. MATUR OG FJÖR.......Miðaverð 1.500 kr. Upplýsingar og miðasala fyrir 2.mars hjá Bryndísi s:661-8102 og Önnu s:566-8750.

Æskan & hesturinn

Senn líður að þessari stórskemmtilegu sýningu en hún verður haldin í reiðhöllinni í Víðidal 13.og 14. mars. Þau börn sem hafa áhuga á að taka þátt í polla-atriði og grímubúninga-atriði geta skráð sig fyrir 1.mars hjá: Kolbrúnu s:5668595/6995178/This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. ath. nauðsynlegt er að hafa trausta hesta.