Breyting á hestheimaferð

Vegna Líflandsmóts þurfum við að færa keppniskrakkana á síðari hlelgina, þ.e. 28.-30 apríl í stað 21.-22. Hinir krakkarnir fara því fyrri helgina í Hestheimaferð. Vonum að þetta komi ekki að sök, og að sem flestir sjái sér fært að mæta. Þetta eru alltaf skemmtilegar og fróðlegar ferðir. Byrjað er að skrá, og er tekið við skráningum hjá æskulýðsnefnd.

Námskeið hjá Sigrúnu

Enn eru nokkur pláss laus á reiðnámskeiðin hjá SIgrúnu Sig reiðkennara sem hefjast 18 apríl nk. Kennt verður 2 í viku í 4 vikur, á þriðjudögum og fimmtudögum. Verð 8000 Nánari upplýsingar og skráning í síma 8987730 hjá Lóló

Fjáröflun til styrktar Æskulýðsnefnd og ungliðunum

Við í Æskulýðsnefnd Harðar erum með Hestabox til sölu. Þetta eru rúmgóð box sem innihalda hestasjampó og gljáa, 2 kamba, busta, hanska og teyjur. Boxið er mjög sterkt og rúmgott. ( stærra og hentugra en verkfærakassar) Það er gott að ferðast með það og koma ýmsu fyrir sem tengist hestinum. Hestaboxið er hólfað niður, með handfangi og hægt er að nota það sem sæti á ferðalögum. Boxið kostar 7000.- og verður 1000 kr af því merkt því barni sem selur boxið. Þetta er til styrktar æskulýðsstarfi Harðar. Hægt er að nálgast boxin hjá Valgerði, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og gsm 899 9384

Æskan og hesturinn

Við viljum hvetja fólk til að mæta tímanlega þar sem aðsóknin að þessari sýningu hefur verið mjög mikil undanfarin ár. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis fyrir alla fjölskylduna en meðal skemmtiatriða þetta árið eru: Heiða (Idol-stjarna), Gunni og Atli úr Strákunum, Sproti frá Landsbankanum gleður yngstu gestina og síðast en ekki síst mun Unnur Birna ungfrú Heimur koma í heimsókn. Um 250 börn úr 7 hestamannafélögum úr Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Álftanesi, Hafnarfirði og Reykjanesbæ hafa undanfarnar vikur lagt mikla vinnu í æfingar og búningagerð til að þessi sýning verði sú besta hingað til, einnig munu fötluð börn sýna að íslenski hesturinn er fyrir alla og að ekkert er ómögulegt ef viljinn er fyrir hendi. Yngstu knaparnir á sýningunni eru aðeins 3ja ára og þeir elstu eru komnir að tvítugu þannig að bilið er breytt og sýningaratriðin fjölbreytt.

Úrslit frá uppskeruhátíð Harðar

BARNAFLOKKUR: Besti knapi - Leó Hauksson Efnilegasti knapi - Arnar Logi Lúthersson UNGLINGAFLOKKUR: Besti knapi - Halldóra Huld Ingvarsdóttir Efnilegasti knapi - Friðþór Norðkvist UNGMENNAFLOKKUR: Besti knapi - Sigurður Straumfjörð Pálsson Efnilegasti knapi - Ari Björn Jónsson