Æskan og hesturinn 2005

Æskan og hesturinn Þeir krakkar (pollar - börn - unglingar og ungmenni) sem hafa áhuga á að taka þátt í Æskan og hesturinn eru beðnir að mæta með hestana sína mánudaginn 31. janúar kl. 19:00 í Hindisvík. Ath. þetta er gert til að reiðkennari geti metið öryggi hestsins. Þeir sem þegar hafa skráð sig hjá Oddrúnu þurfa að mæta líka. Sérstaklega er óskað eftir brúnum hestum og knöpum sextán ára og eldri til að vera með í fánareið. Vonumst til að sem flestir verði með.