Uppskeruhátíð og foreldrafundur

Verða haldin miðvikudaginn 19. janúar nk. kl. 20.00 í framhaldi af skráningu á námskeið. Við veitum börnum, unglingum og ungmennum viðurkenningu fyrir góðan árangur á liðnum vetri og einnig veitum við verðlaun fyrir efnilegastan einstakling í ofangreindum flokkum. Kaffi og kökur á boðstólum - félagsmenn eru hvattir til að mæta.