- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, apríl 11 2018 12:02
-
Skrifað af Sonja
Áríðandi áminning um að ganga frá endum á rúlluplasti.
Vegna ömurlegs slys sem varð á hesti í Sörla, sem fældist vegna flaxandi rúlluplasts, biðjum við alla þá sem eiga bagga eða rúllur fyrir utan hesthúsin um að fara yfir alla lausa enda og festa niður. Mikil mildi var að knapi hestsins slasaðist ekki, það hefur bjargað honum að hann er mjög vanur hestamaður. Hesturinn mun hins vegar ekki ná sér að fullu.
Flaksandi plastendar geta verið stórhættulegir.
Þetta á ekki síður við um þá sem eiga rúllur og bagga á rúllubaggastæðinu við vesturenda gamla hringvallarins.
Einnig er fólk beðið um að henda eða fjarlæga allt auka drasl sem er fyrir utan hesthúsin, það eru líka slysagildrur.
Á sumardaginn fyrsta verður tiltektardagur á svæðinu og þá er hægt að nýta sér tækifærið og losa rusl í gámana sem verða við reiðhöllina.
kv
HákonH
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, apríl 10 2018 15:05
-
Skrifað af Sonja
Atvinnustarfsemi á Harðarsvæðinu
Í sívaxandi mæli hafa aukist kröfur okkar hestamanna um ýmsa þjónustu tengda sportinu. Þar á meðal er flutningur á hrossum, ýmist á eigin kerrum eða með hestaflutningabílum. Kerrustæðið fyrir norðan reiðhöllina var nýlega stækkað, en til þess að koma „atvinnu“kerrunum fyrir, þyrftum við að stækka það enn frekar. Það kostar peninga og spurning um hver borgar. Í bígerð er að ganga betur frá og afmarka kerrustæðin og leigja þau síðan út. Þannig gæti leigutaki alltaf gengið að sínu kerrustæði. Óformlegt mat er að þarna gæti verið stæði fyrir allt að 50 kerrur.
Sama gildir um rúllur og bagga, en heysalar hafa sumir verið með birgðir á svæðinu og reyndar líka utan þess svæðis sem hestamannafélagið hefur til umráða. „Gamla“ svæðið við austurenda hverfisins var utan við félagssvæði Harðar og auk þess á verndarsvæði Varmár. Mosfellsbær bað okkur því um að fjarlægja rúllurnar og til bráðabirgða fundum við nýjan stað vestan við gamla hringvöllinn. Vegna kvartana gerði bærinn einnig athugasemdir við þá staðsetningu, en sú staðsetning var þó innan okkar svæðis. Hugmynd stjórnarinnar var að prófa þetta svæði og ef vel reyndist að loka því af með mön allan hringinn og gróðursetja í mönina. Leyfa ekki baggastæður sem væru hærri en sem möninni næmi. Loka síðan svæðið af með hliði og leigja út stæði fyrir heybirgja. Leigan stæði undir kostnaði við svæðið. Það verður síðan alltaf sú lágmarkskrafa gerð að þeir sem nýta stæðið gangi vel um og hirði upp plast og annað rusl.
Svo er það hin hliðin. Á hestamannafélagið að þurfa að bjóða upp á aðstöðu fyrir atvinnurekstur. Í rauninni er stórt spurt, því ef allir þeir sem þjónusta okkur með hestaflutninga, heysölu og tæmingu á skítaþróm, þyrftu og fengju aðstöðu fyrir birgðir og tæki, væri lítið pláss eftir fyrir annað.
Nk laugardag frá kl 9 – 13. verður stefnumótunarfundur okkar Harðarmanna í Harðarbóli. Þar gefst öllum félagsmönnum tækifæri á að láta rödd sína og skoðun hljóma. Hvet ég alla félagsmenn til að mæta á fundinn.
kv
HákonH
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, apríl 03 2018 16:23
-
Skrifað af Super User
Takið daginn frá
Kæru Harðarfélagar
Laugardaginn 14. apríl nk ætlum við að móta stefnu hestamannafélagsins Harðar til næstu ára. Runólfur Smári Steinþórsson prófessor og hestamaður ætlar að leiða stefnumótunina.
Hvar og hvernig sjáum við hestamannafélagið Hörð á næstu 20 árum?
Við ætlum að leggja áherslu á þrjá þætti:
- Skipulagsmál (uppbygging svæðisins og frekari landvinninga)
- Umhverfismál (beitarmál, rekstrarmál, samspil byggðar og íbúahverfis, nýjar reiðleiðir o.fl.)
- Innra starf félagsins (fyrirmyndarfélag, kennsla og keppni, upplýsingar o.fl.)
Fundurinn verður í Harðarbóli og byrjar kl 9 og stendur til kl 13. Fyrst verður stutt kynning á verkefninu, en síðan verður þátttakendum skipt upp í hópa eftir áhuga hvers og eins.
Að lokum verða umræður hvers hóps kynntar og tillögum vísað til stjórnar til frekari úrvinnslu.
Hvetjum alla Harðarfélaga til að mæta. Því fleiri sjónarmið - því betra.
- Nánar
-
Skrifað þann Sunnudagur, apríl 01 2018 20:00
-
Skrifað af Super User
Hópreið í Gunnunes á morgun 2. apríl. Hnakkur kl 13.15. Lilla fararstjóri. Allir velkomnir.