- Nánar
-
Skrifað þann Föstudagur, apríl 27 2018 12:00
-
Skrifað af Sonja
Okkar árlega kótilettukvöld var haldið sl laugardag og mættu rúmlega 110 manns. Kvöldið tókst vel að venju og í ár var safnað fyrir nýrri lýsingu í „gamla“ salnum. Hagnaðurinn var um 250 þús kr. og má ekki hvað síst þakka öllum þeim sem lögðu fram vinnu – endurgjaldslaust. Gjaldinu var stillt í hóf, því auk þess að safna fé, er svona viðburður góður fyrir félagsandann. Þökkum Guðrúnu, Óskari, Ragnhildi, Önnu Lísu, Gígju, Mumma og Hadda kokk fyrir þeirra framlag.
Tiltektardagurinn gekk vel og grillaðir voru um 130 hamborgarar. Góð þátttaka í Firmakeppni félagsins.
Orðrómur hefur verið í félaginu um að félagslífið sé dauft um þessar mundir og verð ég að taka undir það. Frekar dræm mæting hefur veirð á viðburði s.s. árshátíð félagsins, sem var reyndar ein af þeim betri sem undirritaður hefur sótt, en núna mættu aðeins rúmlega 90 manns. Í Fáksreiðina í fyrra riðu um 11 manns í Fák. Reyndar var veðrið afburða slæmt. Í kirkjureið mættu um 15 manns og fleiri dæmi væri hægt að taka. Veit ekki hvað veldur, en bið hvern og einn að líta í eigin barm. Góður félagsandi kemur ekki af sjálfu sér, við þurfum að búa hann til sjálf. Það væri gott að fá ábendingar frá ykkur um fleiri viðburði og betri þátttöku.
Framundan er Miðbæjarreið, Fáksreið og svo verður opið hús 1. maí. Gott að mæta með börnin og barnabörnin, sem og aðra gesti. Frítt inn og fullt af skemmtilegum atriðum í boði. Vöfflusala, kakóg og kaffi.
- Nánar
-
Skrifað þann Föstudagur, apríl 27 2018 08:16
-
Skrifað af Sonja
Lokað æfingamót fyrir yngri Harðarfélaga og krakka á Harðarsvæðinu verður haldið um kvöldið 1. maí.
Mótið er ætlað fyrir knapa í yngri flokkunum til að fá umsagnir og bæta sig fyrir komandi keppnistímabil. Dómari verður á staðnum og eftir mót verður hægt að hitta hann upp í Harðarbóli til þess að ræða niðurstöðurnar.
Skráning fer fram í gegnum sportfeng og mun kosta 1000kr á hest.
Boðið verður upp á allar helstu greinarnar en það eru ekki riðin nein úrslit.
Skráning mun standa frá föstudeginum 27. apríl til sunnudaginn 29.apríl.
Frábært tækifæri til þess að æfa sig og það er ekkert hægt nema að græða á þessu! Mótanefndin ætlar að nota þetta tækifæri til að keyra sportfeng í fyrsta skiptið og því biðjumst við fyrirfram velvirðingar ef einhver smá töf verður.
Hlökkum til að sjá ykkur!
- Nánar
-
Skrifað þann Fimmtudagur, apríl 26 2018 10:57
-
Skrifað af Sonja
Opna Íþróttamót Harðar verður haldið 4.-6. maí næstkomandi í Mosfellsbæ. Skráning verður í gegnum Sportfeng og hefst föstudaginn 27.apríl og lýkur þriðjudaginn 1. maí. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma og biðjum við fólk að virða það. Í yngri flokkana er skráningargjaldið 3500kr og einning í 100, 150 og 200m skeið. Í gæðingaskeið er skráningargjaldið 4000kr og í hinarhringvallar flokkana er skráningin 5500kr. Boðið verður upp á flesta hefðbundna flokka og greinar. Sjoppa verður á staðnum og hvetjum viðsem flesta til að taka þátt! Frekari dagskrá auglýst síðar.