- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, maí 03 2017 16:35
-
Skrifað af Super User
Kæru félagar
Næstkomandi laugardag bjóðum við Fáksmönnum heim og ætlum að vera með kökuhlaðborð í reiðhöllinni. Óskum við því eftir veitingum kæru félagar eins og við höfum gert undanfarin ár til að vera með á hlaðborðinu.
Hægt verður að koma með veitingarnar í reiðhöllina á laugardagsmorgninum.
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, maí 03 2017 16:33
-
Skrifað af Super User
Senn líður að kótilettukvöldinu okkar hjá hestamannafélaginu Herði sem verður haldið 6.maí í Harðarbóli. Hvetjum Harðarfélaga til að taka með sér gesti.
Miðar verða seldir í Harðarbóli miðvikudagskvöldið 3.maí milli klukkan 19-21 eða senda mail á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og leggja inná reikning 549-26-4259 kt. 650169-4259 og senda staðfestingu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Miðaverð er 3.500,-
Húsið opnar kl.19.00 og borðhald hefst kl.19.30.
Matur: Kótilettur "ala mamma", rauðkál, grænar baunir og rabbabarasulta. Niðursoðnir ávextir og rjómi.
Veislustjórn, fjöldasöngur.
Þetta er hátíð sem enginn má missa af.
Kveðja stjórn Harðar
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, apríl 26 2017 12:38
-
Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Þann 28. apríl verður sýnikennsla með frábærum knöpum í Meistaradeildinni.
Knapar úr liði HRÍMNIS / EXPORT HESTA verða með sýnikennslu til styrktar Fræðslunefnd Harðar.
Helga Una Björnsdóttir, Þórarinn Ragnarsson og Hanna Rún Ingibergsdóttir munu sýna listir sínar og veita góð ráð í reiðmennsku. Þema sýningarinnar er þjálfun reiðhesta með áherslu á gangtegundir. Eftir sýninguna gefst tækifæri til að spjalla.
Sýnikennslan verður í reiðhöllinni í Mosfellsbæ.
Húsið opnar kl: 19:00
Þetta er einstakt tækifæri til að fá góð ráð hjá þessum þremur frábæru knöpum og sjá þau að störfum. Kennd verður m.a. einföld tækni sem auðvelt er að tileinka sér til að bæta hestinn sinn.
Eftir sýnikennsluna verður aðstaðan og sérútbúnu hnakkarnir til sýnis og hægt verður að spyrja spurninga og fræðast nánar um starfið sem Fræðslunefnd Fatlaðra býður uppá. Það verður sjoppa á staðnum sem mun selja gos, bjór, kakó og með því ásamt ljúffengu súpunni hennar Fríðu. Svo verður gítarstemning og fjör eftir sýninguna. Miðaverð 1500 kr.
Hlökkum til að sjá ykkur, Fræðslunefnd fatlaðra og Hrímnir / Export hestar.
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, apríl 25 2017 11:00
-
Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Keppnisnámskeið framhald
4 maí næskomandi mun seinni hluti keppnisnámskeiðs æskulýðsnefndar hefjast.
Kennt verður tvisvar í viku á mánudögum og fimmtudögum í 20 mín einkatímum, tímasetning auglýst síðar.
Kennslan mun fara mest fram út á hringvelli félagsins.
Kennari er Fredrica Fagerlund
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á einstaklingsmiðaða kennslu, mest einkatímar til að ná því besta fram í hverjum knapa og hesti.
Námskeiðið er fyrir börn 10 ára og eldri sem stefna að þátttöku í keppni, reynsla æskileg
Verð 19.000,-
Skráning skal eiga sér stað í gegnum Sportfeng (velja skráningarkerfi) og er nú þegar hægt að skrá sig:
http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add
- Velja námskeið.
2. Velja hestamannafélag (Hörður).
3. Skrá kennitölu þátttakanda – (Ef kennitala ekki í félagaskrá, þarf að fara inná www.hordur.is og sækja um aðild).
4. Velja atburð (og hóp ef fleiri en einn hópur).
5. Setja í körfu.
6. Velja greiðslufyrirkomulag: Greiðslukort eða millifærsla. Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi borist.
Námskeiðið eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku