- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, febrúar 10 2016 10:10
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Nú er komið að Grímutöltinu og Grímuleikunum góðu Harðarfélagar, allt verður með hefbundnu sniði nema að sjálfsögðu mætir fólk í búningum, flokkaskipting verður:
börn, unglingar, ungmenni, konur 1, konur 2, karlar 1, karlar 2 og atvinnumenn.
Svo höldum við eftir það stutta grímuleika þar sem atriðið má ná uppí 3mín og hugmyndarflæði, skemmtannargildi, sköpunnarhæfni verður dæmt. Einnig vil ég minna á að VINNINGSHAFINN í yngri flokkum (börn og unglingar) fær þátttökurétt á Æskuna og Hestinn!!!!!
hlökkum til að sjá ykkur frábæra fólk
Skráning á 4g mótin á föstudaginn kl.19.00
Með kveðju Mótanefndin
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, febrúar 10 2016 10:08
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Þá er komið að opnum Hrímnis 4gangi sem verður haldin í Herði, létt og skemmtilegt mót.
Aðeins einn flokkur í boði 3 inná í einu og síðan 6 í úrslit
höfum gaman saman næsta föstudagskvöld og njótum þess að sjá flotta hesta svona í byrjun vetrar.
Skráningargjald er 2000kr
hægt er að skrá sig hér http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Skráningarfrestur rennur út á miðnætti 10.feb.
Hlökkum til að sjá sem flesta
Kær kveðja Mótanefnd Harðar