TÖLTBRÚPPAN Í HERÐI - NÆSTA ÆFING

Á sunnudagsmorgunn hittust 22 konur í Töltgrúppunni okkar Harðarkvenna og er mikill hugur í konum og skemmtu allar sér vel og hestarnir líka.

Á miðvikudagskvöldið er næsta æfing kl.20-22.

Verð fyrir 10 skipti er 10.000kr.

Allar konur eru velkomnar.

Á meðan á æfingunni stóð gaf sig vatnsrör í loftræstikerfinu og bruna bjallan fór að stað og fældust nokkrir hestar og ein vinkona okkar datt af baki. Hún ber sig vel en það á eftir að koma í ljós hvernig skrokkurinn og hugurinn verður eftir þessa biltu. Við sendum henni alla okkar bestu strauma. Hjálmurinn veður ekki notaður aftur.

Bjöllu um verður skipt úr fyrir rauð ljós vonandi á morgun eða hinn.