- Nánar
-
Skrifað þann Föstudagur, september 21 2018 18:25
-
Skrifað af Sonja
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á Harðarsvæðinu. Kerrustæði fyrir 70 kerrur hafa verið útbúin og verða þau merkt og boðin til leigu fljótlega. Þannig getur leigutaki alltaf „gengið“ að sínu stæði.
Búið er að setja upp loftræstingu í reiðhöllinni. Það var löngu orðið tímabært. Það er líka búið að setja nýtt og öflugra hitakerfi undir áhorfendabekkina. Með því fáum við betra flæði á heita loftið og um leið yljar það áhorfendum án þess að of mikill hiti myndist á reiðgólfinu. Á næstunni verður þak reiðhallarinnar þétt, þakrennur og snjógildrur settar og í framhaldinu verður reiðhöllin þrifin.
Búið er að steypa stétt í kringum Harðarból og verið er að snyrta í kringum stéttina. Félagsheimilið og gamli hluti þaksins verður málað.
Verið er að laga Hvíta gerðið og skipt verður um möl.
Beiðni félagsins sem breytingu á deiliskipulagi svæðisins með það í huga að fjölga hesthúsalóðum var tekin fyrir á bæjarráðsfundi í gær og var vísað til skipulagsnefndar. Allir sem að koma eru jákvæðir, en enn er talsverð vinna eftir þar til að nýtt deiliskipulag verði samþykkt.
Félagið hefur lokið við umsókn sem fyrirmyndarféalg ÍSÍ, en slíkt þarf að sækja um og endurnýja á nokkurra ára fresti. Við munum fá viðurkenningarskjal þess efnis væntanlega í næsta mánuði.
Þrátt fyrir allar þessar framkvæmdir, stendur félagið vel fjárhagslega og skuldar ekki neitt. Í lok árs verður gerð framkvæmdaáætlun fyrir 2019. Gott að fá ábendingar frá félagsmönnum, en gætið þess að reiðvegsframkvæmdir og lýsingar eru Mosfellsbæjar. Þar getum við reynt að hafa áhrif, en framkvæmdin er hjá bænum.
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, september 19 2018 17:20
-
Skrifað af Sonja
Rúnar Sigurpálsson (fyrrum lögga), hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Herði og hefur hann þegar hafið störf.
Áköllun félagsmanna um ráðningu framkvæmdastjóra hefur verið í umræðunni í nokkurn tíma. Framkvæmdastjórinn verður í hlutastarfi, en sem slíkur verður hann tengiliður félagsmanna og annarra starfsmanna við stjórn félagsins, sér um daglegan rekstur og fylgir eftir framkvæmdum o.fl.
Rúnar þekkir félagið út og inn, fyrrum formaður og allir félagsmenn þekkja Rúnar. Stjórn félagsins ber miklar væntingar til nýs framkvæmdastóra og hlakkar til samstarfsins við Rúnar.
Stjórnin
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, september 19 2018 10:34
-
Skrifað af Sonja
Viðhald reiðveganna er á ábyrgð Mosfellsbæjar. Að setja afgangsefni sem þetta í reiðveginu, eru alfarið mistök verktakans. Ekki bæjarins né stjórnar félagsins. Árvökulir félagsmenn sendu ábendingar til stjórnar, sem strax hafði samband við bæinn, sem lét lagfæra reiðleiðina á Tungubakkahringnum. Reiðleiðinni var lokað á meðan á viðgerð stóð. Einhverra hluta vegna var "gamla" afgangsefnið sett í hrúgu við reiðveginn og væntanlega gleymst að fjarlægja hann. Ábending um það barst stjórn nýlega og ar Mosfellsbær beðinn um að fjarlæga binginn. Það verður gert síðar í dag eða á morgun. Hluti af þessu efni var borið á nýja veginn meðfram Varmánni. Þeim vegi verður lokað meðan á viðgerð stendur. Nauðsynlegt að fá ábendingar frá félagsmönnum, við erum í þessu saman og öll höfum sömu hagsmuni að gæta.
- Nánar
-
Skrifað þann Föstudagur, september 14 2018 15:53
-
Skrifað af Sonja
Kæru félagar
Skriftstofu Félagsins verður lokuð fram og með Sunnudag 7.óktober vegna sumarfrí.
Ef það er eitthvað mikilvægt er hægt að hafa samband við Hákon formann, símanúmer er á heimasíða félagsins www.hordur.is.
Kærar þakkir
Sonja Noack
Starfsmaður og Yfirreiðkennari Hörður