- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, janúar 09 2017 22:06
-
Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Síðustu dagar skráningar hjá Trausta.
Námskeiðið kostar 25.000 krónur og lágmarksþátttaka eru 10 nemendur svo að námskeiðið verði haldið.
Skráning er á eftirfarandi slóð: http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add
Trausti Þór Guðmundsson reiðkennari mun halda námskeið í Herði helgina 13 – 15 janúar 2017 fyrir ungmenni og fullorðna.
Töltfimi (Tölt in Harmony) er ekki eitthvað einangrað fyrirbæri eða keppnisgrein. TIH er einfaldlega nafn á ákveðinni „Fílósófíu“ eða aðferðafræði sem hestamaður getur valið sér og sínum reiðhesti/keppnishesti, stefni hugur hans til framfara. Aðferðafræðin styðst við hin „klassísku þjálfunarstig“ og felur þannig í sér að gott samband manns og hests verði, og að reiðmaðurinn nái stjórn á andlegu sem og líkamlegu jafnvægi, sem og orku og orkuflæði hestsins.
- Niðurstaðan hvað knapann varðar getur orðið:
- Aukinn skylningur
- Yfirvegaðri og einbeittari reiðmennska
- Nákvæmari og léttari ábendingar
- Betri stjórn í gegnum sætið
- Tök á kerfisbundinni uppbyggingu hests og knapa
- Niðurstaðan hvað hestinn varðar getur orðið:
- Betri líðan og andlegt jafnvægi
- Hreinni gangtegundir á öllum hraða
- Aukin mýkt og fjaðurmagn
- Aukinn skilningur og betra gegnumflæði ábendinga
- Aukin virðing fyrir þjálfara
Kveðja
Fræðslunefnd Harðar
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, janúar 04 2017 23:26
-
Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Opið málþing keppenda, dómara og þeirra sem láta sig málið varða kl. 19.30 fimmtudagskv. 5 jan.
Félag tamningamanna heldur málþing um keppnismál.
Fulltrúar íþróttadómarafélagsins, gæðingadómarafélagsins og knapa verða með tölu um stöðuna frá þeirra upplifun eftir síðasta keppnistímabil. Og svo gefst fundargestum tækifæri á að fá orðið og hafa áhrif.
Hvernig er staðan?
Hvað er gott?
Hvað þarf að bæta?
Drög að dagskrá:
Ca 10 mínútur hver aðili.
gæðingadómarafélagið
íþróttadómarafélagið
2 fulltrúar knapa
1 hrossabóndi/dómari
fyrirspurnir
orðið laust
lokaorð/niðurstaða/úrlausnir
Hvetjum dómara og keppendur að mæta, saman getur við gert gott betur:)
Stjór FT
- Nánar
-
Skrifað þann Miðvikudagur, janúar 04 2017 15:05
-
Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Allir velkomnir
Nú er komið að þrifum á reiðtygjum.
Við ætlum að hittast uppí reiðhöll kl 18-20 fimmtudaginn 5. Janúar
Helga Söðlasmiður ætlar að vera með okkur og leiðbeina. Það sem þið þurfið að koma með er fata, tuskur,sápu, hnakk og beisli. Við komum með olíu pizzur og gos.
Hittumst hress kveðja æskulýðsnefndin
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, janúar 03 2017 11:14
-
Skrifað af Oddrún Ýr Sigurðardóttir
Ove Österlie, prófessor í íþróttafræðum við norska háskólann NTNU, heldur námskeið um notkun vendináms við íþróttaþjálfun í Reykjavík þann 2. febrúar og á Akureyri 3. febrúar 2016.
Íþróttaakademía Keilis skipuleggur námskeiðin í samstarfi við Ove og eru þau sérstaklega ætluð þjálfurum og íþróttakennurum. Allir eru þó velkomnir. Námskeiðið skiptist í tvo hluta. Annarsvegar þar sem Ove sýnir og fer yfir aðferðafræðina við vendinám og íslenskur þjálfari kynnir sína reynslu. Hinsvegar tveggja tíma hópavinna þar sem þátttakendur stíga fyrstu skref í vendinámi með aðstoð Ove.
Verð og staðsetning
Boðið verður upp á tvö námskeið, í Reykjavík fimmtudaginn 2. febrúar kl. 9 - 12 og á Akureyri föstudaginn 3. febrúar kl. 9 - 12. Staðsetning námskeiðanna verður kynnt síðar. Þátttökugjald er kr. 15.000 og viðurkennir KSÍ námskeiðið til fjögurra B endurmenntunarstiga.
Nánari upplýsingar veitir Haddý Anna Hafsteinsdóttir, verkefnastjóri Íþróttaakademíu Keilis í síma 578 4000 eða á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Á NÁMSKEIÐIÐ
Afhverju vendinám í íþróttaþjálfun?
Á síðustu árum hafa nýjar kennslu- og þjálfunaraðferðir verið að ryðja sér til rúms. Gerist það í kjölfar tæknivæðingar og almenns aðgengis fólks að netinu (í gegnum snjallsíma, spjaldtölvur o.s.frv.). Ein þessara aðferða nefnist vendinám (Flipped Classroom) en með því er einföld tækni notuð til að kynna nemendum æfingar dagsins.
- Þjálfari tekur upp æfinguna og sendir á netfang iðkandans.
- Áður en æfing hefst eiga allir iðkendur að vera búnir að skoða æfinguna.
- Æfingin fer fram.
Ove Österlie hefur aðstoðað þjálfara í ýmsum greinum að tileinka sér flippið við þjálfunina. Niðurstaða allra er sú sama:
- Þátttakendur eru fljótari að tileinka sér æfingu dagsins.
- Hinir duglegustu byrja strax heima á að gera æfinguna.
- Minni tími fer hjá þjálfara að sýna hvað á að gera á sjálfri æfingunni.
- Þátttakendur koma betur andlega tilbúnir á æfinguna.
- Þátttakendur eiga æfinguna heima og geta skoðað hana betur og æft sig sjálfir.
- Öllum ber saman um að árangur verði betri.
- Foreldrar geta séð hvaða æfingar eru í gangi.
Grein eftir Ove Österlie um vendinám við íþróttaþjálfun: Flipped Learning in Physical Education: Why and How?