ÁRIÐANDI TILKYNNING!!!
- Nánar
- Skrifað þann Föstudagur, júlí 20 2018 07:27
- Skrifað af Sonja
Vegna mikillar eftirspurnar hefur mótanefnd Harðar ákveðið að halda punktamót fyrir Íslandsmótið. Skráning á mótið er hafin inn á sportfeng og stendur til miðnættis miðvikudagsins 11.júlí. Mótið hefst klukkan 18:00 fimmtudaginn 12.júlí.
Skráningarfrestur á Íslandsmótið hefur verið framlengdur til miðnættis 12. júlí svo nú er síðasti séns að ná tölum fyrir mótið.
Greinar sem boðið verður upp á er fjórgangur, fimmgangur, tölt og slaktaumatölt.
Engin úrslit verða á mótinu og aðeins verður einn flokkur í hverri grein. Inn á viðburðinum verða birtar fleiri upplýsingar. Hlökkum til að sjá ykkur!
Landsmótið tókst mjög vel. Skipulag, vellir, aðstaða og stjórnun til fyrirmyndar. Hestakosturinn algjör veisla. Hörður átti nokkra þátttakendur á mótinu og stóðu þeir sig vel. Það þarf mikinn aga og mikla vinnu til að ná inn á landsmót.
Í Barnaflokki lenti Oddur Arason í 5. sæti og Egill Rúnarsson í því 13. Í Unglingaflokki tók Benedikt Ólafsson sig til og varð Landsmótsmeistari. Frábær árangur. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir var valin knapi mótsins og hlaut FT fjöðrina. Hún hlaut einnig isibelss verðlaunin, en þau eru veitt þeim knapa sem sýnir einstaka reiðmennsku og fáguð samskipti við hestinn. Reynir Pálmason og Skemill náðu 3ja sæti í 150 m skeiði á tímanum 14,22.
Myndir eru frá vef LH.
Stjórnin
Næstu daga verður hitakerfi sett upp í reiðhöllinni. Höllinni verður ekki lokað, enúast má við nokkru raski og er félagsmenn beðnir um að sýna þolinmæði og skilning.
Stjórnin