- Nánar
-
Skrifað þann Föstudagur, desember 28 2012 17:19
-
Skrifað af Super User
Dagskrá 2023 / 2024
Með fyrirvara um breytingar. Ódagsettir viðburðir verða auglýstir síðar
Æskulýðsviðburðir eru fjólubláar
Desember 2023
3. Hindrunarstökk - Æskulýðsnefnd - Nathalie
7. Bling-námskeið - Æskulýðsnefnd - Sigga Pje
8. - 10. Reiðmaðurinn
10. Heimsókn til Benedikt - Heimsmeistari í Ólafshaga - Æskulýðsnefnd - LINK
12. Sýnikennsla Súsanna Sand - þjálfun í byrjun vetrar - Kl 19 - LINK
14. Heldri menn og konur – jólahittingur - LINK
17. Þrif á reiðtygi - æskulýðsnefnd
16.-17. Gæðingafiminámskeið Fredrica 1/3
30. Ratleikur Æskulýðsnefnd
31. Gamlársdagsreið
Janúar 2024
Skipta fax - námskeið - Æskulýðsnefnd - ódagsett
12.-14. Reiðmaðurinn
13. Kótilettukvöld
14, Fyrirlestur með Benedikt Ólafsson heimsmeistari
20. 1. Vetrarmót
20. FRESTAÐ Sýnikennsla Steinar kl 18 FRESTAÐ
21. Æfingamót Fjórgangur
27.-28. Gæðingafiminámskeið Fredrica 2/3
31. Sýnikennsla Fredrica Gæðingalist kl 19
Febrúar 2024
02.-4. Reiðmaðurinn
9. Sýnikennsla Liberty Steinar - fellt niður
9. – 11. Liberty námskeið Steinar - fellt niður
18. Æfingamót Fimmgangur
24. 2. Vetrarmót - Grímutölt
24.-25. Gæðingafiminámskeið Fredrica 3/3
25. Þrautabraut í Blíðubakka - opið öllum
25. Skýndihjálpanámskeið - aflýst
Mars 2024
1.-3. Reiðmaðurinn
6. kl 18 stutt Kvennareiðtúr
9. Árshátíð Harðar
9. Árshátíðarmót Harðar (3. Vetrarmót)
10. Meistaradeild æskunnar - Gæðingafimi
17. Æfingamót Tölt
20. kl 18 lengri Kvennareiðtúr
23.-24. Helgarnámskeið með Inga María
((29.-31. PÁSKAR))
Apríl 2024
10. kl. 18 aðeins lengri Kvennareiðtúr
12. Æfingamót Æskulýðsnefdar
19.-21. Reiðmaðurinn
24. ríðandi í heimsókn - Kvennanefnd - tímasetning auglýst síðar
25. Sumardagurinn fyrsta- Hreinsunardagur
26. Fáksreið - Riðið í Fák
Maí 2024
1. Dagur íslenska hestsins / (Miðbæjarreið) - Firmakeppni Harðar
3. Hlégarðsreið – Fákur kemur í heimsókn
11. Náttúrureið – Ferðanefnd
12. Smalamót Æskulýðsnefnd
22. kl. 18 Kvennareiðtúr
24.-26. Íþróttamót Harðar
Miðbæjarreið FRESTAÐ
((19. Hvítasunna))
Júní 2024
1. stóra kvennareið Harðarkvenna – auglýst síðar
07.-09. Gæðingamót Harðar
Júli 2024
18.-21. Íslandsmót barna og unglinga 2024 í Herði
Ágúst 2024
September 2024
Kennsla FMOS byrjar
Október 2024
Nefndarkynningu?
Uppskerahátíð Æskulýðsnefndar - dagsetning kemur
4.-6. Reiðmaðurinn
20. Nudd og Teygjur - æskulýðsnefnd
Nóvember 2024
1.-3. Reiðmaðurinn
2. Hrossakjötsveisla Áttaviltra
6. Aðalfundur
10. Vinna við hendi - æskulýðsnefnd
22.-24. Reiðmaðurinn
Desember 2024
1. Hringtaumur - æskulýðsnefnd
8. Liberty - æskulýðsnefnd
13.-15. Reiðmaðurinn
Heldri menn og konur – jólahittingur
31. Gamlársdagsreið
Janúar 2025
18. Kótilettukvöld
25. Vetrarmót 1
26. Tölumót 1
Febrúar 2025
22. Vetrarmót 2
23. Tölumót 2
Mars 2025
15. Árshátíð Harðar
22.mars : Vetrrarmót 3 (Reiðhöll)
23.mars: Tölumót 4 (Reiðhöll)
Apríl 2025
4. Skemmtimóti
24. Sumardagurinn fyrsta- Hreinsunardagur
Maí 2025
1. Firmakeppni
Júni 2025
6-8. Íþróttarmót Harðar
- Nánar
-
Skrifað þann Fimmtudagur, febrúar 02 2012 10:50
-
Skrifað af Super User
Lög Félag hesthúseigenda á Varmárbökkum í Mosfellsbæ
1. gr.
Félagið heitir "Félag hesthúseigenda á Varmárbakka í Mosfellsbæ" og skal staðurinn heita "Hesthúsahverfið á Varmábakka". Heimili félagsins og varnarþing er í Mosfellsbæ í Kjósarsýslu.
Félagið er deild í Hestamannafélaginu Herði.
2. gr.
Félagsmenn skulu allir þeir vera sem þar eiga hesthús.
3. gr.
Tilgangur félagsins er í fyrsta lagi sá, að gæta sameiginlegra hagsmuna félagsmanna, hvað snertir hesthús, sem byggð hafa verið og kunna að verða byggð á svæðinu. Í öðru lagi vilja félagsmenn eiga gott samstarf við bæjarstjórnina í sambandi við byggingarskilmála, skipulag og umgengni á svæðinu, þannig að snyrtimennska og menningarbragur ráði þar ríkjum á öllum sviðum. Í þriðja lagi vilja félagsmenn (með samstarfi) stuðla að ýmsum félagslegum umbótum á svæðinu, t.d. byggingu bað- og sjúkraaðstöðu fyrir hross félagsmanna, lýsingu svæðisins, lagfæringu á bíl- og reiðvegum, og annað það sem félagsmenn telja nauðsynlegt í sambandi við uppbyggingu svæðisins.
4. gr.
Stjórn félagsins er skipuð fimm félagsmönnum og þar af einum tilnefndum af Hestamannafélaginu Herði. Stjórn félagsins er kosin á aðalfundi til tveggja ára þannig að tveir gangi úr stjórn ár hvert. Þeir sem ganga úr stjórn með þessum hætti geta verið endurkjörnir.
5. gr.
Endurskoðandi skal kjörinn á aðalfundi til 2ja ára í senn.
6. gr
Formaður skal ár hvert gera skýrslu um starfsemi félagsins og lesa hana á aðalfundi.
7. gr.
Gjaldkeri skal annast sjóði félagsins, færa reikninga og annast allar fjárreiður þess. Endurskoðaðir reikningar skulu liggja frammi á aðalfundi. Þá skal ritari færa fundargerðir í fundargerðarbók og skulu þær samþykktar með áritun stjórnarmanna.
8. gr
Aðalfund félagsins skal halda eigi síðar en 1. maí ár hvert. Aðalfund skal boða með fundarboði á heimasíðu Harðar með minnst viku fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef til hans er löglega boðað.
9. gr.
Almennir fundir skulu haldnir svo oft sem þurfa þykir og alltaf ef tíu eða fleiri félagsmenn krefjast þess.
10. gr.
Félagsgjald skal ákveðið á aðalfundi ár hvert og greiðist það fyrirfram fyrir hvert ár og er gjalddagi þess 1. apríl árlega. Fjárhagsár félagsins miðast við almanaksárið.
11. gr.
Stjórn félagsins ber eftir fremsta megni að sjá um að félagsmenn fari að settum umgengnis- og viðhaldsreglum í byggingarskilmálum bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Ef félagsmenn hundsa ábendingar félagsstjórnar hvað þetta varðar, þá skal hún beita sér fyrir því að úr verði bætt, allt á kostnað viðkomandi húseigenda.
12. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þurfa 2/3 (tveir/þriðju) fundarmanna að greiða breytingunni atkvæði. Í öðrum málum skal meirihlutaafl ráða úrslitum.
Þeir einir hafa kjörgengi og atkvæðisrétt sem ekki eru í vanskilum við félagið.
13. gr.
Hesthúsaeigendum ber að tilkynna eigendaskipti á hesthúsum til félagsins.
14. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á aðalfundi félagsins í Mosfellsbæ 9. maí 2019.