- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, apríl 08 2013 18:04
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Þeir félagar Hestamannafélagsins Harðar sem enn eiga eftir að greiða félagsgjöldin, eru vinsamlegast beðnir að gera það hið fyrsta. Ef eitthvað vefst fyrir fólki er hægt að hafa samband við This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða hringja í síma 8528830.
- Nánar
-
Skrifað þann Mánudagur, apríl 08 2013 12:52
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Kæru Harðarfélagar. Stjórn Harðar langar að þakka ykkur fyrir ykkar þáttöku í Hestadögum í Reykjavík. Við opnun Hestadaganna í Reykjavík áttum við flotta fulltrúa yngri kynslóðarinnar, sem fylgdu Borgarstjóra Reykjavíkur. Opna húsið á föstudeginum tókst frábærlega, þar sem mörg börn fengu að fara á hestbak og kjötsúpan rann ljúflega niður. Í skrúðreiðinni um miðborg Reykjavíkur á laugardeginum átti Hörður fjölmennasta hópinn. Þau börn og unglingar sem tóku þátt í Æskan og hesturinn eiga heiður skilið fyrir þeirra þátttöku svo og foreldrar og forráðamenn þeirra.
- Nánar
-
Skrifað þann Þriðjudagur, apríl 02 2013 00:13
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
5. apríl – Reiðhöll Harðar opin kl. 17.00 – 19.00
Þau hesthús Harðarfélaga sem eru opin og eru merkt með blöðrum
Kjötsúpa – kaffi – svali í Reiðhöll Harðar
Kl. 17.00 – 18.00 - Teymt undir krökkum
Kl. 18.00 – Harðarkrakkar sýna listir sínar.
Mosfellingar og aðrir eru hvattir til að koma og kynna sér starfsemi sem fram fer í Hestamannafélaginu Herði, fá sér kjötsúpu, leyfa börnunum að fara á hestbak og horfa á frábæra sýningu hjá Harðarkrökkum.
- Nánar
-
Skrifað þann Föstudagur, mars 29 2013 00:30
-
Skrifað af Jóna Dís Bragadóttir
Eitt af skemmtilegustu atriðunum á Hestadögum í Reykjavík er skrúðreiðin niður við Tjörnina í Reykjavík, en hún verður laugardaginn 6. apríl n.k. Ragna Rós Bjarkadóttir heldur utan um Harðarhópinn. Þeir sem hafa áhuga á því að vera með þurfa að skrá sig á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Þar þarf að koma fram nafn, símarnúmer og hvort það er laust pláss í hestakerru eða hvort það vanti far. Æskilegt er að knapar séu snyrtilega klæddir (í félagsbúningu, jakka merktum Herði, lopapeysum eða öðrum fallegum reiðfatnaði)
Dagskrá Skrúðreiðar (mæting um 12:30)
Kl. 13:00 – Skrúðreið frá BSÍ – ca. 150 hestar – BSÍ, upp á Skólavörðuholt, niður Skólavörðustíg, yfir Lækjargötu, Austurstræti, Pósthússtræti, Kirkjustræti og Tjarnargata að Ráðhúsi, áfram Tjarnargötu, í gegnum Hljómskálagarð, yfir Njarðargötu og aftur að BSÍ.