Frá Æskulýðsnefnd

Æfingabúðir í Hestheima helgina 9. - 11. maí. Farið verður með unglinga og ungmenni í æfingabúðir í Hestheima helgina 9. - 11. maí. Gist verður tvær nætur í svefnpokaplássi. Verð aðeins 7000 kr. Innifalið í verðinu eru ferðir, matur, gisting og reiðkennsla hjá Sigga Sig. og Trausta Þór. Þeir sem ekki eru á unglinga- og ungmennanámskeiðinu borga 8000 kr. Skráning og fjáröflun. Þeir sem hafa áhuga á að fara í ferðina vinsamlega látið undiritaðar vita fyrir 22. apríl nk. Þá skal einnig láta vita hvort viðkomandi hafi áhuga á að taka þátt í fjáröflun fyrir ferðina. Athugið að það er takmarkaður þátttökufjöldi. Ása 66 44 506 Helga 896 7434 Kolbrún 699 5178 Reiðnámskeið fyrir börn. Skráning á ný reiðnámskeið fyrir börn verður í Harðarbóli 22. apríl á milli 19 og 20. Um er að ræða tvennskonar námskeið. Annarsvegar verður hefðbundin reiðkennsla og hinsvegar verður námskeið fyrir börn sem vilja undirbúa sig undir keppni. Kennt verður tvisvar sinnum í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum, í fjórar vikur. Kennsla hefst í byrjun maí. Námskeiðið kostar 3000 krónur Æskulýðsnefnd.

Úrslit Bæjardekksmóts Harðar

Pollaflokkur Hrefna Guðrún Pétursdóttir og Leiftur frá Skriðulandi 9v rauður Fanney Pálsdóttir og Þögn frá Kópavogi 10v rauðblesótt Barnaflokkur 1. Erna Margrét Grímsdóttir og Vafi 10v jarpur 2. María Gyða Pétursdóttir og Skotti frá Valþjófsstað 9v rauðskottóttur 3. Grímur Óli Grímsson og Gaukur 10v bleikálóttir 4. Arnar Logi Lúthersson og Gráni 10v grár 5. Daníel Örn Sandholt og Skuggi frá Dalsgarði 13v brúnn

Nánar...

Kápa tekin í misgripum

Sá/sú sem tók gráa kápu með loðkraga inn í erminni í misgripum á árshátíð Harðar í Hlégarði vinsamlega skilið henni í Hlégarð eða hafið samband í síma 5666771

Reiðhallartölt Fáks, Kynjatölt Hesta & Manna!

Laugardagskvöldið 15. mars nk. mun fara fram í Reiðhöllinni í Víðidal hið árlega Reiðhallartölt Fáks sem nú hefur verið nefnt Kynjatölt Hesta & Manna. Mótið er opið og hefst klukkan 18:00 í Reiðhöllinni, Víðidal. Keppt verður í tveimur kvennaflokkum (I og II) og tveimur karlaflokkum (I og II). Skráning fer fram í Félagsheimili Fáks fimmtudaginn 13.mars og föstudaginn 14.mars frá klukkan 18:00 til 20:00 og skráningargjald er 1500 krónur. Aðgangseyrir er 500 krónur og gildir miðinn sem happdrættismiði. Að móti loknu verður bjórkvöld í Félagsheimili Fáks. Bestu kveðjur, Íþróttadeild Fáks.

Úrslit árshátíðarmóts

Pollar (ekki var raðað í sæti) Halla Margrét Hinriksdóttir og Dísa frá Keldulandi 10v Margrét Sæunn Axelsdóttir og Ópal 8v Þórólfur Sigurðsson og Þrenna frá Torfufelli 9v Hrefna Guðrún Pétursdóttir og Leiftur frá Skriðulandi 9v Fanney Pálsdóttir og Þögn frá Kópavogi 10v Sóley Sævarsdóttir og Þota frá Skriðu 9v brún Börn 1. Guðbjörn Jón Pálsson og Rimma 14v 2. María Gyða Pétursdóttir og Blær frá Skriðulandi 14v Unglingar 1. Jóhanna Jónsdóttir og Rimma 14v 2. Hreiðar Hauksson og Kuldi frá Grímsstöðum 13v 3. Halldóra Sif Gunnlaugsdóttir og Snót frá Akureyri 8v 4. Linda Rún Pétursdóttir og Bjarki frá Sunnuhvoli 10v 5. Sandra Mjöll Sigurðardóttir og Blesi frá Holtsmúla 10v

Nánar...

Hestur óskast

Geldingur 8-12 vetra með a.m.k. 3 ára reiðreynslu óskast. Hann verður að vera algerlega traustur, góður í umgengni og öllu vanur. Góður í beysli, taumléttur og mikilvægt að auðvelt sé að stoppa hann hvenær sem er. Ekki latur en ekki of viljugur, góður í samreið. Á að fara vel undir og bera sig vel, tölta hreint og hafa brokk. Ef þú átt þennan hest og villt selja hafðu þá samband við mig í síma 899-8816 eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Reiðhallartölt Fáks 15. mars 2003

Laugardaginn 15. mars mun hið árlega Reiðhallartölt Fáks fara fram í Reiðhöllinni í Víðidal. Mótið er opið og hefst klukkan 18:00. Keppt verður í tveimur kvennaflokkum og tveimur karlaflokkum. Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur. Bestu kveðjur, Íþróttadeild Fáks

Bókasafni Mosfellsbæjar vantar eftirtalin eintök af Fréttabl

1. árg. 1989:  1. tbl. (og 4. og fleiri ef þau komu út, við eigum 2. og 3.) 2. árg. 1990:  allt nema 1. tbl. 3. árg. 1991:  allt 4. árg. 1992:  1., 2., 4., 5. (eigum nr. 3 og 6). 5. árg. 1993:  5. tbl og rest, eftir því sem vitað er um útgáfu. 6. árg. 1994:  5. tbl. og rest, eftir því sem vitað er um útgáfu. 7. árg. 1996:  4. tbl og rest, eftir því sem vitað er um útgáfu. Ef einhver á þessi blöð og vill afhenda Bókasafninu værum við mjög þakklát, en annars vildum við mjög gjarnan fá lánuð eintök til að ljósrita. Takk fyrir aðstoðina bestu kveðjur Helga Jóns Bókasafn Mosfellsbæjar Kjarna s. 5666 822