Reiðhallartölt Fáks, Kynjatölt Hesta & Manna!

Laugardagskvöldið 15. mars nk. mun fara fram í Reiðhöllinni í Víðidal hið árlega Reiðhallartölt Fáks sem nú hefur verið nefnt Kynjatölt Hesta & Manna. Mótið er opið og hefst klukkan 18:00 í Reiðhöllinni, Víðidal. Keppt verður í tveimur kvennaflokkum (I og II) og tveimur karlaflokkum (I og II). Skráning fer fram í Félagsheimili Fáks fimmtudaginn 13.mars og föstudaginn 14.mars frá klukkan 18:00 til 20:00 og skráningargjald er 1500 krónur. Aðgangseyrir er 500 krónur og gildir miðinn sem happdrættismiði. Að móti loknu verður bjórkvöld í Félagsheimili Fáks. Bestu kveðjur, Íþróttadeild Fáks.