Reiðhallartölt Fáks 15. mars 2003

Laugardaginn 15. mars mun hið árlega Reiðhallartölt Fáks fara fram í Reiðhöllinni í Víðidal. Mótið er opið og hefst klukkan 18:00. Keppt verður í tveimur kvennaflokkum og tveimur karlaflokkum. Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur. Bestu kveðjur, Íþróttadeild Fáks